blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 36

blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 36
36 I UNGA FÓLKXÐ 'SM - HRHHPni EH LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaðið Nemar í fyrirtœkjarekstri Starfsmenn DjúsíLífs með verðlaunagripinn sem þeir hlutu á uppskeruhátíð Fyrirtækja- smiðjunnar. Frá vinstri: Sólveig Gærdbo Smáradóttir, Guðrún María Jóhannsdóttir, Bylgja Jóhannesdóttir, Ingunn Hjaltalfn og Hidur Björg Ragnarsdóttir. Sitjandi frá vinstri: Símon Hreinn Ólafsson og Kristján Ægir Vilhjálmsson. Fyrirtækið DjúsíLíf frá Verk- á dögunum. Fyrirtækið sem sjö menntaskólanum á Akureyri nemendur standa að þróaði og fram- var valið fyrirtæki ársins á leiddi drykkinn Mjús með aðstoð uppskerhátíð Fyrirtækjasmiðjunnar Norðurmjólkur. Mjús er hollustu- REIKNISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS FORRITARI Reiknistofnun óskar að ráða forritara. Stofnunin er þjónustustofnun í mjög fjölbreyttu rekstrar- umhverfi. Áhersla er lögð á hátækni og símennt- un í starfi. STARFIÐ • Viðhald og þróun upplýsingakerfa fyrir Háskólann • Þjónusta við notendur kerfanna HUGBÚNAÐARUMHVERFI • PHP vefforritun • Unix, Windows HÆFNISKRÖFUR Leitað er að áhugasömum einstaklingi með menntun og reynslu í forritun vef- og gagna- grunnslausna. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með sjálfstæð vinnubrögð og hafa hæfileika í mannlegum samskiptum og hópvinnu. Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Sjá nánar á www.hi.is/page/storf og www.starfatorg.is Við ráðningar í störf við Háskóla (slands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. drykkur úr mysu og appelsínusafa sem nemendurnir kynntu og seldu í Nettó á Akureyri. Með sigrinum vann DjúsíLíf sér jafnframt þátttöku- rétt í Evrópukeppni Junior Achieve- ment - Young Enterprise sem fram fer í Sviss í byrjun ágúst. Blaðið sló á þráðinn til Bylgju Jóhannesdóttur forstjóra DjúsíLífs til að forvitnast um drykkinn góða og keppnina. Bylgja segir að henni og félögum hennar í fyrirtækinu hafi þótt nám- skeiðið spennandi og því ákveðið að slá til en það er kennt sem valáfangi við skólann. „I upphafi settumst við niður og köstuðum fram hug- myndum. Það komu margar góðar hugmyndir upp á yfirborðið og síðan var skipt í fyrirtæki," segir Bylgja og bætir við að upphaflega hafi reyndar staðið til að framleiða aðra vöru. „Við ætluðum að vera með smákökur og stimpla þær í anda sveitastjórnarkosninganna til dæmis með merki flokkanna og selja þær í körfu með kaffi og kakói. Það gekk ekki alveg upp. Við vorum alltaf að lenda í einhverju veseni. Þá kom upp sú hugmynd að framleiða eins konar orkudrykk og það þróað- ist út i þennan hollustudrykk," segir Bylgja og bætir við að heilmikil vinna hafi legið að baki verkefninu. Hæfileikafólk innan fyrirtækisins „Fyrst þurftum við náttúrlega að gera markaðskönnun til að vita hvort það væri einhver markaður fyrir þessa vöru. Síðan vorum við hálfan mánuð að smakka þetta til. Við fengum Norðurmjólk í samstarf við okkur og þeir framleiddu þetta fyrir okkur auk þess sem við fengum umbúðir hjá þeim, ómerktar fernur sem ein úr hópnum hannaði límmið- ana á,“ segir Bylgja og bætir við að verkefnið hafi leitt í ljós að það væru margir hæfileikaríkir einstaklingar innan fyrirtækisins. Alls voru 8oo lítrar framleiddir af Mjús sem nem- endur kynntu og seldu í Nettó á Ak- ureyri. „Þetta seldist upp á mettíma. Við áttum ekki von á svona góðri sölu. Fólk tók alveg þrælvel í þetta,“ segir Bylgja. Þrátt fyrir miklar og óvæntar vin- sældir Mjús á Akureyri eru engar áætlanir á borðinu um frekari framleiðslu eða markaðssetningu á drykknum. „Við erum enn að reyna að átta okkur á sigrinum og vitum því ekki alveg hvert framhaldið verður. Við ætlum reyndar að fram- leiða eitthvað smávegis til að fara með út í Evrópukeppni JA - Ungra frumkvöðla en höfum mjög lítið rætt framhaldiðsegir Bylgja. 'Kæímra <(ifri appeÉrínulorajjcii JaúsiLiF^,' Útrás DjúsíLífs Fulltrúar um 40 landa taka þátt í Evr- ópukeppni JA - Ungra frumkvöðla sem fram fer í Sviss í byrjun ágúst- mánaðar og er þetta í fyrsta skipti sem íslendingar taka þátt. Þar þurfa nemendur að kynna vöru sína fyrir dómnefnd sem er skipuð fulltrúum ýmissa evrópskra stórfyrirtækja auk þess að setja upp bás þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að smakka. Bylgja segir að keppnin leggist mjög vel í hópinn. „Við erum að vinna í því á fullu núna að útvega styrki til að koma okkur út. Við þurfum að þýða viðskiptaáætlun- ina á ensku og gera þetta þannig úr garði að enskumælandi fólk skilji allt saman,“ segir Bylgja og bætir við að þetta krefjist heilmikils und- irbúnings. „Skólanum