blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 27
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2006
MATURI 27
Uppskriftir úr þættinum í gær
Grœnmetis/íiski-
súpa Ragnheiðar
Grænmetis/fiskisúpa
Ragnheiðar
2-3 dl Quinoa (korn)
Fiskur (Rækjur.Lúða og Ýsa) eða
bara eftir smekk
Grænmeti: Spergilkál, blómkál,
gulrætur, sveppir, rófur, sætar kart-
öflur, sellerí.
Krydd: rifin engiferrót, pressaður
hvítlaukur, Maldol salt, pipar, græn-
metis/fiskikraftur og graslaukur.
Quinoa er sett í botninn á pottinum
og ca 2 lítrar af vatni er hellt yfir.
Setjið viðeigandi krydd út í og
smakkið til þangað til bragðlauk-
arnir gefa samþykki.
Grænmetið er skorið niður í hæfilega
smáa bita og smellt ofaní pottinn
fiskurinn er skorin niður í hæfilega
stóra bita og ofan í pottinn.
Ef vatnið er ekki nægjanlega mikið
þá bætið þið við þangað til það
flýtur vel yfir grænmetið. Quinoa
dregur til sín mikið vatn.
Þessi réttur er eldaður í Römertopf
leirpottinum góða.
Setjið inní kaldan ofninn og stillið á
180° í ca 6o mín.
Síðan er bara slakað á og potturinn
sér um restina.
Verði ykkur að góðu
Bananabrauð
Hörpu
Bananabrauð Hörpu
4 bananar
2 Vi bolli grófmalað spelti
Vi bolli kókos
í tsk matarsódi
í tsk lyftiduft
'h -1 tsk xylitol (ekki nauðsynlegt)
í tsk salt
í stórt egg
Bananarnir eru stappaðir í skál,
þurrefnum og eggi bætt við og allt
hrært lauslega saman.
Deigið sett í vel smurt aflangt formi
og bakað í ofni við i8o° í 50 min og
síðan á minni hita í 5 min.
Auðvelt er að breyta uppskriftinni í
krydd-bananabrauð.
Þá er eftirfarandi bætt við:
1 mtsk kanill
1 tsk engifer
1 tsk nutmeg
Rúsínur eftir smekk
Auglýsingar
03744
1 blaðið-
Rœktaðu þínar
eigin matjurtir
Hver man ekki eftir matjurtar-
garðinum hennar mömmu eða
ömmu? Þegar líða fór á sumarið
var hægt að fá rófur og annað
góðgæti beint upp úr garðinum.
Með fjölbreyttara úrvali í mat-
vöruverslunum er eins og fólk
hafi fjarlægst þann möguleika
að rækta sínar eigin matjurtir
en í raun eru möguleikarnir í
ræktun meiri núna vegna hlýn-
andi veðurfars og meira úrvals
mat- og kryddjurta.
Erla Björg Arnardóttir garðyrkju-
fræðingur í Blómaval segir það vera
að aukast að fólk rækti matjurtir.
„Kryddjurtir eins og oregano, dill,
kóríander, graslaukur og rósmarín
eru vinsælar en ræktun þeirra
byrjar innandyra en er síðan flutt
út. í raun byrjar ræktun allra mat-
jurta inni nema gulrætur og rófur
sem eru settar beint út.“
Erla segir að við ræktun gulróta
sé gott að setja akríldúk yfir til að
hlífa þeim við kulda.
„Krakkar eru einnig mjög
spenntir fyrir að rækta karsi en þá
eru fræ sett í blauta bómull og er
vaxtarhraðinn mikill. Það er líka
vinsælt að rækta radísur en nú eru
komnar sætari tegundir en áður
þekktust. Einnig má stýra sætust-
igi þeirra með vatnsgjöfinni.
Ræktun spínats, blómkáls, hvít-
káls, spergilkáls og sallattegunda
Grænt, holt og gott, beint úr garðinum.
eins og klettasalats eru einnig
vinsælar.“
Hægt að nota stjúpur 1' salöt
Erla segir matjurtarræktun vera
ódýra og nefnir sem dæmi að einn
pakki af gulrótarfræjum kosti 129
krónur. „Það mikið um að yngra
fólk noti kryddjurtir og margir eru
með skika í garðinum til að rækta
matjurtir. Þá eru sumir farnir
að rækta tómata og paprikur en
þessar tegundir þarf að rækta inn-
andyra við góð birtuskilyrði. Stórir
framleiðendur matjurta planta
ekki út fyrr en eftir miðjan júní og
þá eru fræin búin að vera í ræktun
í mánuð innandyra.“
Erla segir að hægt sé að nota
stjúpur í salöt bæði sem skraut en
einnig er hægt að borða þær. „Sem
dæmi um það sem hægt er að gera
grænmeti með segir Erla að nýlega
hafi komið til sín eldri kona sem
mælti sterklega með þvi að blanda
saman grænkáli, sýrðum rjóma
og rúsínum og sagði þetta tilvalið
ofan á gróft brauð og væri hinn
besti matur.
hugrun@bladid.net
UPPSKRIFT
VIKUNNAR
S-Wol<rá.++L\|A
Blue Dragon heilhveitinúðlur -hl.
kjúklingabringa, skorin í strimla «* ^
Blue Dragon bambussprotar og/eða kastaníuhnetur
wok-grænmeti, ferskt eða frosið
Blue Dragon Wok-sósa, Hoisin & hvítlaukur. 120 g
Látið núðlurnar liggja í volgu vatni í u.þ.b. Berið fram og skreytið t.d. með smátt
12 mínútur, skiljið þær varlega í sundur og skornum chili og kryddjurtum.
látiö renna af þeim í sigti.
Hitiö wok eða pönnu og snöggsteikið
kjúklinginn og grænmetiö við háan hita.
Setjið núðlurnar og sósuna saman viö og
bragðbætið með salt og pipar eftir smekk.