blaðið - 25.03.2006, Qupperneq 28
28IHÖNNUN
LAUGARDAGUR 24. MARS 2006 bladiö
Nútímahönnuðir með hugann við fortíðina
Dodge Challenger
Bandaríski bílaframleiðandinn Chrysler kynnti i fyrrahaust hugmyndabílinn Dodge Challenger sem ber mjög sterkan svip af bíl með
sama nafni sem framleiddur var snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Bílaframleiðendur í Bandaríkjunum og Evrópu hafa á undan-
förnum árum vísað til fortíðarinnar f hönnun nýrra bíla í því skyni að höfða til fortíðarhyggju kaupenda.
eftirstríðsáranna sem fjaraði undan
smátt og smátt með versnandi sam-
skiptum austurs og vesturs, Víetnam-
stríðinu og Watergate-hneykslinu.
Murray Moss sem rekur hönnun-
arverslun í New York segir að fólk
laðist að mörgum þessara gripa,
ekki vegna þess að þeir séu fallegir
heldur vegna þess að þeir tengist
gildismati þess. „Þetta er hluti af
stærra máli. Við tengjumst sjötta ára-
tugnum vegna þess að hann vekur
upp kenndir sem við höfum ekki
fundið fyrir síðan þá,“ segir Moss og
bætir við að mýtan um sjötta áratug-
inn sé svo sterk að jafnvel kynslóðir
sem ekki voru uppi á tímabilinu líti
til þess með velþóknun.
Fortíðarhyggja í kjölfar alda-
móta og hryðjuverkaógnar
Sumir vilja tengja fortíðarhyggjuna
sem birtist í iðnhönnun hryðjuverk-
unum í New York og Washington
þann n. september 2001. Fran(;oise
Serralta sem vinnur hjá Peclers Paris,
fyrirtæki sem gerir spár um þróun í
tísku og hönnun, telur þó að þessi til-
hneiging eigi sér lengri aðdraganda.
Fortíðarhyggju hafi þegar verið farið
að gæta skömmu fyrir aldamótin
2000 og atburðirnir 11. september
hafi eingöngu eflt hana. Viðvarandi
hryðjuverkahætta, slælegt ástand
efnahagsmála í Bandaríkjunum og
stríðið í Irak hafi aukið enn á fortíð-
arþrána en fleira komi til.
Karla J. Nielsson, prófessor í hönn-
unarsögu, telur að með því að skrey ta
heimili sín munum sem minna á
fortíðina ferðist fólk á vissan hátt
aftur í tíma. „Við búum til okkar
eigin tímavélar í formi fallegra inn-
anhússhönnunar þar sem við búum,
sofum, vinnum, skemmtum okkur
og eigum samskipti við þá sem
okkur þykir vænt um og virðum.
Við gerum það líka á þann hátt að
við förum ekki á mis við þægindi 21.
aldarinnar. Með vissri einföldun má
segja að við lítum til baka en lifum
nú á dögum,“ segir hún.
(gömlum stíl með
nútímaþægindum
Nielsson telur að ýmsar skýringar
séu á því af hverju fólk kjósi í svo
miklum mæli afturhvarf til for-
tíðar við hönnun heimila. „Svörin
eru margþætt og eftir því sem við
skiljum betur hvað á sér stað í huga
viðskiptavina okkar þegar þeir leita
til fortíðarinnar getum við betur
komið til móts við þarfir þeirra
og þrár,“ segir hún. „Ein af megin-
ástæðum þess að hönnun sem vísar
til fortíðarinnar er svo áberandi nú
á dögum er sú að hún gerir okkur
kleift að hafa stíl annars tímabils á
sama tíma og við byggjum, endur-
hönnum eða kaupum heimili sem
hafa öll nútímaþægindi,“ segir hún.
Nielsson bendir á að með því að
302 Series Phone
Þessi forláti sími var hannaður á fjórða
áratugnum en hefur nú gengið í endurnýj-
un lífdaga.
hanna í gömlum stíl spari hönnuðir
sér jafnframt tíma og orku sem ný
hönnun krefjist. Þá sé einfaldlega
betra að grípa til hönnunar sem
þegar hafi sannað gildi sitt.
Hún segir þó að sú hugmynd að
fólk leiti til fortíðarinnar vegna þess
að „lífið hafi verið einfaldara þá“ sé
nokkuð hæpin því að þrátt fyrir að
hún sé heillandi vildu víst fæstir
vera án nauðsynjahluta nútímans
á borð við farsíma, örbylgjuofna og
fjarstýringa. Nær lagi sé að tala um
að lífið hafi verið „fallegrá' þá.
Síðast en ekki síst telur Nielsson
að skýra megi þessa fortíðarhyggju
fólks að miklu leyti með ótta þess
við ýmsar meinsemdir nútímans
sem margir spá að versni enn frekar
Elmira Northstar kæliskápur
Straumlínulagaðir kæliskápar ekki ósvip-
aðir þeim sem tíðkuðust fyrr á tímum eru
nú æ algengari sjón í eldhúsum víða um
heim.
