blaðið - 26.04.2006, Side 34

blaðið - 26.04.2006, Side 34
PE.UMS'ÝMÍNlG \ ÁLFABAKKA FAILURE TO LAUNCH FAILURE TO LAUNCH FIREWALL V FOR VENDETTA WOLF CREEK BASICINSTINCT 2 EIGHT BELOW LASSIE BAMBI 2 ísl. tal KL 4-6-8-10:10 VIP KL 4-6-8-10:10 KL 530-8-10:30 KL 5:30-8-1030 KL 8-10:10 KL 8:15-1030 KL 3:45-6 KL6 KL4 KRINGLUNNI^— FAiLURE TO LAUNCH KL 6-8:15-10:20 FIREWAU KL 6-8:15-10:30 WOIF CREEK KL8:15-10:3Ð EIGHT BELOW KL6 KEFLAVfK FAILURE TO LAUNCH KL8-10 WHEN A STRANGER CALLS KLIO ÍSÖLD 2 isl tal KL8 AKUREYRI lUKHTKI -w SAM'tim I FAILURE TO LAUNCH KL8-10 FIREWALL KL 8-10 FIREWALL KL 5:45-8-10:15 VFORVENDETTA KL 6-8-10 BASICINSTINCT 2 KLIO THE MATADOR KL 6-8-10 BLÓÐBÖND KL 6-8 LASSIE KL 6 _____________________________/ NÝTTÍBÍÓ 'M :. iiuS HAl< I FYH lO í v launerr PATEM Vií BlÚ THE HIUS HAVE EYES KI.5GO.8ag10.30B.U6Am THE HiLLS HAVE EYES! UJXUS kl. 530,8 og 10.30bí. 16ARA WHEW A STRANGER CALLS kl.8og10BJ.i6AM ICEAGE2 kl. 4,6,8og10EMSKTTAL ISÖLD2 kl.4og6ÍSL£NSKTTAL DATEMOVIE kl. 4,6ag lOBxi4Am HEsnBaainn THE HILLS HAVE EYES ki 8ogiOGOBJ.i6ABA ICEAGE2 W. 6. BoglOENSKTTAL LUCKY NUMBER SLEVIN W.5G0.8 og 10.3081 isAm WALKTHEUNE 'WsmslHNGAH W.5G0B112ARL WHEN A STRANGER CALLS w.8ogiOm.i6Am FAILURE TO LAUNCH W. 4,6.8 og 10.30 BUNNINGSCAREÐ w. 8og 10.20 bj. 16 Aro UJCKY NUMBER SLEVIN W. 5.45 og 10.208116AfiA ISÖLÐ2 W.4og6fSLENSK? TAL 8IG MOMMAS HOUSE W. 4 íiunjttilnu THE HILLS HAVE EYES kl.8og 10.106116 Am WHEN A STRAHGER CALLS W.10&U6Am ICEAGE2 W. 6 Og 8 EFSKT TAL ISÖL02 kl, 6 SlENSKT TAL 34 I AFPH MIÐVIKUDÁGUR 26 APRÍL 2006 blaðiö Jazzklúbbur Húnaþings vestra Það eru seiðandi tónar sem berast með norðanáttinni en á föstudaginn nœsta verður formlega stofnaður jazzklúbbur Húnaþings vestra. Blaðið sló á þráðinn til Hvammstanga. Aðsetur klúbbsins verður á Hvamms- tanga og stofnandi hans er Karl B. Örvarsson jazzáhuga- og matreiðslu- maður. Hann rekur ásamt konu sinni Halldóru Árnadóttur og öðrum hjónum skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði „Ég hafði lengi gengið með það í maganum að kanna áhuga fólks á svæðinu fyrir jazz. Ég fékk unga drífandi stráka með mér í lið til að stofna þennan jazzklúbb en þeir eiga veitingastað sem heitir Þinghús- Bar og þar verða tónleikar með Út- lendingahersveitinni á föstudaginn og með Guitar Islandacio á laugardag- inn“, sagði Karl í viðtali við Blaðið. Það er greinilega mikill áhugi á fyrirbærinu og ætlar fólk að koma víða að þegar jazzklúbburinn verður formlega stofnaður. „Ég veit um fólk sem ætlar að koma frá Sauðárkróki, Blönduósi og víðar frá á tónleikana á föstudaginn. Nú þegar hafa rúmlega þrjátíu skráð sig í klúbbinn." Láta menn fá delluna Starfsemi jazzklúbbsins mun felast í því að fá frambærilega tónlistar- menn til að koma að spila og efla þannig þann jazzáhuga sem fyrir er á svæðinu. Að auki munu meðlimir fara suður og hlusta á jazz „og láta menn fá delluna eins og ég er með“, sagði Karl. Ennfremur vonast Karl til þess að stofnun klúbbsins muni stuðla að jazzvakningu. „Það er mjög öflugt tónlistarlíf í Húnaþingi vestra og það var eitt það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég fluttist á svæðið fyrir sex árum. Þannig hefur verið starf- rækt tónlistarfélag fyrir áhugafólk um klassíska tónlist og kóratónlist Karl B. Örvarsson stofnandi Jazzklúbbs Húnaþings vestra en með jazzklúbbnum kemur nýr vinkill.