blaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 4
4 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 bla6ið
Vaxandi ánægja með
þjónustu borgarinnar
Besti vinur mannsins
Niðurstöður nýrrar þjónustu-
könnunar sem staðfestir ánægju
borgarbúa með þjónustu borgar-
innar var kynnt í gær. Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri
sagði að niðurstöðurnar væru
ánægjulegar og sýndu að 85%
viðskipavina þjónustumiðstöðv-
anna væru ánægðir með þá þjón-
ustu sem þeir fengju þar. Sama
könnun sýnir að 92% foreldra eru
ánægðir með þjónustu leikskóla
og 93% þeirra sem fá heimsendan
mat eru ánægðir með þá þjón-
ustu. Þá sýndu niðurstöðurnar að
87% eru ánægðir með þjónustu
frístundaheimila. Aukin ánægja
mælist með með þjónustu Síma-
vers Reykjavíkurborgar miðað
við síðustu könnun í nóvember.
Rétt rúmlega 73% viðskiptavina
telja þjónustuna mjög eða frekar
góða miðað við ríflega 62% í fyrri
könnun.
Steinunn Valdís segir þessar
kannanir gerðar til að fylgjast með
hvernig gangi að ná þeim mark-
miðum sem sett eru upp en síðasta
Borgin að fara í hundana?
Blaðiö/Frikki
Vorið er farið að láta að sér kræla og borgarstjórnarkosningar yfirvofandi. Af
svipbrigðum þeirra Hafdísar og Önnu að dæma leggst þetta allt saman vel (þær.
Hinsvegar verður ekki sagt hið sam.a sagt um Lólítu, Lúðvík, Lovísu og Týru. Það er
greinilegt að hundarnir hafa miklar áhyggjur af ástandinu og eru á því að allt sé að fara
í hund og kött.
Áætlunarferðir strætó 1. maí
Strætisvagnar á höfuðborgarsvæð- 30 mínútna fresti með þeim und-
inu munu aka samkvæmt tíma- antekningum að leið 23 mun aka á
áætlun sunnudaga á verkalýðsdag- klukkutíma fresti og leið 27 mun að-
inn 1. maí næstkomandi. Akstur eins fara sex ferðir.
hefst á öllum leiðum klukkan 10 Akstri lýkur klukkan 23 en stofn-
um morguninn og verður ekið á leiðir aka til miðnættis.
Pizza MarglferitatístkwðOOg
kr259&BB£Em
könnun var gerð í fyrra. „Kannan-
irnar eru stýritæki þar sem hægt er
að fylgjast með hvort þjónusta okkar
fullnægi viðskiptavinunum. Könn-
unin sýnir ennfremur að 77% voru
ánægðir með þjónustu heilbrigðiseft-
irlitsins sem er hátt hlutfall miðað
við að hér er um að ræða eftirlits-
stofnun." Steinunn segir niður-
stöðurnar einnig ýta undir
samkeppni meðal þjón-
ustumiðstöðvanna
en þjónustu þegar
Þjónustumið-
stöðvarinnar í Laugadal-Háaleiti
voru í 89% tilvika ánægðir með
þjónustuna og kemur hún best út úr
könnuninni.
Dæmdir fyrir
illa meðferð
á humri
Veitingastaður í borginni Vicenza á
ftalíu hefur verið dæmdur til þess að
greiða tæpar hundrað þúsund krónur
í sekt fyrir brot á lögum um með-
ferð gæludýra. Brotið fólst í því
að eigendur sjávarréttaveitinga-
staðarins La Conchiglia D’Oro,
eða Gullna skelin, stilltu upp
lifandi humrum í ísfati fyrir
utan veitingastaðinn. Um-
hverfisverndarsinninn og
dýravinurinn Gianpaolo
Cecchetto sá humrana og
ofbauð framferðið svo, að
hann kærði eigendur stað-
arins fyrir illa meðferð á
gæludýrum.
Eigendur staðarins
ætla að áfrýja.
Réttarstaða ítalskra dýra er mjög
sterk. Til að mynda er ólöglegt að
hafa gullfiska í skálum í Rómarborg
g í borginni Tórínó eru þeir sem fara
ekki út að labba með hundinn sinn að
minnsta kosti þrisvar á dag sektaðir
um 45 þúsund krónur.
rl V. ‘S& n WrtlH
Wfcái •, -X ■ • —■' 7 . \
Háværir menntskælingar
fbúum á Egilsstöðum varð mörgum ekki svefnsamt í fyrrinótt þegar útskriftarnemar Menntaskólans á Egisstöðum dimmiteruðu. Svo
mikið gekk á að fjölmargir íbúar í þéttbýlinu hringdu í lögreglu og kvörtuðu undan hávaða að því er fram kemur á fréttavefnum aust-
urlandid.is. Lögreglan sagði leitt að þurfa að trufla svona fagnað en kvað hávaðann nú hafa verið meiri en oft áður þegar hin árlega
dimmisjón útskriftarnema fer fram. Venjan er að hópurinn heimsæki kennara um sexleytið að morgni en nú byrjuðu þeir um þrjú um
nóttina og voru að til klukkan n(u í gærmorgun. A myndinni fagna menntaskælingar á Egilsstöðum dimmisjón að þjóðlegum sið en
ekki skal fuilyrt að hávaðinn í bænum hafi komið frá þeim.
Klámstjörnur
takast á við
Tsjekov
Fox-sjónvarpstöðin er að hefja upp-
ökur á nýjum raunveruleikaþætti
sem spyr þeirrar áleitnu spurn-
ingar: Við vitum að Debbie getur
tekið Dallas, en getur hún tekist á
við Tsjekov?
Þátturinn, sem hefur fengið
nafnið „My Bare Lady“ gengur út
á bandarískar klámstjörnur sem
flytja í frægasta leikhúshverfi Lund-
úna, West End, og sprey ta sig á meist-
araverkum leikhúsbókmenntanna.
David Lyle, framleiðandi þátt-
anna, segir að þeir komi til móts við
þörf áhorfenda til að sjá skemmti-
legt sjónvarpsefni og löngun klám-
stjarna til þess að fást við flóknari
setningar en: Jahérna hér, þarna er
sundlaugarstrákurinn.“
www.expressferdir.is
HEIMSBORGIN -
BERLIN
Fafarsljóri er Hjálmar Sveinsson
27. JÚLÍ - 1. ÁGÚST
í þessari fimm daga ferð verður farið á
alla markverðustu staði Berllnar.
Boðið upp á skemmtilega siglingu í
gegnum borgina, farið á djasstónleika,
kabarett og spennandi veitingahús.
Heilsdagsferð til Potsdam og
Wannsee, staðir sem eiga sér langa
sögu og merkilega Gist á Park Inn
hótelinu á Alexanderplatz í hjarta
borgarinnar.
BORGARFERÐ TIL BERLÍNAR
59.900 kr.
INNIFAUÐ: Rug með sköttum, gisting
I 5 naetur með morgunverði og Islensk
fararstjóm. Fararstjóri Hjálmar
Sveinsson, dagskrárgerðarmaður
» Nánar á www.expressferdir.is
Express Ferðir, Grlmsbæ,
Efstalandi 26, slmi 5 900 100
Express Ferðir
Ferðaskrifstofa i eigu lceland Express