blaðið - 26.04.2006, Qupperneq 38
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaðið
38 I
HVAÐ FINNST ÞÉR?
FÁMENNT EN
GÓÐMENNT
Á dögunum fór Smáborgarinn á djass-
tónleika í miðbænum ásamt kunningja
sínum. Þegar þeir mættuá staðinn voru
tónleikarnir ekki hafnir enda aðeins
tveir gestir fyrir í salnum. Eldri maður
og annar yngri sem sátu hvor við sitt
borðið í rökkvuðum salnum, héldu
utan um bjórkrúsir og horfðu út í loftið.
Þeir litu báðir við þegar Smáborgarinn
og kunningi hans gengu inn og störðu
á þá að því er virtist fegnir því að fleiri
höfðu bæst í hópinn. Gestum fjölgaði
lítillega þegar á leið og þegar mest lét
fyllti áheyrendaskarinn rétt rúman tug.
Tónleikarnirvoru góðirenda eðaltón-
listarmenn á ferð en sökum fámennis-
ins fannst Smáborgaranum stundum
eins og hann væri staddur á æfingu
frekar en á alvörutónleikum. Stemning-
in var lágstemmd og gestir klöppuðu
ekki einu sinni að loknu góðu sólói eins
og tíðkast á djasstónleikum. Þögnin
á milli laga var nánast vandræðaleg.
Örfáar hræður á upplestri
Viku sfðar leit Smáborgarinn fyrir til-
viljun inn á annan menningarviðburð
í bænum ásamt þessum sama kunn-
ingja sínum. Að þessu sinni var um að
ræða bókmenntaupplestur og kynn-
ingu í bókaverslun og var stemningin
þar ekki ósvipuð og á djasstónleikun-
um. Áheyrendur og þátttakendur voru
ekki miklu fleiri en tíu þegar mest var
og greinilegt að flestir voru fastagest-
ir á þessum samkomum. Ekki getur
Smáborgarinn kvartað undan upplestr-
inum sem var ágætur en líkt og á tón-
leikunum leið honum á vissan hátt eins
og hann hefði lent ífámennu einkasam-
kvæmi þar sem enginn virtist þekkjast.
Ekki veit Smáborgarinn hvað veldur
því að svo fáir sæki menningarviðburði
sem þessa því að í báðum tilfellum var
um áhugavert efni að ræða og mikið í
lagt. Ef til vill hefur kynningarstarf og
markaðssetning ekki tekist sem skyldi
og kannski er einfaldlega of margt ann-
að f boði. Smáborgarinn heldur þó að
ekki sé áhugaleysi um að kenna. Það
hefur margoft sýnt sig að þegar vel
tekst til er hægt að smekkfylla stærstu
hús með bókmenntaviðburðum og góð-
um djasstónleikum.
Egill Ólafsson, hljómlistarmaður.
Hvað finnst þér um að bygg-
ingu tónlistarhúss verði frest-
að vegna stöðu efnaahagsmála?
„Ég skil ekki hvers vegna tónlistin á að gjalda þess, eins lengi og hún er
búin að bíða. Til þess að halda hér byggð í landinu þarf fólk að hafa að-
gengi að menningu. Það er ekki nóg að reisa bara álver. Menn eru alltaf
að tala um margfeldisáhrif af því að reisa álver, en ég held að margfeldis-
áhrifin af því að reisa tónlistarhús séu meiri. Þannig að ég held að þetta
sé alveg afleit hugmynd."
Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að fresta beri byggingu tónlistarhúss vegna stöðu efnahagsmála í landinu. Egill hefur
lengi barist fyrir byggingu tónlistarhúss sem nú hillir undir.
Bob Geldof á blaðamannafundi í Jóhannesborg í Suður-Afriku
Tékknesku fyrirsæturnar Nemcova og Pestova skála
í hófi í Prag vegna útkomu bókarinnar Alltafást,
Nemcovu
Brasilíski fótboltamaðurinn Ronaldinho brosir Birnan Paloma liggur á jörðinni í Masun í suðurhluta Slóveníu
á blaðamannafundi á heimavelli Barcelona,
Nou Camp
*
Jackson vinnur
með 50 Cent
Endurkoma poppkóngsins Micha-
el Jackson verður furðulegri með
hverri vikunni. I síðustu viku
greindi Blaðið frá nýjú útgáfufyr-
irtæki sem Jackson stofnaði ásamt
prinsinum í Mið-Austurríkinu Ba-
hrain.
