blaðið - 30.03.2006, Síða 17
blaðið FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006
VIÐTALI 17
lenska sjónvarpið ekki komið til
sögunnar. Þá var hárið á hljómsveit-
armeðlimum sítt og mikið. Flestir
höfðu aldrei séð okkur og fólk kom
úr sveitunum bara til að horfa á
okkur. En það voru aldrei mikil læti
í okkur. Við vorum prúðir og óskap-
lega feimnir."
Er erfitt að höndla miklar vinsœldir?
„Það er ekkert erfitt að höndla
þær rétt. Menn verða bara að vera
á jörðinni og láta hólið ekki stíga
sér til höfuðs. Ég hef reynt að halda
jarðsambandinu. Það eru allir hé-
gómlegir og ég veit að hégóminn er
þarna en maður verður að halda ró
sinni."
Hassið og lífsstíllinn
Eiturlyfjaneysla var útbreidd á hippa-
tímanum. Áttirðu einhvern tíma í
baráttu við eiturlyf?
„I sjö til átta ár var ég fremur
virkur á því sviði. Það byrjaði á því
að við Hljómarnir vorum í túr úti í
Svíþjóð þar sem rótari bauð okkur
upp á hass. Þá var hass í tísku og
enginn þótti maður með mönnum
nema hann hefði prófað það. Mórall-
inn var þannig. Eftir þessa reynslu
sá vinur okkar uppi á velli um að
útvega okkur hass. Hann átti alltaf
nóg. Þannig gekk þetta í nokkur ár.
Trúbrotstímabilið einkenndist líka
af þessari neyslu.“
Hafði þessi neysla áhrif á
sköpunargáfuna?
„Já, ég var ekki góður á þessum
tíma. Það var útbreitt viðhorf að
ég væri betri en ég hefði verið og ég
trúði því sjálfur að ég væri miklu
betri. Það var misskilningur. Þegar
ég lít til baka á það sem ég var að
semja þá er það ekki mjög gott. Sumt
er alveg hræðilegt.“
Fórstu ísterkari efni en hass?
„Við prófuðum LSD í tvö eða þrjú
skipti. Áhrifin af því voru skrýtin og
öðruvísi en af hassinu. Ég sá ofsjónir
og mikla litadýrð. Ég slapp við að
fara á það sem kallað er slæmt tripp.
En ég fann strax að LSD var efni sem
menn ættu ekki að leika sér að.“
Ákvaðstu bara einn daginn að
hcetta?
„Þetta var skemmtilegt fyrst en
svo hætti það að vera skemmtilegt
og várð æ verra. Þetta var lífsstíll en
ég var ekki háður hassi á þann hátt
að ég þyrfti á því að halda á hverjum
degi. En ég var afskaplega feginn
þegar ég hætti. Það var ekki erfitt að
taka þá ákvörðun.“
I einsmannsvinnu
Þú dvaldir um tíma í Englandi og
Bandaríkjunum og vannst að tónlist.
Dreymdi þig um heimsfrcegð?
„1 og með en samt tók ég þá
drauma aldrei of alvarlega. Ég fór
aldrei rúntinn á milli umboðsskrif-
stofa. Auðvitað hefði verið gaman
að ná góðum árangri erlendis en ég
er ánægður hér á landi og fegnastur
þegar ég er heima hjá mér.“
Ertu mikillfjölskyldumaður?
„Já, ég er það. Ég hef átt sömu kon-
una í tuttugu og fimm ár. Hún gefur
mér svigrúm og skilur að stundum
verð ég að vera einn. Ég er í eins-
mannsvinnu. Ég hef aldrei samið
með öðrum að neinu ráði. Ég verð
að vera einn þegar ég er að semja og
vinna úr hugmyndum. Þetta er ein-
manalegt starf. Ég kann ekki á hóp-
vinnu nema þá í hljómsveit."
Ertu einrœnn eða ertu félagsvera?
„Ég held að ég sé fremur einrænn
og hafi orðið einrænni með árunum.
Kannski af því að ég er ekki lengur í
hljómsveit.“
Var ekki stundum erfitt að vera í
hljómsveit og þurfa að halda sam-
vinnunni gangandi?
