blaðið - 25.03.2006, Qupperneq 36
361 TZLVERAN
\GUR 25. MARS 2006 blaðið
I Halldóra hugsar upphátt
Hreyfingu í málefni aldraðra, takk!
Ég fagna ákvörðun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
um að leitast eftir samvinnu við samtök eldri borgara með
það fyrir augum að bæta þjónustu við þennan aldurshóp. Það
er afar brýnt að málefnum aldraðra verði gefinn sérstakur
gaumur, enda er staðan alls ekki viðunandi og síður en svo í
takt við kröfur nútímans. Það er með öllu forkastanlegt hvernig
örlög fólks vilja gjarnan verða þegar á elliárin er komið. Um er
að ræða fólk sem komið hefur okkur til manns og lagt línurnar
fyrir það velferðarþjóðfélag sem við búum í. Eldri borgarar eiga
það inni hjá okkur að við sköpum þeim festu og öryggi til þess
að geta notið ævikvöldsins og það á ekki að líðast að þeir fari á
mis við viðeigandi þjónustu í sinni heimabyggð. Hingað og ekki
lengra. Gerum eitthvað í málunum og setjum metnað okkar í að
verða öðrum til eftirbreytni í málefnum aldraðra.
Aidurinn færist yfir hjá öllum
Gleymum því ekki að öll eldumst við og ráðamenn dagsins í dag
eru þar engin undantekning. Það væri fróðlegt að sjá fulltrúa
sitjandi borgarstjórnar, ríkisstjórnar, eða annarra
yfirvalda húka hert í rekkju sinni þegar á elliárin
er komið og bölva sér í sand og ösku fyrir að hafa
ekki hagað málum á annan hátt. Látum þetta ekki
verða eitt af „hliðarverkefnum nefnda" eins og svo
mörg málefni sem rætt er um í óratíma án þess
að nokkuð gerist. Hús verður ekki reist á sandi
og því þarf að gera málefnalega, ítarlega og skyn-
samlega framtíðaráætlun. Ef við viljum blómleg
elliár verðum við að taka í taumana hið snarasta
og búa svo um hnútana að aldraðir geti lifað góðu
lífi, hvort heldur sem er í heimahúsi eða á hjúkr-
unarheimili. Hver og einn á að hafa val um að búa
eins lengi og hann kýs og hefurgetu til heima hjá
sér og er því mikilvægt að félagsþjónusta og heima-
hjúkrun komi til móts við óskir fólks eins og kostur
er. Þá þarf framboð á hjúkrunarrýmum að haldast
í hendur við þörf hvers tíma og þjónustu þarf að veita
þegar hennar er þörf - ekki löngu síðar eins
og biðlistakerfið gerir ráð fyrir núna.
Hér má bæta við að tími er kominn á
að hætt verði að tala um eldri kynslóðina
sem „hóp.“ Manni dettur yfirleitt í hug að
átt sé við börn í rimlarúmi þegar talað er
um 'veikburða hópinn sem á sér ekki við-
reisnar von'. Við virðumst gleyma því að
öll stöndum við jafnfætis hér á Móður
jörð og eigum stjórnarskrárvarinn rétt
til þess að njóta jafnræðis, burt séð
' frá aldri, kyni og öðru. Tökum okkur
því á og verum til fyrirmyndar í mál-
efnum aldraða!
Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Fylgist þú vel með fjölmiðlum?
Margir myndu segja að grundvall-
arforsenda þess að vera vel upp-
lýstur kjósandi og samfélagsþegn
sé að fyígjast vel með umræðum
og fréttum i þjóðfélaginu. í dag
eru ótal aðferðir til að fylgjast
með og það ætti því ekki að vera
erfitt. En hve vel fylgist þú með
fjölmiðlum og málefnum samtím-
ans? Taktu þetta próf og komstu
að því?
IHver hefur verið að gagn-
rýna skíthrædda þjóð
undanfarið?
a) Hallgrímur Helgason telur þjóð-
ina skíthrædda og leggja allt sitt
traust á ósýnilegan Moggaritstjóra.
b) Össur Skarphéðinsson metur að
þjóðin sé hrædd við Gilzenegger og
fegurð hans.
c) Andri Snær Magnason segir Is-
lendinga vera hrædda við framtíðina
og taka ákvarðanir í takt við það.
d) Davíð Oddsson seðlabankastjóri
lýsti því yfir að þjóðin væri hrædd
við gengisfellingu krónunnar.
2Utanríkisráðherra hvaða
þjóðar fundaði Geir H. Ha-
arde með í vikunni?
a) Bandaríkjanna.
b) Frakklands.
c) Danmerkur.
d) Þýskalands.
3Hvað heitir bankinn sem
gagnrýndi hagkerfi íslands
harkalega á dögunum?
a) Danske Bank
b) Danish Bank
c) Bank of Denmark
d) DenmarksBank
Hvaða íslendingi var
boðið að vera kynnir á
Eurovision?
a) Agli Helgasyni vegna viðamikillar
þekkingar á Grikklandi.
b) Ólafi Ragnari Grímssyni vegna
þess að hátíðinni þótti skorta
virðuleika.
c) Unni Birnu Vilhjálmsdóttur
því Grikkirnir heilluðust af þokka
hennar.
d) Gísla Marteini Baldurssyni
vegna þess að hann er ómissandi í
Eurovision.
