blaðið - 29.04.2006, Page 18
18 I DEIGLAN
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaöiö
Margt í boði á 1. maí
Blaíiö/Frikki
Blásið verður til hátíðarhalda víða um land í tilefni af baráttudegi verkalýðsins þann
l.maí.
Stefna, félag vinstri manna, heldur
árlegan morgunfund á baráttu-
degi verkalýðsins í áttunda skipti
á Mongo sportbar í Kaupangi kl.
10:30.
Ræðumaður dagsins er Atli
Gíslason, hæstaréttarlögmaður.
Steinunn Rögnvaldsdóttir mennta-
skólanemi syngur og meira verður
sungið oglesið upp sem snertir mál-
stað dagsins. Allir eru velkomnir.
Hin árlega kaffisala Kristniboðs-
félags kvenna verður í Kristniboðs-
salnum að Háaleitisbraut 58-60,
mánudaginn 1. maí, kl. 14-17. Þar
verða að vanda ljúfar kræsingar á
boðstólnum sem gott er að renna
niður með kaffisopanum.
Kristniboðsfélag kvenna er elsta
kristniboðsfélag á landinu stofnað
1904. Félagið hefur stutt starfið í
Asíu og Afríkulöndunum Eþíópíu
og Kenýju dyggilega. Ein af fjár-
öflunarleiðum þess er hin árlega
kaffisala. Starf kristniboðsins er
í stöðugum vexti og verkefnin
óþrjótandi hvort sem það er við
boðun Guðs orðs, neyðarhjálp eða
ýmis þróunarverkefni.
Opið hús hjá MÍR
Menningartengsl Islands og Rúss-
lands (MÍR) verða að venju með
„opið hús“í nýju félagsheimili MlR
á Hverfisgötu 105 á baráttudegi
verkalýðsins kl. 14 -17.
Þar verður kaffisala og boðið
upp á hið rómaða MÍR-hlaðborð,
efnt til lítillar hlutaveltu og gestir
koma í heimsókn, taka lagið og
leika á hljóðfæri. Myndverk eftir
Sigrid Österby verða til sýnis og
viðstaddir geta fengið upplýsingar
um fyrirhugaða hópferð sem MÍR
stendur fyrir í samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Bjarmaland til Rúss-
lands í septembermánuði.
Átta listamenn sem eru með
vinnustofur á Korpúlfsstöðum
opna vinnurými sitt almenningi
þann 1. maí milli kl. 15 og 17. Lista-
mennirnir hafa orðið varir við
mikinn áhuga almennings á starfi
þeirra og til að koma til móts við
hann verður opið í tvo daga þennan
eina dag. Kaffi verður á boðstólum
og gestum og gangandi gefst kostur
á að berja augum verk listamann-
anna sem eru ólík og unnin í mis-
munandi miðla. Listamennirnir
eru Björg Þorsteinsdóttir, Guðbjörg
Hákonardóttir, Gunnar Þ. Jónsson,
Margrét Jónsdóttir, Marisa Arason,
Sari Maarit Cedergren og Þuríður
Sigurðardóttir.
Ungbarnafötin
eru komin
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - Akureyri: Glerárgata 32
NORÐUR
Trans-Atlantic og MasterCard
efna til ferðar til Mexíkó.
10.500 kr. afsláttur á hvern fjölskyldu meðlim
MasterCard korthafa 12 ára og eldri.
Brottfarir: 24. maí, 4 sæti íaus. og 7. júní. 13 nætur.
(ath Ukmarkað saeumagn)
Heillandi Maya menning. óviðjafnaleg endalaus hvít strönd og kristal-
tær sjórinn. kóralrif, næturlíf. verslanir, ævintýraferðir og frumskógur.
4 og 5 stjömu lúxus hótel með allt innifalið: ótakmarkaður matur og
drykkir, óáfengir og áfengir, öll afþreying. skipulögð skemmtidagskrá
og stórsýningar (show) á hverju kvöldi.
Nánari upplýsingar
www.transatlantic.is
Verð frá
85.0001
A
Trans-Atlantic
Sfmi 588 8900 • www.transatlantic.is
Aðalfundur
Landverndar
Aðalfundur Landverndar 2006
verður haldinn á Garðaholti í
Garðabæ í dag og hefst kl. 11.
Fundarins bíður það verk-
efni að marka samtökunum
stefnu um vegagerð á hálendi
Island og framtiðarsýn fyrir
Reykjanesskaga.
Umhverfisráðherra mun
ávarpa fundinn við setningu
hans en einnig hefur sveitar-
stjórnarmönnum á svæðinu
verið sérstaklega boðið til
fundarins.
Fundurinn er öllum opinn.
Atkvæðisrétt hafa fulltrúar
aðildarfélaga Landverndar og
einstaklingar sem eru félagar í
Landvernd.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa og umfjöllunar um stefnu-
markandi mál mun Jónatan
Garðarsson fjalla um náttúru
höfuðborgarsvæðisins og ná-
grennis þess.
