blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 38
38ISAGA LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaðið Með flugvéladellu á háu stigi Akureyringurinn Jóhannes Stefáns- son hefur komið upp einu stærsta safni af flugvélamyndum á íslandi. Hann hefur bæði safnað gömlum myndum af flugvélum og á undan- förnum árum hefur hann sjálfur myndað fjölda véla af öllum stærðum og gerðum. „Ég byrjaði árið 1989 að mynda flugvélar nokkuð skipulega og svo alveg á fullu árið 1990. Þetta eru orðnar nokkur þúsund myndir, ábyggilega á milli 15 og 20.000,“ segir Jóhannes og bætir við að safnið fylli á milli 80 og 90 möppur. Hann heldur vel utan um myndirnar og skráir þær skipulega. Jóhannes reynir að mynda allar ís- lenskar flugvélar og fær kunningja sína annars staðar á landinu einnig til að útvega sér myndir ef hann á ekki heimangengt. Nokkrum sinnum á völlinn á dag Jóhannes fylgist vel með komum flugvéla til Akureyrar og segist stundum jafnvel fara nokkrar ferðir á flugvöllinn á dag til að mynda. ,Eftir vinnu fer ég á völlinn, síðan fer ég kannski í búðina og kem aftur við á vellinum. Því næst bregð ég mér í bæinn og kem kannski einu sinni enn við á vellinum í bakaleiðinni," segir Jóhannes hlæjandi og bætir við að ferðirnar séu jafnvel enn fleiri um helgar. Hann segir að eiginkonu sinni, sem nú er látin, hafi fundist þessi áhugi hans á flugvélum í góðu lagi. ,Þetta var kannski svolítið mikil della en hún var samþykkt. Meðan maður var ekki í neinni meiri vit- leysu en það þá var það í lagi,“ segir Jóhannes og hlær. Vetraropnun Laugardaga og sunnudaga 14-18 Pantanir og tilboö íyrir hópa í annan tíma: Jóhannes Stefánsson hefur á undanförnum árum unnið skipulega að því áð mynda íslenskar flugvélar og safna myndum af gömlum flugvélum. Myndirnar skipta nú þúsundum. !T draugasctrid/Iflraugasetríd i*. S. 895 0020 v Draugasetrid Stokksevri Jóhannes segist alla tíð hafa haft áhuga á flugvélum og muni hrein- lega ekki eftir sér öðruvísi en horf- andi upp í loftið. „Ég byrjaði hins vegar ekki að mynda nógu snemma en ég hef náð furðanlega góðu safni verð aðeins l<r* 349 BERNHARD ehf. • Vatnagöróum 24 - 26 • Sími 520 1100* www.bernhard.is PEUGEOT mtm* 50cc TORFÆRUHJÓL með götuskráningu þrátt fyrir það. Af tæpum þúsund einkennisstöfum flugvéla þá vantar sennilega ekki nema 15. Sumar vélar hafa verið á tveimur til þremur ein- kennisstöfum. Þannig að maður á kannski myndir af flestöllum vélum þó að maður eigi hvern einasta ein- kennisstaf,“ segir Jóhannes. Heilmikið heimildagildi Ekki hefur Jóhannes uppi áform um að gefa myndirnar út á bók en hann hefur í samvinnu við kunn- ingja sinn komið upp vefsíðunni www.cl44.com þar sem finna má myndir af íslenskum flugvélum auk margvíslegs fróðleiks um þær. „Þar eru allar íslensku vélarnar og meira að segja þær sem voru á landinu áður en Flugmálastjórn var stofnuð. Þetta hefur heilmikið heimildagildi," segir Jóhannes. Auk myndanna hefur Jóhannes komið upp skrá yfir íslenskar flug- vélar frá stofnun Flugmálastjórnar þar sem megi meðal annars finna upplýsingar um skráningu, afskrán- ingu og eigendur vélanna. „Við komum þessu upp í sameiningu ég og vinur minn Rúnar Bárður Ól- afsson sem nú er látinn. Hann átti ábyggilega eitt stærsta flugmynda- safn á landinu. Ég kynntist honum þegar ég var að mynda á Keflavík- urflugvelli árið 1991. Safnið hans er komið á Minjasafnið á Akureyri þar sem unnið er að skráningu þess,“ segir Jóhannes. Merkar myndir frá vallarstarfsmönnum Þegar maður er búinn að koma sér upp jafnviðamiklu ljósmyndasafni og Jóhannes er freistandi að spyrja hvort hann eigi sér einhverja uppá- haldsmynd. Hann segir að ekki standi nein ein upp úr. „Það er nátt- úrlega alltaf gaman þegar maður fær mynd af einhverri eldgamalli vél / ______________ Dagfinnur Stefánsson sem flaug fyrir Loftleiðir á sínum tíma endursmíðaði þessa glæsi- legu Dornier flugvél sjálfur. Myndin er tekin á flugdegi á Akureyri árið 2002. Arngrímur Jóhannsson gjarnan kenndur við Atlanta á vél sinni á flugdegi í Reykjavik fyrirtæpumáratug. sem er fyrir löngu afskráð eða farin eitthvert annað,“ segir Jóhannes og bætir við að sér hafi áskotnast margar merkar myndir fyrir tilstilli fyrrverandi starfsmanna slökkvi- liðs Akureyrarflugvallar. „Þeir mynduðu svo oft ef það kom ný teg- und af flugvél á völlinn. Þannig fékk maður oft mjög magnaðar myndir sem eru náttúrlega stórmerkilegar núna. Þeir voru að mynda um 1950 eða 1960. Þetta eru alveg ómetan- legar heimildir og merkilegt starf sem þeir unnu," segir Jóhannes.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.