blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaöiö Auglýsingar 5103744 blaöiðu ■mssss*- ■ ’hát a 14 • s. 557 4070 l@myndval.is 22 I BRÚÐKAUP Vinsœlt að láta sér- smíða giftingarhringi Flestir ef ekki allir setja upp hringa þegar þeir ganga í hjónaband. Vanda skal valið á hringunum en misjafnt er hvað fer hverjum. Miklu máli skiptir að hringarnir séu þægilegir og ekki of íburðarmiklir þar sem þeir eru sjaldan teknir niður. Færst hefur í vöxt á undanförnum árum að láta sérsmiða giftingar- hringana og er mikið gert af því hjá Gullsmiðju Óla. Þar eru hringarnir smíðaðir eftir óskum viðskiptavina en fólk er farið að kjósa þessa leið svo að giftingarhringarnir séu einstakir. Samkvæmt Gullsmiðju Óla eru breiðir hringir að verða vinsælli. Fólk vill finna fyrir hringnum á fingrinum og kýs að hafa þá meira áberandi en áður. Vinsældir gullsins hafa haldið sér þó að einhverjar tískubylgjur komi alltaf inn á milli. Allur gangur er svo á því hvort að fólk taki einhverja steina með en það fer þá oft eftir því við hvað fólk starfar. Ef fólk vinnur verkamannavinnu þá er kannski ekkert sniðugt að vera með mikið af steinum og skrauti á hringnum sem geta losnað af. Mikið hefur verið um áletranir á hringum bæði á ytri rönd þeirra og innri. Algengast er að nöfn brúðhjón- anna séu grafin í hringana en sumir kjósa kannski að setja aðeins meiri texta á þá. Herrahringar eru alltaf svolítið grófari en dömuhringarnir þar sem herrann er í flestum tilvikum með stærri hendur en daman og oftar en ekki er hringur brúðgumans hafður aðeins látlausari. Giftingarhringa er hægt að fá í öllum stærðum og gerðum og fer verðið eftir því hvað er tekið hverju sinni. Eftir því sem hringarnir eru breiðari því dýrari eru þeir en yfir- leitt er þetta frá 50.000 kr. og upp úr. hilda@bladid.net Veislustjórn í brúðkaupum Veislustjórar í brúðkaupi stjórna veislunni og þurfa að sjá til þess að allt fari fram eins og best verður á kosið, án þess þó að vera ósveigjan- legir og of skipulagðir. Brúðhjónin treysta á viðkomandi til þess að vera eins konar tengiliður við gestina og sjá til þess að allir séu sáttir við sitt. Veislustjórar eru yfirleitt einn eða tveir, ýmist einn frá brúðinni og annar frá brúðgumanum. Sá sem tekur þetta að sér þarf helst að vera léttur í iund og kunna að koma fyrir sig orði. Boðsgestir eiga að hafa aðgang að veislustjóranum til þess að geta komið á framfæri óskum um ræðu- höld eða skemmtiatriði og er þá séð til þess að allir komist að og veisl- unni haldið gangandi. Það er mjög hentugt ef viðkom- andi hefur kynnt sér hljóðkerfið, ef veislan er haldin í sal, og sé með á hreinu hvernig það virkar svo það heyrist almennilega í ræðuhöldurum Veislustjórinn ætti að hafa á hreinu hvaða kræsingar er verið að bjóða upp á. Hann getur i upphafi veislunnar boðið fólk velkomið og frætt það um hvað sé á boðstólnum. Ef boðið er upp á vín þá er til dæmis hægt að afla sér upplýsinga um hvers kyns vínið er og hvaðan það kemur. Eins er alltaf vinsælt að gefa greinargóðar lýsingar á girni- legum mat og drykk og er um að gera að vera svolítið háfíeygur í lýs- ingum svo að veislugestir fái vatn í munninn. Veislustjórinn ætti þó umfram allt að sjá til þess að veisluhöldin fari vel fram, brúðhjónin njóti sín og gestirnir séu sáttir við sitt en það má gott eitt teljast. Skart fyrir konur... sem vilja gifta sig í þjóðbúningi (tjullkistan /írw\ dóra jónsdóttir ^ \fl GULLSMIÐUR FRAKKASTÍG 10 SÍMI551 3160 '

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.