blaðið - 26.04.2006, Síða 16
16 ISKOÐUN
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaöiö
180 dauðsföll á LSH í
fyrra vegna mistaka?
Eftir Ágúst Ólaf Ágústsson
Ef tíðni mistaka
í heilbrigðiskerf-
inu hér á landi er I
svipuð og rann- [F "
sóknirsýnaaðhún Mffl
sé víða erlendis
má ætla að um
i8° dauðsföil hafi Agústólafur
verið á Landspítala- Á^ústsson
háskólasjúkrahúsi ...............
vegna mistaka og
óhappa árið 2005.
Þar af hefði mátt koma í veg fyrir
um 90 þessara dauðsfalla. Land-
læknir hefur bent á erlendar rann-
sóknir sem sýna þetta hlutfall mis-
taka erlendis og samkvæmt þeirri
tölfræði má ætla að um 3.000 óhöpp
eða misfellur hafi átt sér stað á Land-
spítalanum í fyrra. Þar af hafi 600
þessara óhappa hafi verið alvarleg.
Rannsóknar er þörf
Þetta eru ótrúlegar tölur. Á móti
hefur verið bent á framúrskarandi
starfsfólk í heilbrigðiskerfinu og
skiptir það án efa miklu máli fyrir
öryggi sjúklinga. En ekki er hægt að
fullyrða, án rannsókna, að sá veru-
leiki sem er margstaðfestur erlendis
eigi ekki við ísland. Þótt margs
konar eftirlit sé til staðar í heilbrigð-
iskerfinu bæði af hálfu viðkomandi
stofnunar og af hálfu embættis
Landlæknis eru heilstæðar upplýs-
ingar um mistök í íslenska heilbrigð-
iskerfinu ekki til. Landlæknir hefur
hvatt til slíkrar rannsóknar.
Ég hef því lagt fram þingmál á
Alþingi um að úttekt verði gerð á ör-
yggi og mistökum í heilbrigðiskerf-
inu og leiðir til úrbóta skoðaðar.
Ástæður mistaka í heil-
brigðiskerfinu
Tilgangur slíkrar rannsóknar er
ekki að finna sökudólga heldur að
afla upplýsinga um hugsanleg mis-
tök í heilbrigðiskerfinu og velta upp
leiðum til að koma í veg fyrir þau.
Ástæður fyrir mistökum í heil-
brigðiskerfinu geta verið margs
konar. Má þar nefna manneklu,
slítandi starfsumhverfi, kerfisgalla,
aðgengi að þjónustu, flóknar kring-
umstæður, aukaverkanir viðeigandi
meðferðar, röng meðferð, ónógþekk-
ing, samskiptaskortur, skortur á
dómgreind og jafnvel óheppni.
Landlæknir hefur bent á að þeir
hópar sem helst eru líklegir til lenda
í mistökum eða óhöppum í heilbrigð-
iskerfinu eru sjúklingar með flókin
vandamál, sjúklingar á bráðamót-
töku, hjarta- og æðaskurðsjúklingar,
heilaskurðsjúklingar, aldraðir
sjúklingar og sjúklingar í höndum
óreyndra lækna.
Höfundur er þingmaður
Blaðiö/Steinar Hugi
Samkeppni um
fermingarbörnin
stórtapi á þessari breytingu, jafnvel
svo að venjulegan lántakanda muni
það margra ára tekjum.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa
ekki í neinu útskýrt hvernig boðuð
breyting á Ibúðalánasjóði bæti
lánakjör almennings, sú breyting
að Ibúðalánasjóður dragi sig út af
markaðnum, enda virðist hagur al-
mennings yfirleitt ekki áhyggjumál
hjá stjórnarflokkunum.
Stjórnvöld koma í veg fyrir
samkeppni á bankamarkaði
Stjórnvöld koma í veg fyrir sam-
keppni um lántakendur með ýmsum
hætti. Þau leggja stein í götu þeirra
sem hyggjast skipta um lánastofnun
sem hefur verið reistur í formi fram-
angreindra gjalda er hins vegar það
hár að ekki verður raunveruleg sam-
keppni um lántakendur.
