blaðið - 29.04.2006, Side 10

blaðið - 29.04.2006, Side 10
10 I FRÉTTXR LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaAÍA A róandi úti í náttúrunni Reuters Pandabjörninn Xiang Xiang var sleppt út f villta náttúruna í Kína á miðvikudag. Xiang Xi- ang er fjögurra ára. Hann var alinn upp ásamt 180 öörum pöndum á verndarsvæði fyrir risapöndur og er fyrsta dýrið sem fær tækifæri til þess að spreyta sig úti í náttúrunni án afskipta manna. ATVINNA Blaðiö óskar eftir að ráða blaðamann. Viðkomandi mun einkum sinna innlendum fréttum og þarf að geta hafið störf sem fyrst. Krafist er reynslu af fréttaskrifum og góðrar íslenskukunnáttu. Áhugasamir sendi ritstjóra bréf ásamtferilskrá. Póstfangið er: asgeir.sverrisson@vbl.is blaðió B A H/AJ 11 N irhein 790Í/ Álfheimar 6 S.5536280 Kjör barna, umhverfis- og kvenfrelsismál í brennidepli Svandís Svavarsdóttir leggur áherslu á að leik- og grunnskólar verði að fullu gjaldfrjálsir og börn fái frían hádegismat. Svandís Svavarsdóttir skipar fyrsta sæti á lista Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs fyrir komandi borgarstjórnarkosn- ingar. Nú er kosningabaráttnn komin á fulian skrið og því ekki úr vegi að spyrja hana um baráttu- málin, hið pólitíska landslag og hugsanlega samstarfsflokka að kosningum loknum. „Baráttumál okkar eru fyrst og fremst kjör barnanna í borginni, um- hverfismál og kvenfrelsismál. Hvað varðar kjör barnanna í borginni er mikilvægt að átta sig á því að efna- hagur skiptir miklu máli þegar rætt er um aðbúnað barna og tækifæri þeirra. Vinstri grænir setja það á stefnuskrá sína að skóladagur barna verði að fullu gjaldfrjáls, bæði fyrir þau sem eru í leik- og grunnskóla.“ Svandís segir þetta mál vera eitt af því sem Samfylkingin hefur gert að baráttumáli sínu en segir vinstri græna vilja ganga lengra en þá sjö tíma sem Samfylkingin hefur hug- mynd um að hafa gjaldfrjálsa. „Þá er Waring blandarinn er hin upprunalega mulningsvél fró Ámeríku. Tveggja hraða mótorinn er kannski öflugri en eldhúsið þarf, en fer líka létt með erfiðustu verk. Bara massíft stól og gler! Verð fró kr. 16.900,- Auk þessa seljum við hdgœða capuccinovélar. Verslunin KAPFIíiOEJ A homi Grettisgötu og Barónsstígs. Sfmi: 5621029 www.kaffibod.is Svandís Svavarsdóttir. það á stefnuskrá okkar að börn fái frían hádegismat í skólunum. Það er ennfremur á stefnuskrá okkar að styrkja list- og verkgreinar í grunn- skólum, auka hreyfingu og styrkja móðurmálskennslu tvítyngdra barna.“ Þegar kemur að umhverfismálum segir Svandís að bregðast þurfi við hinni miklu svifryksmengum sem verið hefur í borginni. „Ég vil draga úr umferð í miðbænum og legg enn- fremur áherslu á að nagladekkja- notkun bifreiða verði skoðuð. Það er til lítils að byggja upp miðbæinn ef fólk getur ekki dregið andann þar vegna mengunar og það er brýnt að draga úr útblástursmengun. Vinstri grænir leggja áherslu á að endur- reisa SVR og þétta leiðakerfið, þá þurfa ferðir að vera tíðari en nú er. Eins og staðan er núna hafa sam- göngur verið skipulagðar út frá einkabílnum en ég vil leggja áherslu á að strætó fái forgang í umferðinni og að farið verði að líta á reiðhjól sem samgöngutæki en þá þarf að styrkja net hjólreiðabrauta í borginni.” Svan- dís segir að vinstri grænir muni enn- fremur leggja áherslu á að standa vörð um grænu svæðin í og við borg- ina eins og Brennisteinsfjöll, Ellið- arárdalinn og fjörurnar í nágrenni borgarinnar. Launaleynd stuðlar að launamisrétti Svandís segir launaleynd einn lið í því að viðhalda launamisrétti og aJe - ,yo<ynclóto/>ci aíía heícjrina ÁiuírótarÁaÁa með marsipan yufrót oy ÁróÁant. rúur<$90. TJerð nú 490. segir brýnt að aflétta henni. „Launa- leynd er ennfremur einn helsti óvinur kjarabóta en launaleynd tíðk- ast ekki aðeins hjá einkafy rirtækjum heldur einnig hjá Reykjavíkurborg.“ Svandís segir vinstri græna vilja beita sér gegn kynjamisrétti og kynbundnu ofbeldi og segir mikil- vægt að styrkja ennfekar félagasam- tök eins og Stígamót og kvennaat- hvarfið. „Eg vil útrýma klámi úr opinberu rými,“ segir Svandís og á þá við bækur, tímarit og myndbönd í hillum verslana. Þá viljum við gera tilraun til að banna súlustaði í Reykjavík því við vitum að slíkri starfsemi fylgir jafnan vændi og jafnvel mansal. Sundabrautin í göng Svandís segir að þátttaka allra í ákvarðanatöku sé undirstaða lýð- ræðisins og vill að íbúar borgar- innar hafi meira um málin að segja. „Gott dæmi um þetta er Sundabraut- armálið þar sem íbúasamtök höfðu afdrífarík áhrif á gang mála.“ Þegar kemur að staðsetningu Reykjavíkurflugvallar segir Svandís að hér sé á ferðinni mál sem snerti alla landsmenn og að málið sé á borði allra pólitískra flokka. „Hug- mynd okkar um að flytja flugvöll- inn upp á Hólmsheiði byggir fyrst og fremst á framtíðarþróun höfuð- borgarinnar en sá flugvöllur væri miðsvæðis ef litið er til svæðisins frá Borgarnesi að Árborg og þessi stað- setning myndi stytta flug til margra staða á landsbyggðinni.“ Svandís segir að þetta sé ekki eini möguleik- inn í stöðunni en er ekki hrifinn af þeirri hugumynd að staðsetja flug- völlinn á Lönguskerjum, m.a. vegna náttúruverndarsjónarmiða. Útilokar ekki samstarf við neinn flokk Svandís útilokar ekki samstarf við neinn flokk að kostningum loknum þó hún segir Vinstri græna standa næst samfylkingunni. Þrátt fyrir að vera nýliði í pólitík er Svandís hvergi banginn og segir kosningabaráttuna leggjast vel í sig. „Ég finn fyrir miklum stuðningi frá fólki og ég tel að það sé pláss fyrir nýja hugsun og ferska vinda í pól- itíkinni. Skoðanakannanir hafa sýnt að vinstri græn eru á öruggri uppleið og eru nú að sýna 10-12% fylgi. Vinstri grænir eru að fá góðan meðbyr hér í borg sem á landsbyggð- inni“, segir Svandís og nefnir gott fylgi framboðsins í Árborg á Akra- nesi og Akureyri.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.