blaðið - 26.04.2006, Page 4
4 I FRÉTTXR
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaðið
VÍKURVAGNAKERRURNAR
ÞESS/VR STERKU
Allar gerðir af kerrum
Allir hlutir til kerrusmíöa
Segir R-listann reyna að fela
skuldasöfnun borgarinnar
Afkoma Reykjavíkurborgar betri samkvæmt ársreikningi en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Víkurvagnar ehf • Dvergshöfða 27
^Sími 577 1090 • www.vikurvagnar.is j/
KOKOS-SISAL TEPPI !
Falleg - sterk - náttúruleg
Verð frá kr. 2.840,- pr. m2
Suöuriandsbraut 10 r
®™“35600 Vstrond
www.simneUs/strond ' ztur.
Rekstrarhalli Reykjavíkurborgar
nam 125 milljónir króna á síðasta ári
samkvæmt ársreikningi Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 2005 sem kynntur
var í gær. Þetta er 650 milljóna króna
betri afkoma en áætlanir gerðu ráð*
fyrir. Vilhjálmur Vilhjálmsson, ódd-
viti sjálfstæðismanna i borginni,
segir segir R-listann beita bókhalds-
brögðum til að fela skuldasöfnun.
Hann segir þörf á aðhaldi í rekstri og
virkari íjármálastjórn.
Lægri rekstrarkostnaður
Samkvæmt ársreikningi Reykjavík-
urborgar sem kynntur var í gær nam
rekstrarhalli borgarsjóðs 125 millj-
ónum króna. Rekstrarhallinn er þó
mun minni en áætlanir gerðu ráð
fyrir en þar var reiknað með halla
upp á 776 milljónir króna. Helstu
ástæður fyrir betri afkomu má m.a.
rekja til þess að skattatekjur voru um
300 milljónum króna hærri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir og rekstrarkostn-
Betra verð
aður lægri.
Alls skilaði
rekstur borgar-
sjóðs og fyrirtækja
Reykjavíkurborgar
um 5 milljarða af-
gangi á síðasta ári.
Þá lækkuðu
skuldir borgarsjóðs
um 605 milljónir
króna og hreinar skuldir um tæpan
1,5 milljarð. í árslok námu skuldir
borgarsjóðs rúmum 21 milljarði sem
samsvarar um 184 þúsund króna
skuld á hvern íbúa.
í ársreikninginum kemur einnig
fram að skuldir Orkuveitunnar hafi
hækkað um 10 milljarða vegna virkj-
anaframkvæmda og nema þær nú
rúmum 78 milljörðum.
Sívaxandi skuldasöfnun
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir
ársreikninginn sýna fram á sívax-
andi skuldasöfnun borgarinnar.
Hann gagnrýnir R-listann fyrir að
reyna að fela skuldasöfnun með
millifærslum milli borgarsjóðs og
Orkuveitunnar. „Það er búið að vera
færa á milli úr borgarsjóði yfir til
Orkuveitunnar og það er mjög erfitt
að átta sig á því hvað er hvað. Þetta er
fært út og suður. En þegar á heildina
er litið er ljóst að skuldir borgarinnar
eru komnar i 112 milljarða.“
Vilhjálmur segir einkennilegt að
á sama tíma og góðæri hafi ríkt hér
landi hafi skuldir borgarinnar auk-
ist. Hann telur þörf á meiri aðhaldi
í rekstri borgarinnar. „Á sama tíma
og við búum við aukinn hagvöxt,
litla verðbólgu og lítið atvinnuleysi
aukast skuldir borgarinnar. Otsvarið
er komið í hámark og fasteigna-
skattar hafa hækkað. Það hefur ekki
ríkt nógu mikið aðhald í rekstri og
stjórnsýsla borgarinnar hefur þan-
ist út með tilheyrandi kostnaði. Það
þarf daglega ráðdeild í rekstri borgar-
innar en ekki hókus pókus aðgerðir.“
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Frjálslynda flokksins, kaus ekki
að tjá sig um málið að svo stöddu.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson.
Reuters
Teygt á fyrir nautaat
Spænski nautabaninn Jesulin de Ubrigue veit sem er aö ótækt er aö kljást viö stór naut án þess aö teygja vel á fyrst. Hann tókst á
viö eitt slíkt í Maestranza-hringleikahúsinu í Sevilla á Spáni á sunnudag.
Varnarmálin rædd áfram
mbl.is | Varnarviðræður íslendinga
og Bandaríkjamanna hefjast í utan-
ríkisráðuneytinu í dag samkvæmt
upplýsingum úr ráðuneytinu.
Síðasti fundur um varnarmálin
milli Bandaríkjanna og íslands
átti sér stað í utanríkisráðuneytinu
þann 31. mars síðastliðinn en þá
kom hingað til lands 26 manna sendi-
nefnd. Viðræðunefnd íslands verður
sú sama og á fundinum í mars og
fer Albert Jónsson sendiherra fyrir
henni. Ekki liggur fyrir hverjir verða
í sendinefnd Bandaríkjamanna en
hún mun þó verða fámennari en sú
sem kom hingað í mars.
Fram kom eftir fundinn í mars, að
Bandaríkin væru að vinna að vinna
að áætlun um varnir Islands í sam-
ræmi við varnarsamning íslands og
Bandaríkjanna frá árinu 1951. í þeirri
vinnu yrði m.a. metin varnarþörf
Islendinga eftir að F-15 orrustuþot-
urnar hafa verið fluttar á brott. Þær
verða farnar í síðasta lagi í lok septem-
ber. Búast má við að bandaríska sendi-
nefndin kynni áætlunina eða upplýsi
íslensku sendinefndina nánar um
hana á fundinum í dag. Fundurinn
í dag verður þó ekki sá eini í þessari
viðræðulotu þvi ákveðið hefur verið
að funda einnig á morgun.
SJONARHOLL
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
565-5970
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslunin
norðan Alpafjalla
Þar sem gæðagleraugu kosta minna