blaðið - 29.04.2006, Page 30

blaðið - 29.04.2006, Page 30
301 TÍSKA LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaðið SNYRTI- FRÆÐINGURINN MARÍA BJÖRGTAMIMI Fallegir fætur Öll viljum við hafa fallega og heilbrigða fætur, en oft er mikið álag á þessum hluta líkamans. Stundum vill það gleymast að hugsa um fæturnar yfir vetrartím- ann, og við höfum þá innilokaða í sokkum og oft þröngum skóm. Svo þegar sumarið kemur er það frekar ófögur sjón sem blasir við: Uppsafnað sigg, þurrkur og negl- urnar oft orðnar stökkar og gular. Þá er gott að geta leitað sér aðstoðar hjá vandvirkum snyrtifræðingi eða jafnvel fótaaðgerðafræðingi eftir umfangi vandans. Fyrir þær sem vilja viðhalda fót- unum sjálfar mæli ég með að farið sé reglulega í notarlegt fótabað með olíu eða baðsalti til þess að mýkja húðina. Gott er að nota rasp reglu- lega og þá séstaklega á hælana, en best er að nota raspinn í sturtunni því oft kemur mikið skinn af hæl- unum. Einnig er til grófgert korna- krem sem vinnur vel á húðinni, og með því að nota það reglulega getum við náð dauðum húðfrumum af yfir- borðinu og húðin fær ferskari blæ. Hafið í huga að klippa tánegl- urnar beint, því ef farið er of mikið í hliðarnar gæti það skapað vanda- mál, t.d. inngrónar neglur. Þjölum svo vel ofaná neglurnar, því þær eru oft þykkar og gular, og með því að þjala yfir þær náum við mestöllum litnum í burtu. Ljúkum svo verkinu með því að setja fallegt lakk á neglurnar og þá lítur þetta allt betur út! Það er mjög mikið úrval af fóta- kremum á markaðnum en eitt af því sem ég hef notað sjálf að staðaldri eru fótavörur frá merkinu LCN. Það er til mikið úrval af meðferðar- vörum fyrir fætur og neglur í þessu merki, þannig að hver og einn ætti að finna eithvað við hæfi t.d fótasölt, krem og úða sem henta öllum húð- gerðum og eru mjög frískandi fyrir húðinna. LCN hefur m.a. þróað með- ferð við sveppum í nöglum, og til er gel sem getur hjálpað, svipað efni og notað er í gervineglur. Með því að fá „French manicure" gel meðferð á táneglurnar er mögulegt að vinna á naglasvepp og fegra útlit naglanna í leiðinni. Þessa meðferð er líka hægt að nota ef nögl hefur dottið af eða er afskræmd á einhvern hátt. Semsagt hún er útlitsbætandi fyrir hvern sem er, og þá séstaklega fyrir þær sem að vilja spóka sig á sandölum eða opnum skóm í sumar. Það er púkó að vera oí smart Eyrún Magnúsdóttir, dagskrár- gerðarkona í Kastljósinu, er ein þeirra kvenna sem allaf er eftir- tektarverð, einmitt vegna þess hversu einfaldan stíl hún hefur. Látleysi hennar hefur orðið örðum konum til eftirbreytni en nafn hennar ber einatt á góma þegar nefndar eru glæsilegustu konur íslands. Blaðið fékkEyr- únu til að gefa lesendum innsýn í hugmyndir hennar um tísku. Hvað er tíska íþínum augum? Er ekki tiska bara það sem er “inn” hverju sinni eða eitthvað svoleiðis. Bendi svo bara á íslenska orðabók, sem eflaust býður betri skilgrein- ingu en ég. Fylgist þú mikið með tískunni? Verð að viðurkenna að það geri ég ekki nema að takmörkuðu leyti. Hef bara aldrei dottið inn í að lesa tísku- blöð eða pæla mikið í hvað er inn og hvað ekki. Finnst, eins og líklega flestum, gaman að eiga flott föt sem fara mér vel en mér leiðist leitin að þeim hins vegar ákaflega mikið. Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn? Úff, það veit ég ekki. Veit hvað mér finnst flott, en pæli voðalega lítið í því hver hannar eða framleiðir snilldina. Eyrún Magnúsdóttir dagskrárgeröarkona í Kastljósinu. Blaöii/Steinar Hugi Hvaða tískutímabil heldurðu upp á? Verður maður ekki að nefna „eighties" tímabilið. Svo dásamlega ljótar flíkur og skelfilegur stíll að maður eiginlega getur ekki annað en dáðst að því að fólk hafi látið sig hafa það að ganga í þessu. Hvaðaflík er í uppáhaldi hjá þér og afhverju? Ég held mest upp á svart prjóna- sjal sem ég keypti í handavinnunni á Hrafnistu í Reykjavík. Það er hlýtt, fallegt og passar við allt, enda nota ég það í miklu óhófi. Hvaðfinnst þér ekki klceða þig? Það er margt. Til dæmis myndi ég aldrei getað verið í neinu sem er gult á litinn. En annars held ég að ég noti svona io% af fataskápnum mínum, afgangurinn er eitthvað sem ég einhvern tímann keypti af því mér fannst það flott í 3 mínútur en hef síðar áttað mig á að það fer mér ekki. Ég er gríðarlega mistæk í fatakaupum enda finnst mér leitin að hinni fullkomnu flík ekkert sér- lega skemmtileg þótt fundurinn geti verið ánægjulegur. Áttu þér uppáhaldsfylgihlut? Ætli það séu ekki belti og eyrna- lokkar. Ég á alveg haug af beltum og held sérstaklega upp á eitt sem lítur út eins og byssubelti. Tek það samt fram að ég er friðarsinni þannig að þetta er kannski út úr karakter. Samt kúl belti. Hvernig skóm finnst þér best að ganga í? Geng nú oftast í strigaskóm, en fast á hæla þeirra koma brúnu kú- rekastígvélin mín sem eru alveg frábær. Hvað er púkó? Það er púkó að vera of smart. Þegar lúkkið er svo svakalega úthugsað og allt voða mikið í stíl þá fyrst fer maður að vera púkó. Afslappað en kúl er málið ef maður vill forðast að vera púkó. Tískuinnkaup á tímum verðbólgunnar Nú þegar verðbólguspár greiningadeilda bankanna hrynja inn og gefa vísbendingar um að best fari á að draga saman í tískuvarningsneyslunni er eins gott að vera séður ef ætlunin er að halda uppi lágmarks endurnýjunarkröfu fataskápsins. f Skeifunni er að finna fjöldann allan af svokölluðum outlet-mörkuðum, sem útleggst á góðri íslensku, útsölumarkaður. Þar er hægt að gera góð kaup á tískuvarningi, sem vissulega er kannski ekki nýjasta tíska, en nú þegar allt er leyfilegt í fatavali, hvaða máli skiptir það þá? Helsta vanda- málið eru stærðirnar því oft dettur maður niður á fallega flík sem er ekki alveg í réttu númeri. Á móti kemur að úrvalið er mikið svo þá er bara að halda áfram að gramsa og finna eitthvað annað... IH. Wí Með pop og kók á leið í bíó Allir bolir I Blend Outlet, Faxafeni 9, kosta 700 krónur og eitt verö er á buxum, 1.500 kr. Bleika veskið kostar 500 kr. og leðurtöflurnar kosta 1.000 kr. en allar vörurnar eru frá Blend. BOLDA Heildarverð 3.700 kr. :.V Fyrir ísbíltúrinn um helgina Þetta skærbleika pils frá Privat Label kostar 1000 krónur og fer vel með þessum toppi frá gsus sindustri- es sem er á tilboði á 990 krónur. Með þessum sérlega glæsilegu sandölum frá Malene Birger kostar allur pakkinn BOLDA 6.980 krónur. Fæst í Outlet 10, Skeif- unni 10. DAVIDOFF Ertu á leið í sumarbrúðkaup? Fallegur og sumarlegur bómullarkjóll frá InWear sem kostar ekki nema 2.990 kr. í dag en kostaði áður tæp- ar tíuþúsund krónur. Skórnir eru úr spænsku leðri og kosta nú 990 kr. Voru áður á 10.990 kr. Fæst f Outlet 10, Skeifunni 10. BOLDA Heildarverð 3.980 kr. m r f sumardagsins önn Þessi kvartermajakki frá Privat Label kostar ekki nema 5.990 kr. f dag, en hálsmálið er sérlega fallegt og sniðið hentar vel fyrir smágerðar konur. Hann kostaðir áður 11.990 kr. Diesel gallabuxurnar eru á tilboði og kosta 1000 krónur. Again&Again skórnir, sem fáanlegir eru i mörgum litum, kosta 500 krónur. Fæst i Outlet 10, Skeifunni 10. BOLDA Heilarverð 7.490 kr.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.