lýkur ekkert núna. Við verðum að þessu í allt sumar," segir hún og hlær. Reynir á marga þætti Bylgja segir að hún hafi lært afar mikið af þátttöku sinni í námskeið- inu enda hafi það reynt á marga og ólíka þætti. „Við þurfum nátt- úrlega alveg að hugsa um okkur sjálf. Við þurfum að fá einhvern til samstarfs við okkur og koma okkur á framfæri. Þetta reynir ro- salega á mannleg samskipti eins og til dæmis milli okkar í fyrirtækinu. Það hefur komið upp ágreiningur og hann hefur verið leystur. Það eru náttúrlega alls staðar árekstrar. Það er sama hvort það sé í daglegu lífi, vinnunni eða annars staðar,“ segir hún. Bylgja er viss um að námskeiðið komi til með að nýtast henni seinna meir bæði í námi og starfi. „Ég hef sjálf verið að stefna á markaðsfræði þannig að þetta mun koma mér rosalega vel þar. Ég þurfti náttúr- lega að sjá um markaðskönnun og spá í markaðinn, finna út hvert við stefndum og einblína á þann markað. Það er ein í hópnum sem stefnir núna á grafíska hönnun en hún bjó til fyrirtækjamerkið, umbúðirnar og annað slíkt,“ segir Bylgja en bætir við að aðrir hafi kannski uppgötvað að þetta væri ekki eitthvað fyrir þá. Hún vill að lokum koma á framfæri sérstöku þakklæti til Hilmars Friðjónssonar kennara við VMA og Fjólu Karls- dóttur stuðningsfulltrúa frá Spari- sjóði Norðlendinga sem hafi veitt þeim ómetanlega hjálp. „Þau studdu okkur rosalega vel og hvöttu okkur áfram ef við lentum í einhverri lægð þannig að þau eiga hrós skilið fyrir að þola okkur,“ segir Bylgja að lokum. Engin sýndarveruleiki Fyrirtækjasmiðjan er 13 vikna nám- skeið fyrir framhaldsskólanema sem miðar að því að efla skilning þeirra á fjölbreyttum fyrirtækja- rekstri. Meðal þess sem fjallað er um á námskeiðinu eru lögmál efna- hagslífisins, mismunandi starfssvið og mikilvægi jákvæðra samskipta. Félagasamtökin Junior Achievement - Ungir frumkvöðlar standa að fyrir- tækjasmiðjunni í samstarfi við fram- haldsskóla og atvinnulífið. Nemendur þróa viðskiptahug- mynd og framkvæma nauðsynlegan undirbúning fyrir stofnun fyrir- tækis. Þeir fjármagna stofnunina með sölu hlutabréfa, ráða í stöðugildi og búa til ítarlega viðskiptaáætlun. Henni er hrint í framkvæmd og fyr- irtækið síðan gert upp með ársreikn- ingi og skýrslu í lok tímabilsins. Aðstandendur námskeiðisins leggja áherslu að framkvæmdin sé eins raunveruleg og kostur er. Höndlað er með alvörupeninga og nemendum veitt ábyrgð til mikil- vægrar ákvarðanatöku. „Þetta er ekki sýndarveruleiki. Krakkarnir öðlast haldbæra reynslu og þurfa að eiga við önnur fyrirtæki, viðskipta- vini og náttúrlega hvert annað,“ segir Jenný Jóakimsdóttir verkefnis- stjóri JA - Ungra frumkvöðla. Samstarf skóla og atvinnulífs Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðj- unnar var haldin í aðalstöðvum Glitnis á dögunum. Nærri 250 nem- endur úr sex framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri tóku þátt í smiðjunni að þessu sinni. Námskeiðið er haldið í samstarfi við skólana en einnig taka þátt í því ráðgjafar úr atvinnulífinu sem koma inn í kennslustundir einu sinni í viku. Ráðgjafarnir koma úr fyrirtækjum sem eiga aðild að JA - Ungum frumkvöðlum og njóta nem- endur góðs af reynslu þeirra og þekk- ingu. Að sögn Jennýar hefur áhugi á námskeiðinu aukist frá því að það var fyrst haldið hér á landi árið 2003. „Fleiri skólar ætla að taka þátt í því á næsta ári. Kennarar frétta af þessu og vilja taka þetta upp í sinum skóla. Svo er þetta mjög fjörugt og skemmtilegt verkefni og krakkarnir hafa mjög gaman að þessu,“ segir Jenný. Veganesti fyrir framtíðina Markmið Fyrirtækjasmiðjunnar eru margþætt en meðal annars er námskeiðinu ætlað að efla skilning og þekkingu nemenda á skipulagi og rekstri fyrirtækja, lögmálum efnahagslífsins og áhrifum þeirra og mikilvægi jákvæðra samskipta. Jenný leggur áherslu á hversu mik- ilvæg reynsla þetta sé fyrir nemend- urna. „Þarna sjá krakkarnir hvernig þetta vinnur allt saman. Þeir eru kannski að læra bókhald en hafa aðeins gert það á blaði. Aðrir eru kannski að læra um markaðsmál en hafa aldrei markaðssett eina einustu vöru. Þetta er því reynsla sem nýtist þeim sem veganesti fyrir framtíð- ina,“ segir hún. Jenný bendir jafnframt á að kann- anir sýni að sams konar námskeið erlendis hafi haft ótvíræð áhrif. „Kannanir sýna að 20% þátttakenda í Fyrirtækjasmiðjunni í Noregi stofna sín eigin fyrirtæki fyrir 35 ára aldur en aðeins 4% þeirra sem ekki tóku þátt í verkefninu," segir hún. „Þegar maður er svona ungur og er ekki búinn að mótast of mikið af umhverfinu sér maður að maður getur ýmislegt ef maður bara drífur í því,“ segir Jenný að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.