blaðið - 29.04.2006, Qupperneq 2
2 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaðið
blaðiðb_________
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettiri® bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
DV hættir
sem dagblað
Tíu manns sagt upp
störfum. Nýtt helgar-
blað hefur göngu sína.
I gær tilkynnti Ari Edwald,
forstjóri 365 að ákveðið
hefði verið að DV komi
ekki lengur út sem dagblað
heldur einungis sem helgar-
blað. Breytingin mun taka
gildi nú um mánaðamótin.
Ari sagði ástæðuna fyrir
breytingunni vera tap á rekstri
blaðsins á fyrsta ársíjórð-
ungi 2006. Tíu manns missa
vinnuna við þessar breytingar
en alls starfa á milli 20-30
manns hjá DV. Páll Baldvin
Baldvinsson verður ritsjóri
hins nýja helgarblaðs.
Páll Baldvin sagði í samtali
við Blaðið í gær að stemningin
á ritstjórninni væri ekki góð
af skiljanlegum ástæðum en
hann kvað menn ganga til
vinnu og ljúka þeim verk-
efnum sem þarf til að koma
síðasta helgarblaði DV í
núverandi mynd í vinnslu.
„Það er alltaf talsvert áfall að
horfa á baki samstarfsfélaga en
horff var til starfsaldurs þegar
ákveðið var hverjum yrði sagt
upp.“ Páll segir þessar breyt-
ingar sýna að samkeppnin á
íjölmiðlamarkaðnum sé hörð
en vill ekkert gefa upp um
nýtt helgarblað að svo stöddu.
„Starfsfólk kemur saman næsta
þriðjudag en þá verður farið
að leggja drög að væntan-
legu helgarblaði. Fréttadeild
verður starfandi áfram sem
nú fer að segja fréttir viku-
lega í stað daglegra frétta.“
Björgvin Guðmundsson
sem starfaði við hlið Páls sem
ritsjóri mun halda til annarra
starfa innan fyrirtækisins.
BlaOio/Frikki
Af hjartans lyst
GarðarThor Cortes og Katherine Jenkinsstilltu saman strengi sína ígæren þau halda tónleika í Laugardagshöll í kvöld ásamt fjörtíu
manna hljómsveit. Jenkins er ein vinsælasta söngkona Breta þrátt fyrir ungan aldur og Garðar hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu
íslensku þjóðarinnar.
Fólk varnarlaust gagnvart
erföabreyttum matvælum
Gríðarlega mikið magn af erfðabreyttu dýrafóðri var flutt hingað til lands á síð-
asta ári. Neytendur fá ekki nægar upplýsingar að mati Katrínar Júlíusdóttur.
Mikilvægt er að neytendur fái
upplýsingar um hvort erfðabreytt
fóður sé notað við framleiðslu á
matvælum að mati Katrínar Júlíus-
dóttur, alþingismanns. Um sjö þús-
und tonn af erfðabreyttu sojamjöli
var flutt hingað til lands á síðasta
ári og notað í dýrafóður.
Engar reglugerðir
í svari Guðna Ágústssonar, landbún-
aðarráðherra, við fyrirspurn Þur-
íðar Backman á Alþingi síðastliðinn
miðvikudag kom fram að um sjö
þúsund tonn af erfðabreyttu soja-
mjöli hafi verið flutt hingað til lands
á síðasta ári og notað í dýrafóður. Þá
kom einnig fram í svari ráðherra
að 78% af öllum maís sem fluttur er
hingað til lands í formi dýrafóðurs
séu erfðabreytt.
{öllum löndum Evrópusambands-
ins eru reglugerðir sem kveða á um
að erfðabreytt matvæli séu sérstak-
lega neytendamerkt. Engar slíkar
reglugerðir eru til staðar hér á landi
en fyrir liggur að íslensk stjórnvöld
þurfi að lögleiða slíkt í tengslum við
sem
EES-samþykktir.
Það mál er nú í
vinnslu innan
ráðuneyta og
óljóst hvenær
það verður lagt
fram á Alþingi.
í reglugerðum
EES er þó ekki Katn-n i,'ik>i<hamí
kveðið á um
að slíkar merk-
ingar séu settar á matvörur þar
notast er við erfðabreytt fóður við
ræktun.
Vill ganga skrefinu lengra
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður,
undrast hversú langan tíma það
hefur tekið íslensk stjórnvöld að
setja reglugerðir er kveða á um
merkingu erfðabreyttra matvæla.
Hún segir Islendinga vera langt á
eftir öðrum þjóðum í þessu máli.
