blaðið - 26.04.2006, Síða 26
26 I MATUR
ÍÉÍRÍS ■■ i
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaöið
Holl gulrótarkaka
cafesigrun.com er sérlega aðgengi-
leg og góð uppskriftasíða, skemmti-
leg aflestrar, þar sem hægt er að
finna hollar uppskriftir í ýmsum
matarflokkum og má þar nefna
brauð, súpur, salöt, grænmetisrétti
og margt fleira. Þar er að finna
margvíslegar reglur Sigrúnar um
matarræði og í uppskriftum sínum
skiptir hún út hveiti og hvítum sykri
fyrir spelt, heilhveiti og ávaxtasykur.
Að auki er að finna á vefnum hennar
bloggfærslur þar sem Sigrún skrifar
um ferðalög sín um heiminn en það
er nær óbrigðult að þar komi matur
mikið við sögu. í uppskrift af hollri
gulrótarköku hefur Sigrún notað
epla- og bláberjamauk í stað olíu og
í stað sykurs notar hún ávaxtasykur.
í allri uppskriftinni eru innan
við 5 grömm af fitu að kreminu
meðtöldu.
Alvöru gulrótarkaka, nema holl
Gerir 12 bita cirka
• 140 gr ávaxtasykur
Fyrsta flokks
r'-.f__f____f______________
GULLFISKUR
HOLLUSTA / HVERJUM BITA
MV ,
m
10 gr strásæta t.d. Splenda
2 stór egg, í stofuhita
1 stór krukka af Hipp Organic syk-
urlausum barnamat t.d. Apple
and Blueberry dessert
200 gr spelti (eða heilhveiti)
50 gr hveitiklíð
11/2 sléttfull msk af bökunarsóda
(bicarbonate of soda)
1 msk lyftiduft (baking powder)
3 kúfullar teskeiðar af blönduðu
kryddi (múskat, kanill, vanilla,
vanilludropar t.d.)
Rifinn börkur af 1 lítilli
appelsínu
Nú er hægt að gæða sér á gulrótarköku án þess að hafa áhyggjur af aukakílóunum.
Bailine vaxtarmótunarmeðferð
Við bjóðum þig veikomna í frían prufuh'ma og
vaxtargreiningu ó meðan þú slakar ó í notalegu
umhverfi. __
Bailine byggir á 3 grundvallaratriðum
* Leiðbeiningum um motaræði
* Líkamlegri þjólfun
* Andlegri þjólfun
Tölvustýrt þjólfunartæki
* Mófar, styrkir, þjólfar, grennir, nuddar
* Eykur brennslu
* Eykur orku og almenna vellíðan
Þúsundir kvenna viðsvegar um heiminn hafa nóð
fróbærum órangri með Bailine vaxtarmótunarmeðferðí
Tímapantanir í síma 568 0510.
Þú hefur engu að tapa nema sentimetrum.
Fyrir konur 18 óra og eldrife
SWtÍMW
Vegmúli 2 108Reykjavík sími 568 0510 www.bailine.is
• 200 gr afhýddar gulræddur og
rifnar gróft á rifjárni
• 175 gr rúsínur
Kremið
• 200 gr Kvarg eða skyr (Kvarg er
mjúkur ostur úr léttmjólk. Ef
notað er skyr, notið þá 150 gr
hreint skyr og 50 gr sykurlaust
skyr t.d. vanillu)
• 1 msk ávaxtasykur
• 2 tsk vanilludropar
• 50 gr döðlur sem eru búnar
að liggja í sjóðandi vatni í 10
mínútur
• 1 kúfull tsk kanill til að dreifa yfir
kremið þegar kakan er tilbúin
"Sírópið"
• safi úr 1/2 lítilli appelsínu (eða 2
msk hreinn appelsínusafi)
• 1 tsk sítrónusafi
• 1/2 krukka, lítil af Hipp Organic
barnamat, sykurlausum t.d.
Apple and Blueberry dessert
Aðferð:
• í þessa uppskrift þarf bökunar-
form sem er 25.5 x 15 cm. og 2.5 cm.
djúpt. Það er best að nota bökun-
arpappír því þá þarf maður ekki
olíu eða smjör
• Forhitið ofninn í i70°C
• Byrjið á þvi að þeyta saman
ávaxtasykurinn, eggin og ávaxta-
maukið (barnamatinn) í skál.
Islensku LOOK-pönnurnar njóta alþjóðlegrar hylli sem hógæðaóhöld i
eldhúsinu. Þær eru léttar og meðfærilegar, enda steyptar úr óli sem líka
tryggir hómarkshitaleiðni. LOOK-pönnurnar aflagast ekki með aldrinum
svo orkunýtingin er ævinlega eins og um nýja pönnu væri að ræða.
Síðast en ekki síst er nýjustu tækni beitt við húðun LOOK-panna svo
ending, þægindi og notagildi eru tryggð.
Við leggjum metnað okkar í öflugt þróunarstarf sem skilar sér í
bættum eldunareiginleikum og þar með betri órangri í eldhúsinu.
LOOK-pönnurnar eru nú betri en nokkru sinni.
.
íslenska kokkalandsliðið velur eingöngu LOOK-pönnur og -pofta
• Notið handþeytara og þeytið í 2-3
mínútur.
• Blandið því næst hveitinu, lyfti-
duftinu, hveitiklíðinu, bökunar-
sódanum og blandaða kryddinu
í skálina.
• Hrærið allt saman og blandið
svo appelsínuberkinum, gulrót-
unum og rúsínunum.
• Hellið svo blöndunni í bökunar-
formið og bakið í miðjum ofn-
inum í 35-40 mínútur þangað til
kakan rís og er þétt viðkomu.
• Á meðan kakan er að verða
til, blandið þá kremið með því
að setja allt hráefnið í það í ma-
tvinnsluvél (hellið nánast öllu
vatninu af döðlunum) og blandið
þangað til kremið er orðið
“létt”(setjið plastfilmu yfir og
geymið í ísskápnum í minnst 1-2
tíma eða þangað til þarf að nota
kremið.
• Nú þarf að búa til “sírópið” og til
að gera það, skal þeyta saman sí-
trónu- og appelsínusafanum og
sykrinum í skál.
• Svo þegar kakan er komin út úr
ofninum, stingið þá í hana alla
með prjóni og setjið strax “sír-
ópið” eins jafnt yfir og hægt er.
• Látið kökuna kólna og á meðan
dregur hún “sírópið” í sig.
• Svo þegar kakan er alveg orðin
köld, takið hana þá úr forminu
og smyrjið kreminu á.
• Ágætt er að leyfa kökunni standa
í ísskáp með kreminu á í nokkra
klukkutíma.
• Dreyfið smá kanil yfir kremið
• Skerið í 12 bita