Nýjustu fréttir herma að 50 Cent
og félagar hans í G-Unit verða gest-
ir í nýja lagi Jacksons, Trial of the
Century. Eins og titill lagsins gefur
til kynna fjallar lagið um réttar-
höldin sem Michael Jackson hefur
staðið í síðustu ár. •
Lagið verður að finna á plötunni
Whoo Kid’s mixtape MJ Unit - The
Takeover, sem mun einnig inni-
halda fimm óútgefin lög frá Jack-
son og alls kyns tilraunir þar sem
lögum hans verður blandaði við lög
frá G-Unit.
Michael Jackson býr nú í Bahra-
in og vinnur að sinni fyrstu breið-
skífu síðan hann gaf út Invincible
árið 2001.
eftir Jim Unger
Þú eyðir tíuþúsund á mánuði í snyrtivörur
og hann er það besta, sem þú finnur?
HEYRST HEFUR..
Svar íslands við Opruh Win-
frey, Sirrý sjálf, hefur ekki
prýtt sjón-
varpsskjái
landsmanna
um nokkra
hríð eftir að
hún sagði
starfi sínu
lausu á Skjá
einum og
gekk til liðs við 365, en sam-
kvæmt samningi hennar mátti
hún ekki vinna hjá samkeppnis-
aðila meðan á uppsagnarsamn-
ingi stæði. Innan skamms lýkur
þessu skjábindindi Sirrýar og
greinir Reynir Traustason frá
því á Mannlífsvefnum (www.
mannlif.is) að í júní muni hefja
göngu sína ný þáttaröð á NFS
með Sirrý í aðalhlutverki. Nefn-
ist þáttaröðin Örlagavaldurinn
og hyggst Sirrý þar fjalla um
fólk og krossgötur í lífi þess.
Ekki ætlar hún hins vegar að
láta þar við sitja, því í júlí sest
hún við hlið Heimis Karlssonar
í morgunsjónvarpsþættinum ís-
land í bítið...
Pólitísk fréttaskýring höf-
undar Reykjavíkurbréfs
Morgunblaðsins um liðna helgi
hefur orðið mörgum stjórn-
málamönnum uppspretta hug-
leiðinga. Fáum dylst að þar
hefur Styrmir Gunnarsson, rit-
stjóri blaðsins, haldið á penna,
enda ber greinin þess merki
að höfundur
hefur tekið
á hinum pól-
itíska púlsi
um áratuga-
skeið. Björn
Bja rnason
dregur hana
saman á
heimasíðu sinni (www.bjorn.
is) og kveðst ekki vilja gagn-
rýna hana, þó merkja megi að
ekki sé hann í öllu sammála
henni. Össur Skarphéðinsson
er á hinn bóginn gagnrýnni á
sínum bloggi (ossur.hexia.net)
og telur Reykjavíkurbréfið að-
eins lið í kosningabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins i Reykjavík, þó
hann telji Styrmi ganga ýmis-
legt fleira til, svo sem útrým-
ingu Framsóknarflokksins...
Fleirigrasa mákenna í Reykja-
víkurbréfinu. Ljóst er að höf-
undi finnst kosningabaráttan
hefjast með dauflegasta móti
þó frískleg innkoma framsókn-
armanna (afsakið, exbé) undir
forystu Björns Inga Hrafnasson-
ar, sé þar heiðarleg undantekn-
ing á. Sérstaklega er hins vegar
rakið hversu ósýnilegur Dagur
B. Eggertsson hefur verið fram
að þessu þó Samfylkingin aug-
lýsi ekki
minna en
aðrir flokkar.
Er svo langt
gengið að
Samfylking-
in er sögð
vera foringja-
laus...
En þó kosningabaráttan hafi
kannski verið bragðdauf til
þessa hljóta sjálfstæðismenn
að vera í hátíðarskapi í dag.
Foringi þeirra, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, er sextugur í dag
og taka hann
aog Guðrún
Kristjánsdóttir,
unnusta hans,
X á móti vinum,
velunnurum
H JH og samherjum
í Gullhömrum,
Þjóðhildarstíg 2 í Grafarholti á
milli kl. 17.00 og 20.00 í dag...