blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 22
22 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaðið BlaÖiÖ/Steinar Hugi Ámi Tryggvason hefur áratugum saman verið í hópi fremstu gaman- leikara þjóðarinnar. Þessi vinsæli leik- ari er orðinn 82 ára gamall. „Þetta líður hratt, maður fær bara að vera á þessari jörð í skamman tíma. Ég velti aldrinum ekkert fyrir mér. Aldur er svo afstæður og kannski er tíminn ekki til. Innra með mér finnst mér ég ekki vera eldri en þrjátíu og fimm árasegir hann. „Mér líður vel nú orðið. Þunglyndi kvaldi mig meira og minna í tuttugu ár en eftir að ég náði mér upp úr því er ekkert að. Einn af þeim fimm geðlæknum sem ég var hjá ráðlagði mér að skrifa mig frá þunglyndinu og við Ingólfur Marg- eirsson skrifuðum saman bókina, Lí- fróður, og siðan hef ég ekki fengið eitt einasta kast.“ Leiddiþunglyndið til sjálfsvígshugleiðinga? „Eitt sinn hvarflaði að mér í nokkrar sekúndur að sjálfsvíg væri þægileg leið. En sú hugsun hvarf jafn skyndi- lega og hún kom. Ég átti góða konu, fjölskyldu og vini og það hjálpaði mér. Eg tók aldrei geðlyf. Þetta var mikið stríð en mér tókst að vinna sigur. Bænin hjálpaði mér mikið. Ætli ég teljist ekki bara þokkalega trúaður þótt ég sé ekki alltaf í kirkjum. Móðir mín var sérstaklega trúuð kona og lagði allt á Guð. „Guð bjargar þessu,“ heyrði ég hana margoft segja þegar ég var krakki.“ Taugaáfall vegna gagnrýni Hver heldurðu að hafi verið ástœðan fyrir þunglyndinu? „Eftir öll þessi ár er ég farinn að trúa því sem læknir sagði við mig, að ég hefði sennilega verið ofvernd- aður sem barn. Ég kom síðastur í heiminn af systkinum mínum. Ég var pestarkind þegar ég var krakki, mikill mömmudrengur. Alinn upp eins og ákaflega viðkvæmt egg sem þyrfti að passa vel upp á. Þegar ég var strákur var ég eitt sinn með pabba þegar maður benti á mig og sagði: „ Átt þú þetta?“ „Já,“ svaraði pabbi, „ég var bara að prufa hvort ég væri orð- inn ónýtur.“ Ég man hvað mér fannst hræðilegt að vera kallaður „þetta" og skelfilegt að vera eitthvað afgangs sem varð til út af tilraun. Þunglyndið fór að sækja alvar- lega að mér þegar ég var á fertugs- aldri, kvæntur og orðinn faðir, og bar ábyrgð á sjálfum mér og öðrum. Stærsta áfallið varð vegna gagnrýni. Ég hafði alltaf fengið mjög góða dóma en þegar ég lék í Síðasta segulband Krapps árið 1965 þá var ég af flestum skorinn niður við trog. Ég þoldi ekki að misvitrir menn úti í bæ segðu að ég væri lélegur leikari. Ég fékk tauga- áfall og fékk tveggja mánaða frí frá leikhúsinu til að jafna mig. Hin raunverulega lækning kom frá þjóðinni sjálfri þegar ég lék í Bíla- verkstæði Badda. Ég fékklélega dóma hér í Reykjavík en i sýningarferð úti á landi var mér tekið eins og ég væri aðalleikarinn. Þar fékk ég gríðarlega góðar undirtektir og þá fór sólin að rísa aftur. Það var byrjunin á uppris- unni þegar bókin okkar Ingólfs kom út þá var þunglyndið horfið.“ Hvaða viðhorfhefurðu til gagnrýnenda? „Það hversu alvarlega ég brást við neikvæðri gagnrýni var mér að Vaxtalaus greiðslukjör 1 allt að 24 mánuði (visa/euro) Engin útborgun Sjóntækjafræöingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga GLERAUGNAVERSLUN Gleraugað í bláu húsunum við Faxafen Sími:568 1800^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.