blaðið - 25.03.2006, Page 38
381 VIKAN
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaöið
Camino Nuevo, fátækrahverfi í Zamboanga borg á Filippseyj-
um, var ekki sjón að sjá eftir að eldsvoði lagði um fimmtán
hundruð kofa í eyði. Stjórnvöld segja að engum hafi orðið
meint af.
Amit, sjö ára, og Orel, fimm ára, berjast hetjulegri baráttu
við krabbamein. Schneider barnaspítalinn í Petah Tikva
býður listameðferð fyrir sjúklinga sína til að gera læknismeð-
ferðina vinalegri.
Hvirfilbylurinn Larry hlýddi engum hraðatakmörkum þegar
hann fór yfir Ástralíu í gær og eyðilagði það sem stóð í vegi
hans.
Hermaður í 22. hersveit Georgíu kvaddi land sitt þar sem
herdeildin hans var á leið frá Tblisi í heimalandinu til Bagd-
ad í (rak.
Fallvaltleikinn
um allan heim
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mannsins til að ganga þannig frá hlutum að lífið
verði auðveldara, skemmtilegra og innihaldsríkara gengur ekki alltaf upp. Einn
neisti á Filippseyjum varð til þess að fjöldi fólks missti húsnæði sitt; óveður setti
strik í reikninginn í Ástralíu og börn berjast við banvæna sjúkdóma.
Agnar Burgess tók saman
Á erfiðum tímum leita margir til trúarinnar til að sækja andlegan styrk og leiðbeiningar. Benedikt
XVI páfi veitir trúuðum þennan styrk í hverri viku á torginu fyrir utan Péturskirkjuna í Róm.
Þrjú þúsund verkamönnum við Wembley, þjóðarleikvang Eng-
lendinga, varð bilt við í byrjun vikunnar þegar þak hans féll um
rúman metra.
Það þykir nánast daglegt brauð núorðið að bíll spryngi í Bagd-
ad. A.m.k. fimmtán manns létust þegar maður ók bíl sínum að
höfuðstöðvum lögreglunnar í borginni og sprengdi hann svo.
fsraelsk kona þarf að leita í súpueldhús til að fá næringu. Fá-
tækt er vaxandi vandamál í (srael og eitt aðalmálið í komandi
kosningum.
Ólöglegur innflytjandi á eyjunni Möltu heldur í girðinguna og vonast til að komast útfyrir hana Kumpánarnir Tony Blair, Tony Benn og Gordon Brown fylgdust
einhvern daginn. Yfirvöld á Möltu krefjast þess að öllum innflytjendum sé haldið í stofufangelsi sposkir á svip með mótmælum í Lundúnum f vikunni.
þar sem fjöldi þeirra gæti haft slæm áhrif á efnahag þjóðarinnar.
Það getur verið þrautin þyngri að keppa í listdansi á
skautum eins og þær Andrea Kreuzer f rá Austurríki
og Sasha Cohen frá Bandaríkjunum fengu að prófa á
dögunum á heimsmeistaramótinu f íþróttinni. Báðar
féllu þær á æfingum sínum en Elena Sokolova naut
þess vel að láta sftt hárið leika í miðflóttaraflinu.