Þetta ástand birtist með mjög
einkennilegum hætti þar sem bank-
arnir eru ekki að keppast um þá
sem hafa þegar tekið lán og greiða
háan kostnað til bankanna, heldur
er ómældur kostnaður lagður í að
ná í viðskipti unglinga og jafnvel
fermingarbarna.
Það er mín skoðun að miklu nær-
tækara sé fyrir ríkisvaldið að beita
sér fyrir öðrum breytingum á lána-
markaði, breytingum sem bæta hag
almennings, en að ekki sé fyrst og
fremst hugsað um hag bankanna.
99
Þetta ástand birtist með mjög einkenni-
legum hætti þar sem bankarnir eru ekki að
keppast um þá sem hafa þegar tekið lán og
greiða háan kostnað til bankanna, heldur er
ómældur kostnaður lagður í að ná í viðskipti
unglinga og jafnvel fermingarbarna.
með því að leggja á viðkomandi sér-
stakan skatt, þ.e. stimpilgjaldið sem
nemur ákveðnum hundraðshluta
af lánsfjárupphæðinni. Þinglýsing-
argjöld eru líka innheimt og svo
má auðvitað nefna þá skilmála sem
lánastofnanir sjálfar setja í formi
lántöku- og uppgreiðslugjalda.
Ef allt væri með felldu væri gríð-
arleg samkeppni um trausta lántak-
endur og þeim boðin hagstæð kjör
á lánum sínum. Þessi þröskuldur
Beinast lægi við að stjórnvöld beittu
sér fyrir því að samkeppni ríkti um
lántakendur. Stór liður í því væri að
fella niður ósanngjarnt stimpilgjald
og tryggja að bankar geti sett upp
skilmála sem múri ekki lántakendur
inni í viðskiptum við sig.
Höfundur er þingmaður
reyna að læra tungumálið, hefðir og
siði og á sama tíma á samfélagið að
veita þeim sanngjarnt tækifæri til
fess að taka virkan þátt i þjóðlífinu.
pólitísku samhengi er gagnkvæm
aðlögun ekkert annað en þetta, hún
snýst oft um praktísk atriði.
Þá ættu fjölmiðlar og aðrar mik-
ilvægar, samfélaglegar stofnanir að
stuðla að því að rödd og íslenska inn-
flytjenda heyrist svo að þátttakan
aukist.
Við innflytjendur skiljum líka
að verðum að uppfylla íslenskar
menntunarkröfur til að fá að starfa
í okkar sérgreinum en á móti verður
samfélagið að meta á sanngjarnan,
skipulegan hátt menntun innflytj-
enda og einnig að leiðbeina um
hvar og hvernig þeir geti öðlast upp-
bótarmenntun ef slíka vantar. Við
lærum íslensku til þess að búa hér
eins og aðrir, en ekki vegna þess
að okkur skortir grunnmenntun.
Flestir innflytjendur eru í vinnu
og greiða skatta til samfélagsins,
því þeir eru með rétt til þátttöku í
þjóðamálaumræðum sem þarfnast
úrlausna. Hugtakið “þátttaka” er
að mínu mati miklu eðlilegra hug-
tak í umræðunni um innflytjendur
en „gagnkvæm aðlögun". Það vilja
nær allir að taka þátt í því samfélagi
sem þeir búa í, njóta réttinda og upp-
fylla skyldur, og geta haft eitthvað
um það og líf sitt að segja. Það er
óréttlæti þegar þess er ekki kostur
og veldur reiði og sárindum manna,
hvar og hvenær sem er. Ég óska hér
með eftir þvi að stjórnmálaflokkar
setji sér áþreifanlega á stefnuskrá í
málefnum innflytjenda, sem byggir
á hugtöku þátttökunnar.