Þá kynnir Ólöf Guðný Valdi-
marsdóttir arkitekt skýrslu sem
Landvernd hefur látið vinna
um hálendisvegi. I lok fundar
verður boðið í skoðunarferð um
Álftanesið þar sem Freysteinn
Sigurðsson greinir frá jarðsögu
og Ólafur Torfason fuglalífi.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
^^artaHeill
sítni 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Blaðiö/Frikki
Sigurður Guðmundsson formaður Trjáræktarklúbbsins er sannfærður um að mun fleiri
trjátegundir geti þrifist hér á landi en gera nú. Klúbburinn stendur fyrir málþingi um
fjölgun trjátegunda í Odda i dag.
300 ára verkefni
Hœgt er að rœkta miklu fleiri tegundir aftrjáplöntum hér á landi
en gert er svo framarlega sem rétt er að staðið aö mati Sigurðar
Guðmundssonar formanns Trjárœktarklúbbsins. Klúbbfélagar
hafa meðal annars uppi háleitar hugmyndir um uppbyggingu
trjásafns að Mógilsá. í dag kl. 11 stendur Trjáræktarklúbburinn
að málþingi um fjölgun trjáplantna í rœktun á íslandi.
Sigurður Guðmundsson segir að
málþingið sé fyrst og fremst haldið
til að vekja athygli á þvi að hægt
sé að gera miklu meira í trjárækt
en gert sé núna. „Við viljum draga
það fram að það er hægt að rækta
miklu fleiri tegundir af trjáplöntum
en gert er svo framarlega sem rétt
er að staðið,“ segir Sigurður. Klúbb-
félagar hafa í gegnum tíðina flutt
inn fræ hvaðanæva að en það getur
reynst þrautin þyngri að finna út
hvaða tegund hentar við íslensk skil-
yrði. „Tegund sem þrífst á Bretlandi
getur drepist á íslandi en ef þú færð
afbrigði af henni frá stað þar sem er
harðari veðrátta getur hún lifað. Ég
er til dæmis búinn að drepa mörg
eintök af aski sem ég fengið frá Dan-
mörku og Bretlandi en sama tegund
frá Skotlandi lifir alveg ljómandi
vel og askur frá Norður Noregi lifir
ágætlega,“ segir Sigurður.
Að sögn Sigurðar þrifast margar
þær trjátegundir sem fluttar hafa
verið inn betur á íslandi en gömlu ís-
lensku plönturnar. „Það eru margar
tegundir sem eru miklu harðgerðari
en gamla íslenska birkið,“ segir Sig-
urður og bætir við að hann sé sann-
færður um að til séu miklu fleiri
tegundir sem geti skotið hér rótum í
bókstaflegri merkingu'.
Trjásafn við Mógilsá
Sigurður segir að Trjáræktarklúbb-
urinn hafi einmitt verið stofnaður i
því skyni að sameina fólk sem hefði
áhuga á slíkum tilraunum þannig
að fólk gæti notið góðs af reynslu
og þekkingu félaga. Jafnframt hafa
kíúbbfélagar uppi hugmyndir um
að koma upp trjásafni við rann-
sóknarstofnunina að Mógilsá þar
sem hægt verði að gera frekari til-
raunir með nýjar trjátegundir. „Við
viljum gjarnan hafa þarna svæði
til að planta eintökum af því sem
við erum að prófa enda eru skilyrði
þarna mjög góð. Þarna er reyndar
fyrir vísir að trjásýnisafni sem við
viljum gjarnan sjá stærri,“ segir Sig-
urður og bætir við að klúbburinn sé
að fara af stað með 300 ára verkefni.
„Við munum ekki lifa það að sjá þetta
trjásafn fullplantað. Við teljum að
við séum að fara af stað með stórt
verkefni og erum mjög spenntir yfir
þessu,“ segir hann.
Málþingið hefst kl. 13 í dag og er
haldið í Odda, húsi Háskóla Islands,
stofu 101. Öllum er heimill aðgangur
og er hann ókeypis.
Á málþiginu mun Axel Kristins-
son tala um hlutverk trjáklúbbs og
trjásafns í fjölgun tegunda, Aðal-
steinn Sigurgeirsson ræðir mögu-
leika trjásafns að Mógilsá, Þröstur
Eysteinsson fjallar um þróun og að-
lögun tegunda og erindi Þorbergs
Hjalta Jónssonar nefnist „Salt og
trjárækt."
Sérstakur gestur málþingsins
verður Jukka Reinikainen, forstöðu-
maður Mustila trjásafnsins í Finn-
landi (www.mustila.com) en það
hefur verið mikilvirkt í að finna
og þróa tegundir til ræktunar í
Finnlandi.
Fundarstjóri verður Guðríður
Helgadóttir forstöðumaður starfs-
. og endurmenntunardeildar Land-
búnaðarháskóla Islands.