blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 6
6 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaAÍð
Útvarpsréttarnefnd verði
virk sem eftirlitsstofnun
Þorbjörn Broddason, prófessor við HÍ, segir að ný fjölmiðlalög muni
ekki baka þeim sem í fjölmiðlarekstri standa mikil vandræði.
Þorbjörn Broddason
Nýtt frumvarp um fjölmiðlalög er
unnið af yfirvegun og vandvirkni,
að sögn Þorbjörns Broddasonar, pró-
fessors í fjölmiðlafræði við Háskóla f s-
lands. Breyting á samkeppnislögum
vekur að hans mati einna mesta eftir-
tekt og hann segir mikla ábyrgð vera
setta á herðar Samkeppniseftirlitsins.
,Þeir sem sömdu frumvarpið hafa
greinilega verið að reyna að finna
skynsamlega afmörkun í þessum
efnum þannig að ekki sé verið að
misbjóða þeim sem vilja eyða sínum
fjármunum og hafa sína afkomu
af því að reka fjölmiðla. Á meðan
markaðshlutdeildin er undir þriðj-
ungi þurfa menn engar áhyggjur að
hafa.“ Þorbjörn segir erfitt að líkja
þessum reglum við einhverskonar
afarkosti. „Auðvitað þrengir þetta að
einhverjum en þetta á ekki að baka
neinum manni stóran vanda.“
Aðspurður um samanburð á
þessu frumvarpi við sambærileg lög
í öðrum löndum segir Þorbjörn að
næstum allar þjóðir setji sér einhvers-
konar lög í þessum efnum. „Það er
mjög óvíða þar sem þetta er látið reka
á reiðanum, eins og hefur tíðkast hér
álandi. En efvið ætlum að líkja þessu
frumvarpi við lög annars staðar
lendum við í vandræðum því hver
einasta þjóð hefur valið sína eigin
leið. Ég sé ekkert athugavert við það
að ríkið setji rammalöggjöf í þessum
efnum sem ætti ekki að stoppa neinn
í því efni að hafa afkomu sína og lífs-
nautn af því að reka fjölmiðil," segir
Þorbjörn Broddason.
Mikil ábyrgð Samkeppniseftirlitsins
Sá hluti laganna þar sem vikið er að
heimild Samkeppniseftirlitsins til
þess að koma í veg fyrir samruna á
fjölmiðlamarkaði hefur vakið athygli.
,Þetta leggur stofnuninni mjög mikla
ábyrgð á herðar. Ég sé þetta sem
svona varaskeifu sem setur undir
þann leka ef samþjöppun fer að mynd-
ast á milli fjölmiðla, jafnvel þó hún
nái ekki þessu þriðjungsmarki. Ef að
Samkeppniseftirlitinu sýnist sem svo
að samþjöppun sé að verða meiri en
góðu hófi gengir þá getur það gripið
til sinna ráða og ógilt samruna.“
En er þá ekki verið að fela Sam-
keppniseftirlitinu mikil völd, og er
það rétta stofnunin til þess að meta
hvort samruni stofni tjáningarfrelsi,
frjálsri skoðanamyndun almennings
eða fjölbreyttu fjölmiðlaframboði i
hættu?
„Þetta er gild spurning en það er
gert ráð fyrir því að þetta mat eigi að
fara fram í samráði við útvarpsréttar-
nefnd. Útvarpsréttarnefnd er reyndar
aðeins skipuð lögfræðingum, en
henni er veitt heimild til þess að ráða
til sín sérfræðinga." Þorbjörn segist
ekki trúa öðru en að nefndin geri það.
„Annars verður þetta hvorki fugl né
fiskur. Ég treysti á að útvarpsréttar-
nefnd vaxi upp í það að verða virk eft-
irlits- og ráðgjafarstofnun. Mér finnst
engin ástæða til að ætla annað en það
að þetta geti allt farið fram með friði
og spekt og i jákvæðum anda.“
Nýttu þér gjöfina
og 10% afslátt að auki í Bóksölu stúdenta
GOTT ÚRVAL, GOTT VERÐ
Við tökum þér og ávísuninni þinni fagnandi dagana 19. apríl - 3. maí.
Auk þess að veita 1000 króna afslátt samkvæmt skilmálum Þjóðargjafarinnar
bjóðum við nú, sem fyrr, 10% afslátt af öllum íslenskum bókum.
