blaðið - 30.03.2006, Qupperneq 16
16 I VIÐTAL
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö
Bla6i6/Steinar Hugi
Nýlega var frumflutt í Keflavík
messa eftir Gunnar Þórðarson,
önnur messan sem þessi þekkti
tónlistarmaður semur á ferli
sínum. „Fyrri messuna var ég
beðinn um að semja fyrir Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði. Mér
fannst það furðuleg bón en um
leið var þetta áskorun og ég
skellti mér í verkið. Eftir það fór
ég að kynna mér kirkjutónlist og
síðan varð til þessi nýja messa,“
segir Gunnar. „Það var visst
frelsi að semja hana. Ég var laus
við þá kvöð að semja þriggja mín-
útna popplag sem ætti að verða
vinsælt. Ég þurfti ekki að svara
markaðnum.
DA NIS H DESIGN !
Ég samdi messuna mikið til í húsi
sem ég á Hólmavík því þar hef ég al-
gjöran frið. Þegar maður vinnur að
svona stóru verki verður maður að
einbeita sér, maður getur ekki bara
hlaupið í það við hentugleika milli
ess sem maður gerir eitthvað annað.
g keypti þetta hús til að geta unnið
í friði. Ég keypti það reyndar líka af
tilfinningasemi því fjölskyldan mín
átti húsið.“
Þú fluttir frá Hólmavík til Kefla-
vikur átta ára gamall. Var ævintýri
að koma til Keflavíkur?
„Já, óneitanlega voru það viðbrigði
að koma þangað úr fámennu fiski-
inannasamfélagi. Ég hafði til dæmis
1
aldrei áður séð fótboltaleik. Ég var
ekki valinn í liðið í barnaskólanum
í Keflavík af því ég greip boltann
alltaf með höndunum. Ég skildi
ekki leikinn. Þetta var erfitt fyrst en
svo aðlagaðist ég.“
Prúðir og feimnir Hljómar
Þú ólst upp við Kanaútvarpið. Átti
það þátt í að móta tónlistaráhuga
þinn?
„Mér leiddust söngtímar í barna-
skóla og hafði ekki áhuga á tónlist.
Það var ekki fyrr en ég var þrettán
ára sem áhuginn vaknaði og þá var
það í gegnum Kanaútvarpið. Eg elsk-
aði tónlistina sem ég heyrði í útvarp-
inu. Eftir það fór ég í skólahljómsveit
og síðan í aðrar hljómsveitir."
Varðstu áþreifanlega var við herinn?
„Éghófvinnu uppi ávelli 17 ára, dag-
inn eftir að ég tók bílprófið. Ég vann
við að keyra yfirmennina milli staða.
Mér líkaði ekkert of vel við Kanann.
Mér fannst þessir menn líta niður
á okkur. Þeir kölluðu okkur „moj-
acks“. Ég vissi ekki hvað það þýddi
en ég vissi að það var eitthvað niður-
lægjandi. Við lítum líka niður á þá.
Þannig að andúðin var gagnkvæm.
Ég tók ekki þátt í mótmælum
gegn herstöðinni en var aldrei hrif-
inn af veru hersins. Ég var mótaður
af vinnu minni fyrir herinn og þar
hafði ég séð menn sem sýndust ekki
vera mjög vinveittir Islendingum. Ég
KVIK opnar verslun á Islandi
31. mars 2006 opnar Kvik glæsilega verslun að Skútuvogur I 1A í Reykjavik.
Við hjá Kvik teljum að „allir eigi rétt á flottu eldhúsi" og við seljum nýtískuleg eldhús og
baðherbergi á lágu verði í meira en 80 verslunum um alla Evrópu. Einstök hugmynd Kvik
felur í sér danska hönnun í hæsta gæðaflokki á lægsta verði sem býðst á markaðnum og
skjótri afgreiðslu á draumaeldhúsinu þínu.
Komdu í heimsókn um opnunarhelgina föstudaginn 31. mars til sunnudagsins 2. apríl 2006
og taktu þátt í keppni um gjafakort frá Kvik að andvirði 100.000,-.
man eftir að hafa verið á Laugaveg-
inum þegar löggan var að níðast á
Birnu Þórðardóttur. Það var mikil
reiði í fólki vegna þess en aðrir sögðu
að hún ætti þetta skilið.“
Ertu pólitískur?
„Ég er pólitískur sveimhugi. Einn
daginn er ég mjög vinstri sinnaður
og annan daginn er ég það ekki. Að
þessu leyti er í mér mótsögn.“
Þú varst í einni vinsœlustu hljóm-
sveit landsins fyrr og síðar, Hljómum.
Hvernig var viðhorffullorðnafólksins
tilykkar?
„Þegar Hljómar fóru í fyrstu
tónleikaferð sína um landið var ís-
ALLIR EIGA RÉTT Á FLOTTU ELDHÚSI
kvik