Nýlega var grunnskólakenn-
ari í Kentucky í Bandaríkj-
unum rekinn. Fyrir hvað
var kennarinn rekinn?
a) Hann hrækti á nemanda.
b) Hann mætti fullur í vinnuna.
c) Hann felldi alla nemendurna í
skólanum.
d) Hann beit nemanda í bakið.
6Hvaða ráðherra nágranna-
þjóðar okkar sagði af sér í
síðustu viku.
a) Anders Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, vegna umróts-
ins eftir teikninga af Múhameð spá-
manni sem birtust í Jyllands-Posten
b) Laila Freivalds, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, sagði af sér í kjölfar ásak-
ana um að hún hafi logið um sinn
þátt í lokun vefsíðu sem ætlaði að
endurbirta teikningar af Múhameð
spámanni.
c) Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, vegna orðróms um mis-
notkun á almannafé.
d) Lars Lokke Rasmussen, innan-
landsráðherra Danmerkur, sagði
af sér vegna þess að hann var ekki
álitinn bregðast nægilega ört við
fuglaflensuhættunni.
Hverju hefur ungt fólk í
Frakklandi mótmælt harð-
lega undanfarið?
a) Samþykktri löggjöf sem gerir fyr-
irtækjum auðveldara að ráða og reka
ungt starfsfólk.
b) Lögum sem sett voru á um stúd-
entalán þar sem vextirnir eru mjög
háir.
c) Fjárskorti í framhaldsskólum.
d) Hækkunar á
almannasamgöngum.
Hvaða köttur féll frá nýlega
og komst í hcimspressuna?
a) Lotta var vinsæll og elsk-
aður köttur úr Breiðholtinu.
b) Frægasti köttur Bretlands, Hump-
hrey en hann var yfirmaður músaeft-
irlitsmála í forsætisráðuneytinu.
c) Lady, köttur Díönu prinsessu, féll
frá en það olli mikill sorg hjá sonum
hennar, Vilhjálmi og Harry.
d) Margrét, drottning Danmerkur
átti kött sem hún unni mikið og því
var sárt að sjá eftir honum í liðinni
viku.
9Rokkhátíð alþýðunnar-
Aldrei fór ég suður verður
haldin í þriðja sinn laug-
ardaginn 15. apríl Hvar eru hún
jafnan haldin?
a) Keflavík
b) Akureyri
c) Isafjörður
d) Ólafsvík
Teldu saman stigin:
1. a) 3 b) 2 c)4 d) 1
2. a)3 b)4 02 d)1
3. a)4 b) 1 03 d)2
4. a)2 b) 1 04 d)3
5. a) 3 b) 1 02 d) 4
6. a)3 b)4 01 d)2
7. a)4 b)2 03 d) 1
8. a)1 b)4 03 d) 2
9. a)3 b)2 04 d) 1
4-13 stig:
Þú veist nánast ekkert um hvafi er
aö gerast á íslandi eða f heiminum
og sennilega er þér nokk sama. Þótt
vissulega eigi aö taka lífinu létt þá er
Ifka nauðsynlegt aö vita eitthvað um
ástand mála. Þó ekki væri nema ein-
ungis til þess aö kjósa rétt f kosningum.
Væri þvf ekki tilvaliö að skoöa blöðin
einstaka sinnum, horfa á fréttirnar eða
lesa vefmiölana? Hver veit nema þú
gætir haft gaman af þvíl
14-21 stig:
Eitthvaö viröist þú fylgjast meö fjöl-
miölum en kannski er þaö bara óvart.
Þú virðist aö minnsta kosti ekki leggja
þig fram við þaö en eflaust verða
einhverjar fyrirsagnir á þínum vegi.
Endilega reyndu aö fylgjast aðeins
meira með þjóðlífinu enda er miklu
skemmtilegra að hafa eitthvað að
segja f veislum og á kaffistofunni.
22-29 stig:
Þaö er alltaf gott að fylgjast vel með
enda eigum viö sem kjósendur aö
veita stjórnmálamönnum aðhald og
þaö er einungis hægt ef viö fylgjumst
vel meö. Þú ert meö puttana á púlsin-
um og veist hvaö er um að vera. Þú leyf-
ir þér samt alveg aö slaka á og þú færö
ekki fráhvarfseinkenni þó þú hafir ekki
tfma til fylgjast með fjölmiðlum.
30-36 stig:
Þú fylgist greinilega afar vel meö
fjölmiðlum og lest sennilega öll blöðin
aftur á bak og áfram. Vel af sér vikið
enda er það mikilvægur partur af þvf
aö vera dyggur samfélagsþegn aö
fylgjast vei meö. Hitt er annað mál aö
þótt þú sleppir þvf aö lesa blöðin og
horfa á fréttirnar einstaka sinnum þá
mun himinn og jörö ekki farast. Það
er gott og blessað aö fylgjast meö en
ekki gleyma þvf aö lifa Iffinu, án frétta
einstaka sinnum.