blaðið - 26.04.2006, Qupperneq 10
10 IFRÉTTXR
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 MaAíð
Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til!
564 0950
Sérsmíói í jeppann Töff sánd i sportbílinn
Horfttil Mekka?
Vandi þess að
vera múslimi
á sporbaug
Malasíska geimferðarstofnunin,
Angkasa, efndi til tveggja daga
ráðstefnu í gær um þau vanda-
mál sem fylgja þvi að vera mús-
limi í geimnum. Tilefni ráðstefn-
unar er fyrirhuguð geimferð
tveggja malasískra geimfara
með rússnesku geimfari í náinni
framtíð. Geimferðastofnunin
hefur boðað 150 vísindamenn,
trúarleiðtoga og menntamenn
víðsvegar að til Kuala Lumpur,
höfuðborgar Malasíu, til þess að
finna lausn á þeim vandamálum
sem tengjast því að fara eftir trú-
arsiðum íslam á sporbaug um
jörðu.
Meðal þeirra vandamála eru
hvernig að múslimar eigi að
útfæra bænastund sína, sem er
fimmsinnumá dag á jörðu niðri
og er tímasetning hennar miðuð
við afstöðu sólar. Þetta getur
verið vandasamt þegar geimfar
ferumhverfisjörðina íósinnum
á hverjum sólarhring. Auk þess
getur verður erfitt að snúa ávallt
til Mekka í geimfari sem ferðast
á 28 þúsund kílómetra hraða á
klukkutstund. Ráðstefnugestir
munu taka önnur álitamál til
umræðu.
Það að Rússar ferji malasíska
geimfara er hluti af samningi
sem stjórnvöld í Kuala Lumpur
gerðu við Rússa fyrir nokkru.
Malasíski herinn fjárfesti 18 rúss-
neskum orrustuþotum fyrir um
einn 1 milljarð bandaríkjadala
og tvö sæti um borð í rússneskri
geimflaug.
Keuters
Embættisverk fegurðardrottningar
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, sem ber titilinn ungfrú heimur, heimsótti barnaspítala í Varsjá í Póllandi í gær. Meðal embættisverka feg-
urðadrottninga er að ferðast um heiminn til að gleðja litil börn.
George Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsti stefnu sinni í orkumálum í Washington D.C 1 gær.
inni á olíumörkuðum en mikill ótti
er innan þeirra raða um að þeir tapi
meirihluta í fulltrúa- og öldungunga-
deild Bandaríkjaþings i þingkosn-
ingunum í nóvember. Hátt olíuverð
hefur orðið að bitbeini í kosninga-
baráttunni. Hafa demókratar meðal
annars kennt stefnu Bush-stjórn-
arinnar um hið háa olíuverð. Veik
staða repúblikana í Bandaríkjunum
er meðal annars rakin til gríðarlegra
óvinsælda forsetans, en samkvæmt
nýjum skoðanakönnunum eru að-
eins 32% Bandaríkjamanna ánægð
með störf hans.
Bandaríkin ráða yfir miklum
varaforða of hráolíu sem er ætluð til
nota ef raskanir verða á alþjóðlegum
olíumörkuðum vegna ófyrirséðra at-
vika. Forsetinn lýsti þvi yfir í ávarpi
hjá Samtökum um endurnýjanlega
orkugjafa í Washington D.C í gær að
opnað yrði fyrir aðgengi að varaforð-
anum fram til næsta hausts. Þrátt
fyrir þess aðgerð lýsti forsetinn því
yfir að Bandarikjamenn þyrftu að
sætta sig við þá staðreynd að hið háa
heimsmarkaðsverð á olíu og gasi
væri komið til að vera og neytendur
yrðu að stýra neyslumynstri sínu
eftir því.
Ennfremur lýsti Bush því yfir að al-
ríkisstjórnin myndi bregðast við háu
olíuverði með því að hvetja til sparn-
aðar, auka innanlandsframleiðslu
og veita fé í þróun nýrra orkugjafa.
Hvatti hann bandaríska þingið til
þess að afnema skattafriðindi orku-
fyrirtækja en afnema skatta sem eru
settir á neyslugrannar bifreiðar.
Forsetinnlýstiþví einnigyfir í gær
að hann hafi fyrirskipað rannsókn
á því hvort að bandarísk olíufyrir-
tæki hafi misnotað sér stöðu sína á
markaðnum til þess að halda verði
á olíu hærra en það þyrfti að vera.
Talsmaður Hvíta hússins sagði við
blaðamenn í gær að Alberto Gonza-
les, dómsmálaráðherra alríkisstjórn-
arinnar, hefði sent bréf til dómsmála-
ráðherra allra fimmtíu ríkjanna og
beðið þá um að rannsaka hvort að
orkufyrirtæki hafi brotið samkeppn-
islög og haldið orkuverði of háu.
Bush bregst við olíuverði
og minnkandi vinsældum
Afnemur tímabundið umhverfislög til að tryggja að olíuhreinsunarstöðvar anni eftirspurn
og slái á hækkandi olíuverð. Forsetinn bregst við auknum þrýstingi þingmanna.
George W. Bush, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær að hann myndi
afnema tímabundið umhverfislög
svo að olíuhreinsunarstöðvar geti
annað mikilli eftirspurn auk þess
sem hann ákvað að leyfa tíma-
bundna sölu úr varaoliuforða Banda-
ríkjanna. Forsetinn grípur til þess-
ara aðgerða til þess að auka framboð
á olíu og slá á neikvæð áhrif hækk-
andi olíuverðs. Olíuverð hefur aldrei
verið hærra á alþjóðamörkuðum
og ekki er gert ráð fyrir sú þróún
gangi til baka vegna spennu á
alþjóðavettvangi.
Forsetinn hefur verið undir mik-
illi pressu frá þingmönnum repú-
blikana um að bregðast við þróun-
Setjum jpÉ0Ötfc(ÍGffl
í allar geróir bíla
Sérsmíða kerfi íjeppann!
PUSTÞJONUSTA
Smiöjuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950
-'S^V
Pólska algeng
í leikskólum
Um 7,4% allra leikskólabarna
á Isiandi hafa annað tungumál
en íslensku sem móðurmál. Alls
sóttu um 16.864 börn leikskóla
á íslandi í desember í fyrra og
hafa þau aldrei verið fleiri. Þetta
kemur fram í samantekt Hag-
stofu íslands á fjölda barna í leik-
skólum í desember 2005.
Mikil fjölgun hefur orðið á
leikskólabörnum með erlent
móðurmál á undanförnum átta
árum. Árið 1998 voru þau rétt
tæplega 600 en í fyrra voru þau
1.250 talsins.
Pólska er sem fyrr algengasta
erlenda móðurmál leikskóla-
barna en það er móðurmál alls
189 leikskólabarna. í öðru sæti
er enska en 159 börn hafa það
sem fyrsta tungumál.
í samantekt Hagstofunnar
kemur einnig fram að í desem-
ber á síðasta ári hafi um 275
skráð leikskólabörn verið með
erlent ríkisfang og þar af um 145
frá Austur-Evrópu eða 51,6%.
Á landinu voru starfandi um
262 leikskólar í desember í fyrra
og fjölgaði þeim ekkert á milli
ára.