Til þess vil ég leggja til að búa til
þátttökuvísitölur í stjórnsýslunni,
en bíð eftir öðru tækifæri fyrir frek-
ari útskýringu.
Höfundur er stjórnmálafrœðingur
Eftir Sigurjón Þórðarson
Eftir Toshiki Toma
Sveita- og borgar-
stjórnakosningar
nálgast. Og enn
og aftur er engin
áþreifanlega
stefna um innflytj-
endamáládagskrá
stjórnmálaflokk- ToshikiToma
ananemaíVG.Það .................
er kannski ekki
merki um vanrækslu þeirra, heldur
frekar birting á því hversu skammt
á veg umræður um þetta málefni
eru komnar á hinu pólitíska sviði og
eru þar oft óþroskaðar.
Oftast er orðasambandið „gagn-
kvæm aðlögun" notað í umræðum
um innflytjendamál. Lengra en
að komast á blað virðist orðasam-
bandið samt ekki komast, það hefur
ekki náð því að verða að áþreif-
anlegri stefnu eða raunverulegri
framtíðarsýn.
T.d. gaf Félagsmálaráðuneytið
út skýrslu í fyrra sem heitir „Um
aðlögun innflytjenda að íslensku
samfélagi“ og þar er bent á að „gagn-
kvæm aðlögun" séu lykilorðin, en
hún skilgreinir ekki hvað þau eru
samkvæmt skilningi skýrsluhöf-
unda. Yfirleitt sýnist mér að „að-
lögun innflytjenda11 sé í beinni þýð-
ingu „að vera ekki með vesen“ fyrir
viðkomandi málsaðila, hvort sem
er um ráðuneyti, vinnuveitanda
eða aðra að ræða. Ef lykilorðin í
umræðunni um innflytjendur eru
svona óskýr, þá er skiljanlegt að inn-
flytjendamál séu ekki á stefnuskrá
stjórnmálaflokkanna nú í vor.
Eigum við ekki að hætta að nota
orðasambandið „gagnkvæm að-
lögun“ í umræðum innflytjenda-
mála, sérstaklega í stjórnmálum og
um samfélagsréttindi, og nota ein-
faldlega orðið „þátttaka“? Því það er
nákvæmlega það sem innflytjendur
eiga að gera hér. Innflytjendur
Við ráðherraskipti
í félagsmálaráðu-
neytinu virðist
mikil stefnubreyt-
ing hafa átt sér
hvað varðar hlut-
verk íbúðalána-
sjóðs. Svo virðist Sigurjón
sem fyrrum ráð- Þóröarson
herra hafi staðið
í vegi fyrir þeirri
kröfu bankanna að leggja af núver-
andi hlutverk íbúðalánasjóðs sem
útlánastofnunar.
Nú eru breyttir tímar. Fyrrum
félagsmálaráðherra Framsóknar-
flokksins fékk fina vinnu í banka
og eftirmaður hans virðist vera
leiðitamari í að umbylta hlutverki
íbúðalánasjóðs. Jón Kristjánsson
félagsmálaráðherra hefur boðað
að Ibúðalánasjóður verði einhvers
konar heildsölubanki, en það felur
í sér að bankarnir fái ríkisábyrgð á
útlán sín til íbúðakaupa.
Haft hefur verið á orði að bank-
arnir séu með bæði belti og axlabönd
þar sem lánin eru tryggð með verð-
tryggingu, veði, ábyrgðarmönnum
og hæstu vöxtum í Evrópu - sem eru
breytilegir í þokkabót. Og nú á sem
sagt að bæta ríkisábyrgð við. Má
þá segja að bankarnir séu ekki ein-
ungis með belti og axlabönd heldur
líka kút og kork.
Margir velta fyrir sér hverju þessi
breyting muni skila almenningi í
landinu og nærtækast er að vitna í
skrif flokksbróður hæstvirts félags-
málaráðherra sem hefur reiknað út
á heimasíðu sinni að almenningur
auglysingar@vbl.is
blaðite
Innflytjendur og
kosningastefna
1