„Við eigum ekki að skipa okkur í
hóp þeirra sem draga lappirnar í
þessu máli. I öllum ríkjum Evrópu-
sambandsins eru gerðar kröfur um
merkingar af þessu tagi. Þá eru svip-
aðar reglugerðir einnig til staðar í
Noregi, Sviss, Rússlandi og Kína svo
fáein dæmi séu nefnd.“
Katrín segir neytendur eiga rétt
á þessum upplýsingum þegar þeir
kaupa matvöru. Þetta sé eðlileg
krafa um gegnsæi þar sem ekki sé
vitað um áhrif erfðabreyttra mat-
væla á mannslíkamann. „Ég fylgi
varúðarsjónarmiðum í þessu. Það
liggur ekki fyrir hvort erfðabreytt
matvæli hafi áhrif á umhverfi og
heilbrigði manna. Neytendur hafa
rétt á því að vita hvað er í matnum
sem þeir láta ofan í sig.“
Þá segist Katrín vilja að íslend-
ingar gangi skrefinu lengra í neyt-
endamerkingum af þessu tagi. Ekki
aðeins verði merkt við erfðabreytt
matvæli heldur einnig matvæli þar
sem notast er við erfðabreytt fóður.
„Mín afstaða er skýr. Ég vil að allt sé
gegnsætt og líka ef um er að ræða af-
urðir dýra sem eru fóðruð með erfða-
breyttum matvælum. Neytendur
þurfa að geta valið sjálfir vegna þess
að það eru mjög skiptar skoðanir
um ágæti erfðabreyttra matvæla.“
Fjárlagaráð-
herra á Netinu
Fjárlagaráðherra Frakklands hefur
fengið nóg af þeirri gagnrýni að
skattarnir séu of háir og allt í óefni
komið í ríkisfjármálunum. Því
hefur hann látið hanna netleik til að
almenningur geti sett sig í spor hans.
I lok maí-
mánaðar mun
almenningur
geta tekið að
sér hlutverk
hans í allt að
klukkustund í
einu. Þetta er
gert um Netið.
Jean-Francois
Cope, fjárlagaráðherra, sagði er
hann kynnti leikinn nýja í sjónvarp-
sviðtali að með þessu móti gæti
fólk kynnt sér hvernig raunveruleg
stjórn fjárlaga færi fram. „Við getum
t.d. ekki lækkað skatta án þess að
skapa fjárlagahalla,“ upplýsti Cope.
„I leiknum getur sérhver franskur
ríkisborgari leikið fjárlagaráð-
herrann. Hann getur séð hvaða
áhrif á fjárlagahallann það hefúr
þegar skattar eru lækkaðir. Fólk
getur tekið margvíslegar ákvarð-
anir sem hjálpar því að skilja
hversu erfitt það er að hafa
stjórn á frönskum fjárlögum.
Romano Prodi
Prodi fellur á
fyrsta prófi
Þingmeirihluíi Romano Prodi, verð-
andi forsætisjfáðherra ítalíu, tapaði
kosningu um forseta efri deildar
ítalska þingsins í gær. Ekki fékkst
hreinn meirihluti fyrir tilnefningu
bandalags mið- og vinstriflokka
til embættis þingforseta á þinginu.
Þarf því að kjósa aftur.
Kosningabandalag Prodi vann
nauman sigur í ítölsku þingkosning-
unum fyrr í mánuðinum. Talið er
að erfitt verði fyrir Prodi að tryggja
samstöðu meirihlutans í mörgum
stærri málum. Stjórnmálaskýr-
endur telja þá staðreynd að banda-
lagi Prodis tókst ekki að tryggja
kosningu forseta efri deildarinnar
í fyrstu tilraun til marks um að
stjórn hans verði vart langlíf.
Jean-Francois Cope
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
$ HelðsklrtGr ■Léttskýjaðíií®ifSký|að Alskýjað^p^* Rigning, litilsháttai^^ RlgningiSjS. Súld Snjókoma^j- • Slydda’-^L Snjúél Skúr
ilLLr'Jilr' 19
Algarve
Amsterdam 09
Barcelona 20
Berlín 08
Chicago 11
Dublin 12
Frankfurt 09
Giasgow 11
Hamborg 07
Helsinki 10
Kaupmannahöfn 10
London 11
Madrid 19
Mallorka 20
Montreal 05
New York 09
Orlando 21
Osló 11
París 10
Stokkhólmur 12
Vin 11
Þórshöfn 07
Veðurhorfur i dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu fslands
\