blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 33
blaðið LAUGARDAGUR 25. MARS 2006
VIÐTALI 33
ekki sé rétt að fylgja forskrift okkar
að því hvað sé þeim fyrir bestu. Þeir
verði að finna eigin leiðir til að ná
því fram,“ segir hann.
Greinileg kynslóðaskipti
Greinileg kynslóðaskipti hafa orðið
í þessum efnum í Miðausturlöndum
að mati Magnúsar Þorkels. „Fólk
sem er komið á sextugs og sjötugs-
aldur skilur ekki í ungu kynslóðinni.
Það spyr sig hvaðan þetta fólk komi
og af hverju það hugsi svona. Þessi
íslamvæðing á sér stað meðal unga
fólksins, fólks sem er af minni kyn-
slóð og yngra,“ segir hann.
íslamsvæðingin teygir
anga sína víða
Islamvæðingin einskorðast ekki að-
eins við Miðausturlönd heldur gætir
hennar víðar, meðal annars í samfé-
lögum múslíma í Evrópu.
„Ég held að Evrópubúar séu að
vakna upp við þann vonda draum
að þeir hafa ekki tekist á við þetta
vandamál, ekki tekist á við þær
breytingar sem eru að verða á sam-
félögum þeirra. Hugmyndir þeirra
um þjóðríkið hafa ekki breyst í takt
við Sreytingarnar í þjóðfélaginu,"
segir Magnús og bætir við að þeir
mættu læra af Bandaríkjamönnum
hvað þetta varðar.
í Bandaríkjunum er meira ráð
gert fyrir fjölbreytni og margsleitni
í samfélaginu. „Sjálfsmynd Banda-
ríkjamanna er ekki endilega bundin
trúnni. Maður er ekki annað hvort
Bandaríkjamaður eða múslími. 1
Evrópu er sjálfsmyndin meira tengd
til dæmis kynþættinum, upprun-
anum eða tungunni. Það flækist
fyrir fólki,“ segir Magnús.
Ekki gert ráð fyrir öðrum
trúarbrögðum í kerfinu
Magnús segir mörg dæmi þess að
þjóðríki í Evrópu hafi ekki undir-
búið stofnanir sínar fyrir að taka
tillit til óska og þarfa þeirra hópa
sem þangað hafa flust til frambúðar.
„Ef maður er múslími í Danmörku
þá er hvergi grafreitur fyrir músl-
íma. Þýskur múslími sem ætlaði
að fylla út skattframtalið sitt getur
krossað við hvort hann sé kristinn,
kaþólskur, lúterskur eða gyðingur ef
hann vill láta erfðafjárskatt renna
til kirkjunnar. Það er ekki mögu-
leiki fyrir múslíma," segir Magnús
og bætir við að oft sé ekki tekið tillit
til venja eða siða fólks af ólíkum trú-
arbrögðum í skólakerfinu og víðar
' í samfélaginu. „Ef trúfrelsi ríkir af
hverju eru þá ekki gerðar ráðstafanir
til þess að þeir sem aðhyllast önnur
trúarbrögð en meirihlutinn geti
haft aðgang að kerfinu með einum
eða öðrum hætti. Margir ungir músl-
ímar finnst þeir ekki komast áfram í
samfélaginu. Þetta er hluti af vanda-
málinu. Það er ekki aðeins að þeir
aðlagist ekki að þjóðfélaginu heldur
er það ekki í stakk búið til að taka á
móti þeim,“ segir hann.
Mikilvægt nám
Magnús segist hafa orðið var við auk-
inn áhuga á málefnum og menningu
Mið-Austurlanda á undanförnum
árum í kjölfar þeirra stórviðburða
sem tengjast þessum heimshluta
með einum eða öðrum hætti. „Áður
þótti þetta landsvæði framandi og
okkur óviðkomandi en nú upplifir
fólk að það séu tengsl á milli þess
sem er að gerast þar og þess sem
gerist hér og stjórnmál og menning
okkar eru samtengd. íslenskt efna-
hagslíf er að breytast heilmikið og
mörg fyrirtæki eru með aðstöðu er-
lendis eða viðskipti við ýmis lönd
víðsvegar um heiminn. Við vitum
það að við getum ekki farið hvert
sem er og ætlast til þess að hlutirnir
gangi eins fyrir sig og hér á íslandi,“
segir Magnús og bætir við að hann
telji mjög mikilvægt fyrir íslendinga
að hafa aðgang að námi sem þessu
hér á landi.
Efla þekkingu á menning-
arlegum fjölbreytileika
„Við vonumst til að fólk verði með-
vitaðra um menningarlegan fjöl-
breytileika víðs vegar um heiminn
og að það séu vissar venjur í gildi
sem verði að huga að áður en fólk
nálgast annað menningarsvæði eða
fólk af öðrum menningarslóðum. Ef
maður er í viðskiptum eða öðrum
samskiptum við þessi svæði er vita-
skuld bráðnauðsynlegt að hafa ein-
hverja tilfinningu fyrir því,“ segir
Magnús.
Máli sínu til stuðnings bendir
hann á að skopmyndamálið svo kall-
aða komi til með að hafa umtalsverð
áhrif á danskt efnahagslíf. „Ef það
hefði verið staðið aðeins öðru vísi
að málum hefði verið hægt að koma
í veg fyrir það. Þetta á eftir að gera
dönskum menningarstofnunum
og fýrirtækjum erfitt fyrir,“ segir
Magnús og bætir við að ef maður
ætli að selja fólki eitthvað geti maður
ekki móðgað það á sama tíma.
Múslímar mótmæla birtingu Jótlandspóstsins á skopmyndum af Múhameð spámanni f Belgíu. Magnús segir skopmyndamálið hafa
haft umtalsverð áhrif á danskt efnahagslíf sem koma hefði mátt f veg fyrir.
m BÚÐIN TILBOÐSVIKA
ÞAR SEM FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN
Vörtinúmer:
Örgjörvi:
Skjár:
Minni:
Haröur diskur:
Drif:
Skjástýring:
Netkort:
Mótald:
Tengi:
V/SA
AMDÍI
T
Tiirionfr*
Wfndows
- Digital Video Recorder og DVD
margmiðlunar spilari
- Innbyggður 80GB haröur diskur
(allt að 120 klst sjónvarpsupptaka)
- EPG (Electronic program guide)
- Online Veðurspá
- WebRadio (vefútvarp)
- Online Games (Internet leikir)
- Möguleiki á að uppfæra Firmware
Styður eftirfarandi skráartegundir:
Full DVD/MPEG-4/DivX/XviD/Audio <
Vorbis/JPEG Picture viewing
PRENTAR-SKANNAR-FJÖLFALDAR
Prentari:
Upplausn: 4800x1200dpi i lit, 1200dpi í svörtu
Direct Printing (PictBridge) og prentar út á iaöar pappirs
Mánaðamotkun: 3000 ras.
inni: Fiölföldun:
ilausn: 2400x4800dpi 30 bls. á min i svörtu
bed 24 í lit
Stækkun/minnkun 50-400%
HP Pavilion dv5052EA Notebook
FRABÆR VINNUVEL FYRIR KROFUHARÐA
KiSS DP-558 Margmiðlunarspilari
E327 - Stafræn myndavél
Photosmart 2575 - Fjölnotatæki
qsH
hp BÚÐIN ehf - business partner á íslandi - Brautarholti 10 - 14 - s: 568 5400