Kynntu þér úrvalið i versluninni eða á www.boksala.is.
bók/did. /túdei\ta,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut - sími: 5 700 777 - www.boksala.is
Spá samdrætti í
þjóðarbúskapnum
Verðbólgan í ár verður 5,9% sam-
kvæmt þjóðhagsspá fjármálaráðu-
neytisins fyrir árin 2006 og 2007
sem birt var í gær. Gert er ráð fyrir
að brottflutningur varnarliðsins
muni hafa lítilsháttar áhrif á hag-
vöxtinn til lækkunar. Spáð er sam-
drætti á komandi árum og að hag-
kerfið leiti jafnvægis.
Lítið atvinnuleysi
Fjármálaráðuneytið birti í gær vor-
skýrslu um þjóðarbúskapinn sem
hefur að geyma nýja þjóðhagsspá
fyrir árin 2006 og 2007 ásamt fram-
reikningi til ársins 2010. í spánni
er gert ráð fyrir áframhaldandi
þenslu á þessu ári með tilheyrandi
viðskiptahalla upp á 14,4% af lands-
framleiðslu. Til samanburðar má
nefna að á síðasta ári nam viðskipta-
hallinn 16,5% af landsframleiðslu.
Skýrsluhöfundar spá því að verð-
bólgan verði um 5,9% á þessu ári og
framleiðsluspenna verði meiri en
hingað til hefur verið gert ráð fyrir.
Þá áætla þeir að landsframleiðslan
aukist um 4,8% og atvinnuleysi
verði um 1,6% af vinnuafli.
Ekki er gert ráð fyrir því að brott-
flutningur varnarliðsins muni hafa
meiriháttar áhrif á hagvöxtinn til
lækkunar.
Dregur úr innflutningi
Á næstu árum gera skýrsluhöf-
undar ráð fyrir samdrætti í þjóð-
arútgjöldum m.a. í kjölfar aðhalds-
samrar hagstjórnar undanfarin ár
og lok yfirstandandi stóriðjufram-
kvæmda. Verðbólgan mun verða
um 3,5% á næsta ári og haldast á bil-
inu 2 til 2,5% til ársins 2010. Þá mun
draga verulega úr innflutningi strax
á næsta ári og því spáð að viðskipta-
hallinn verði þá kominn niður í
7,7% af landsframleiðslu. Ekki gert
ráð fyrir því að atvinnuleysi aukist
mikið þrátt fyrir samdrátt.
Að mati skýrsluhöfunda eru
helstu óvissuþættir í þjóðhags-
spánni gengi krónunnar og frekari
stóriðjuframkvæmdir.
Athugasemd
I frétt Blaðsins frá því í síðustu
viku um áhrif gengislækkunar
á gjaldskrá leigubíla mátti mis-
skilja að allar sendibílastöðvar
á höfuðborgarsvæðinu væru
búnar að hækka gjaldskrá sína.
Forsvarsmenn Nýju sendibíla-
stöðvarinnar vilja benda á að
þeir hafa ekki hækkað gjaldskrá
sína. Því er hér með komið á
framfæri.
Misskilningi
eytt
Viðtal Blaðsins
22.4. síðastlið-
inn við Eyþór
Arnalds mátti
skiljaáþannveg
að hann væri
einstæður faðir.
Það er hann
ekki og hefur ekki verið. Börnin
okkar tvö eru í forsjá minni.
Móeiður Júníusdóttir.
KONICA MINOLTA Laserprentarar fyrir
kröfuharða
PagePro 1400W fyrirferðalítill
s/h hágæðaprentari -16 bls/mín.
Tilhnft<ítrprA- TQ Qflfl -
• Fullt verð: 49.900.-
Magicolor 2400W hágæðaprentari fyrir s/h og lit “Simitri” litflæði tryggir skerpu og þéttleika útprentunar.
Fyrir stærri notendur
Magicolor 5450D X
Öflugur hágæðalitaprentari
með PhotoArt gæðum,
prentar báðum megin á A4.
Prismlaser Technlogy
UIUIFANG
TÆKNIBÚNAÐUR
UMFANG-TÆKNIBÚNAÐUR • SÍÐUMÚLA 12-108 REYKJAVÍK
SÍMI 510 5520 • umfang@kjaran.is