í framtíðinni. Fólk óttast innbrot,
tölvuveirur og umhverfisvá svo
nokkuð sé nefnt. „Fólkleggur mikið
á sig til að tryggja öryggi sitt,“ segir
Nielsson. „Við finnum til mikils
sálræns léttis með því að geta inn-
réttað heimili okkar með gripum
sem minna á þá tíma þegar lífið var
öruggara, hreinna og flekklausara.
Þetta dregur mjög úr ótta okkar við
framtíðina,“ segir hún.
Afturhvarf til fortíðar hefur verið áber-
andi f iðnhönnun á undanförnum árum.
Hönnuðir leita í auknum mæli fanga í
hönnun fyrri tíma og gildir einu hvort þeir
hanna brauðristar, bíla, eða myndavélar.
Húsgögn og heimilistæki sem bera svip
liðinna tíma eru æ algengari sjón á heim-
ilum fólks og á götum sér maður svipmót
gamalkunnugra bíla í nýjum. Stundum
vísa hönnuðir á látlausan hátt í tæki og
tól fortíðar en í öðrum tilfellum er um að
ræða mjög nákvæmar eftirlíkingar gripa
sem framleiddir voru fyrir mörgum áratug-
um. Þrátt fyrir gamaldagsútlit eru þessi
tæki þó yfirleitt búin þeim eiginieikum og
þægindum sem nútímafóikfer fram á.
Tímabil frelsis og áhyggjuleysis
Margir þessara hönnunargripa bera
svipmót sjötta áratugarins sem virð-
ist skipa sérstakan sess í hugum
margra, ekki síst Bandaríkjamanna.
Þetta tímabil vekur upp hugrenning-
artengsl við áhyggjuleysi og frelsi
The Coloradio
Coloradio-útvarpið kom fyrst á markað
árið 1951 og naut mikilla vinsælda á
sínum tíma. Nú hefur verið sett á markað
eftirlíking af þessu útvarpi sem er þó búið
nútímatækni. Sú er raunin með mörg ný
heimilistæki sem bera svipmót fortíðar-
innar enda vill fólk ekki fara á mis við
nútímaþægindi þrátt fyrir fortíðarhyggju.
Voigtlander
Jafnhliða hraðri framþróun stafrænna myndavéla um og eftir aldamótin kom fjöldi
filmumyndavéla á markað sem hannaðar voru í gömlum stíl. Japanski myndavélafram-
leiðandinn Cosina hóf til að mynda framleiðslu á einföldum filmumyndavélum undir
hinu gamalgróna nafni Voigtlánder sem litu út fyrir að hafa verið smíðaðar á sjötta eða
sjöunda áratugnum.
^Fermingarkökuna
færðu hjá okkur
Við prentum mynd af fermingarbarninu á marsipan
www.kokubankinn.is
Opnunartíminn er sem hér segir:
Mánud.til föstud. Kl.7.30 -18.00
Laugardag KI.8.00-16.00
Sunnudag kl.9.00 - 16.00
IKðkubanklnn
IBAK ARÍ (T ö N D l T O # I
Iðnbúð 2 - Garðabæ - sími: 565 8070
Auglýsinqc bla sr ð 510 3744 i6_
Sumt breytist aldrei
Á meðan iðnhönnuðir leita í
auknum mæli til fortíðarinnar
eftir hugmyndum og innblæstri
hefur önnur hönnun staðist tím-
ans tönn áratugum saman. Sumir
gripir virðast einfaldlega hafa verið
það vel hannaðir í upphafi að ekki
hefur reynst þörf á að breyta þeim
eða betrumbæta nema að litlu leyti.
Kitchen Aid og Kenwood Chef hræri-
vélar hafa til að mynda þjónað ís-
lenskum heimilum vel og dyggilega
lítil ítölsk bifhjól, betur
Hit.
A
leiddar hafa verið áratugum saman.
Allt er þetta dæmi um hönnun
sem hefur ekki aðeins staðið af sér
strauma tískunnar heldur oftar en
ekki einnig breytingar á þjóðfélags-
gerðinni og gildismati. Þegar sam-
félagið tekur jafnörum og miklum
breytingum og nú á tímum og ný
tækni verður úrelt á ógnarhraða er
gott til þess að vita að sumir hlutir
taki engum breytingum, falli úr
tísku eða úreldist.
Útlit Piaggio Vespa bifhjóla hefur Iftiö
breyst f gegnum tíðina.
Kitchen Aid hrærivélarnar eru annað
dæmi um hönnun sem staðist hefur
tfmanstönn.
þekkt sem vespur, sem framleidd
eru nú á dögum hafa ekki tekið
miklum breytingum í áranna rás.
Ekki má heldur gleyma þeim
nytjahluta sem við hand-
jafnvel daglega svo sem
Uoca Cola flöskunni og Zippo-
kveikjaranum eða flíkum á borð við
Converse All Star körfuboltaskóna
cud Levi’s gallabuxurnar sem fram-
tekið litlum breytingum frá þvf þeir voru
fyrst settir á markað á öðrum áratug
sfðustu aldar.