„Að vera í hljómsveit er eins og
að vera í hjónabandi. Það eru ekki
margar hljómsveitir sem endast
lengi en sumar þó. Samstarfið í
Trúbrot tók stundum á og þar voru
alltaf bölvuð læti. Engin bönd héldu
Kalla vini mínum Sighvatssyni. Ef
hann ætlaði sér eitthvað þá gerði
hann það. Einu sinni áttum við að
spila um helgi og á þriðjudegi fyrir
tónleikana var mér tilkynnt að Kalli
væri hættur í hljómsveitinni og far-
inn til Frakklands. Hann kvaddi
hvorki kóng né prest. Það var alltaf
svo mikið að gerast hjá Kalla.“
Eiga bestu listamennirnir sem
þú hefur unnið með eitthvað
sameiginlegt?
„Já, þeir bestu eru fremur hógvært
fólk. Þeir þurfa ekki að nota hroka
til að koma sér áfram. Þeir eru góðir
í því sem þeir eru að gera og vinnan
skiptir þá máli.“
Það kom mér á óvart þegar ég las að
Gustav Mahler vœri uppáhaldstón-
skáldið þitt. Afhverju Mahler?
„Fyrir um fimmtán árum sá ég
kvikmyndina Dauðinn í Feneyjum. I
upphafi myndarinnar sjáum við Fen-
eyjar meðan tónlist er leikin. Mér
fannst tónlistin afar áhrifamikil og
komst að því að hún var eftir Mahler.
Þannig rann ég á lyktina. Ég stúder-
aði tónlist Mahlers mikið og las um
hann. Hann hafði mikla þekkingu
á möguleikum hljómsveitarinnar
og í tónlist hans er mikil dramatík.
Hann gagntók mig. Eitt sumar fór ég
til Austurríkis og heimsótti alla þá
staði þar sem hann bjó. Ég vildi sjá
þá með eigin augum. Svo eru önnur
tónskáld sem ég held sömuleiðis
mikið upp á, eins og Tjaikovsky
og Rachmaninoff og fleiri og fleiri.
Núna á seinni árum grauta ég meira
í klassískri tónlist en poppinu. Það
er aldurinn. Það er bara aldurinn.“
Ánægður þegar ég sem gott lag
Hvað ertu ánægðastur með á
ferlinum?
„Ég er ánægður þegar ég sem gott
lag. Hér og þar eru góðar perlur.
Um 1981-1982 komu mörg af mínum
bestu lögum. Ég held að ástæðan sé
að ég var svo ástfanginn af konunni
minni að ég vildi heilla hana sem
mest. Ég hef enga aðra skýringu.“
Hefurðu fengið slœma gagnrýni áferl-
inum eða hefur þetta verið beinn og
breiður vegur?
„Ég hef fengið harða gagnrýni. Ég
man sérstaklega eftir gagnrýni sem
ég fékk 1982 eða 1983. Þar stóð að nú
væri kominn tími fyrir mig til að
hætta, þetta væri orðið alveg hrika-
legt. Ég tók þetta inn á mig og velti
því fyrir mér hvort eitthvað væri til í
þessu. Ég á til svona viðkvæmni. Ég
hef reynt að lesa ekki gagnrýni en
gefst svo upp og les hana.“
Finnst þér sjálfum að þú sértgóður?
„Stundum er ég góður. Stundum er
ég sæmilegur. Þetta er samt þannig
vinna að maður ræður ekkert við
hana. Suma daga kemur ekki neitt,
aðra daga er mikið flæði. Svo maður
situr bara og bíður eftir að eitthvað
komi.“
Bíður eftir innblœstri?
„Já, bíður eftir innblæstri. En það
er í þessari vinnu eins og annarri að
þeir fiska sem róa.“
kolbrun@bladid.net
(DUX)
Sumartilboð
Eftirsótt lífsgæði
DUX 1001 Original 90x200 cm og Duxiesta yfirdýna AÐEINS 99.000 verðáður 149.370
Hjónarúm 180x200 cm (2x90x200 cm) og heil yfirdýna AÐEINS 198.000 verð áður 297.000
TAKMARKAÐ MAGN
Sérfræöingur frá DUX í Svíþjóö verður í versluninni
dagana 7. og 8. apríl
ADVANCED TECHNOLOGY IN SLEEPING
Ármúla 10 • Sími: 5689950
www.duxiana.com