blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 18
18 I BRÚÐKAUP
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaöiö
HLÝJAR
RPPl'lfT)AF?r: IAPIR
Laugavegl 87 • símar 551 8740 & 511 2004
Veisluþjónusta
fyrir öll tilefni
Stendur mikið til? Við tökum að okkur að sjá um veitingar
fyrir hvaða tilefni sem er: Fermingar, brúðkaup, afmæli o.fl.
Við sérhæfum okkur í:
• Brauðtertum
• Snittum ^
• Smáréttum
Pantanir og nánari upplýsingar
í síma: 425 0322 425 0246(7),
og á netfangið igsveitingar@igs.is
IGSveitingar
■ -
Gátlisti fyrir brúðkaupið
Þegar brúðkaup er í vændum þarf
svo sannarlega að hafa margt í huga
og er því best að hafa nægan tíma
til stefnu til þess undirbúningurinn
verði eins og best verður á kosið.
Brúðkaup á að vera gleðilegur
atburður og því ætti að forðast
streitu og tímaleysi fyrir stóra
daginn.
Gott er að punkta niður það sem
þarf að gera og ekki ætla sér of mikið
í einu. Brúðhjónin þurfa því að
setjast niður og ákveða í sameiningu
hvernig draumabrúðkaupið á að
vera. Velja þarf kirkju, hafa samband
við prest, ákveða hvar skal halda
veisluna og með hvaða sniði hún á
að vera.
Eins þarf að ákveða hvort að bjóða
eigi upp á mat og drykk eða kaffi og
kökur. Á að hafa þetta svakalega fínt
eða bara frekar óformlegt? Á að hafa
lifandi tónlist eða plötusnúð? Og
síðast en ekki síst, hvað má athöfnin
kosta?
Þeir sem eru í
brúðkaupshugleiðingum ættu því
að útbúa gátlista. Bæði til þess
að það náist að framkvæma það
sem þarf að gera í tíma og líka til
þess að hægt sé að hafa yfirlit yfir
brúðkaupskostnaðinn.
Það sem hafa þarf í huga
fyrir brúðkaupið:
• Byrjið á að ákveða dagsetningu
sem hentar bæði ykkur og ykkar
nánustu og ákveðið hvernig
veislu þið viljið halda.
• Gerið fjárhagsáætlun og
aflið ykkur upplýsinga um
veisluþjónustur, kjólaleigur,
kostnað við að leigja sal og annað
slíkt.
• Veljið kirkju og ákveðið hvaða
prest þið viljið fá til þess að gefa
ykkur saman.
• Gerið drög að gestalista svo þið
fáið hugmynd um gestafjölda.
• Farið að huga að stað fyrir
brúðkaupsveisluna og pantið
tímanlega.
• Ákveðið tónlist ef þið ætlið til
dæmis að hafa söng í kirkjunni
og gangið frá þeim málum.
• Hugið að brúðkaupsmynda-
tökunni og athugið með
ljósmyndara efþið hafið einhvern
sérstakan í huga.
• Farið að huga að brúðarfötum
og gangið frá því með góðum
fyrirvara.
Náttúrulegar snyrtivörur
IRósakrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
0*yCíe»m Dr.H»u«hk»
Rosf
OayCnsim
Lífrœnt ræktuð Rósablóm og rósaber
hjálpa til við að varðveita rakann í
húðinni. Þaö gerir húöina silkimjúka og
veitir henni sérstaka vernd.
Rósakremið inniheldur einungis hrein
náttúruleg efni og Iífrænt ræktaðar
Iækningajurtir. Það er án allra kemiskra
rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn
Íer úr hrcinum ilmkjarnaolíum. Þetta á
einnig við um allar aðrar vörur frá
Dr.Hauschka.
I dreifing:
Útsölustaóir: Yggdrasill Skólavöróustíg 16, Fræið
Fjaróarkaup, Lífsins Lind Kringlunni, Lyf ja,
I Maður Lifandi, Blómaval og Heiisuhornió
Akureyri.
Ef þið ætlið í brúðkaupsferð
stuttu eftir brúðkaupið er gott að
fara að hugsa stað og stund.
Ákveðið boðskortin og sendið
þau tímanlega svo að fólk geti
staðfest eða afboðað komu sína
með fyrirvara.
Leggjið inn pöntun fyrir
brúðartertunni ef þið hafið slíkt
í huga.
Kíkjið á hringa tímanlega svo að
hægt sé að sníða þá í rétta stærð.
Útbúið gjafalista þannig að
brúðkaupsgestir geti valið
gjafirnar í tíma.
Staðfestið matseðilinn og aðrar
veitingar.
Gangið frá samningum við alla
þá sem að brúðkaupinu koma,
eins og veisluþjónustuna, þann
sem sér um blómaskrey tingarnar,
ljósmyndarann og tónlistar-
mennina þannig að fram komi
verð, tímalengd og dagsetning.
Ekkert ætti því að koma á óvart
síðustu dagana fyrir brúðkaupið.
• Pantið brúðarbílinn ef þið hafið í
hyggju að leigja hann.
• Einnig er sniðugt fyrir brúðurina
að panta sér tíma í prufu
hárgreiðslu og förðun svo að hún
verði ekki fyrir vonbrigðum á
brúðkaupsdeginum.
• Staðfestið allar pantanir og plön
tímanlega.
• Síðustu tvær vikurnar fyrir
brúðkaupið er tilvalið að ganga frá
smáatriðum en hafið það í huga
að smáatriðin geta tekið ótrúlega
langan tíma í framkvæmd.
Leggjið ykkur fram um að vera laus
við alla streitu fyrir brúðkaupið
vegna þess að streita hefur slæm
áhrif á ónæmiskerfið og það versta
sem gæti komi fyrir eru veikindi
eða slappleiki á brúðkaupsdaginn.
Síðustu dagana fyrir brúðkaupið
ætti að nota í afslöppun og dekur.
Farið í hand- og fótsnyrtingu,
plokkun og litun og leyfið ykkur að
hlakka til og njóta tilhugsunarinnar
um brúðkaupið.