“ Karl hefur sérstaklega grasrótina í huga með stofnun jazzklúbbsins og það sé unga fólkið sem klúbburinn vill ná til og vonandi hafa áhrif á. „Reyndin er bara sú að munurinn á að hlusta á jazz í útvarpi eða hlýða á tón- leika er eins og svart og hvítt.“ Karl er þá býsna sáttur við hvernig haldið er utan um tónlistaráhuga ungs fólks á svæðinu „og gott dæmi um það’, segir Karl „er það að tónlistarskólinn er svo þéttsetinn að ekki komust allir nemendur að í fullt nám í vetur.“ Það er aldrei að vita nema að Hvammstangi og nærliggjandi um- hverfi verði ein helsta uppvaxtarstöð jazzmenningar á íslandi. Það er of snemmt að segja en miðað við skráða félaga lofar upphafið góðu. jon@bladid.net Stórsveit Reykjavíkur Stórsveitin í Ráðhúsinu Stórsveit Reykjavikur heldur tón- leika í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl. 20.30. Að þessu sinni stýrir sænski útsetjarinn og tónskáldið Daniel Nolgard hljómsveitinni. Hann er í hópi þeirra stjórnenda sem oftast hafa stýrt Stórsveitinni og að mati margra hafa fáir náð betri árangri með hljómsveitina. Nolgard hefur starfað með öllum helstu stórsveitum Svíþjóðar, ým- ist sem stjórnandi, útsetjari eða pí- anóleikari. Hann er einnig þekktur fyrir píanóleik sinn með hljóm- sveitum trompetleikarans Lasse Lindgren, kennslu við Ingesunds Musikhögskola og kennslubók í jazzpíanóleik. Kristjana Stefánsdóttir syngur Einsöngvari á þessum tónleikum verður Kristjana Stefánsdóttir. Á efnisskránni verða útsetningar Daniels Nolgards á þekktum jazz- standördum, auk nokurra tón- smíða hans. Meðal annars verður frumflutt nýtt verk eftir Nolgard, sérstaklega skrifað fyrir Stórsveit Reykjavíkur og hljóðritun sem gerð verður í tengslum við tónleikana. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líð- andi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net. 12.00 - Fræðslufundur Andrew Johnston: Dýramódel fyrir Psoriasis Skásalir, LSH Hringbraut 12.05 - Fyrirlestur Lise Tremblay: Samtímabók- menntir í Québec Oddi stofa 201 12.20 -Fyrirlestur Runólfur Smári Steinþórsson: Stefna í raun og veru: Dæmið um Háskóla íslands Oddi stofa xox 17.00-Sýning Ljósmyndasýning Land- verndar í Öskju - Náttúra íslands í myndum Hjörleifs Guttormssonar Askja 14.00 - Leikrit Glæpir og Góðverk Iðnó Miðasala á midi.is 20.00 - Leikrit Pétur Gautur Þjóðleikhúsið Miðasala á midi.is 21.30 -Tónlist Stórsveit Reykjavikur Ráðhús Reykjavíkur Sjá umfjöllun á opnu 20.00 - Tónieikar Kvartettinn Patagonia kemur fram á tónleikum Múlans. Þjóðleikhúskjallarinn Leikin verður meðal annars latin-tónlist, standardar og bebop.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.