blaðið - 29.04.2006, Side 34
34 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaöið
Sönglað í umferðinni
Ég held að við séum flest alltof upptekin af því hvað aðrir
halda um okkur. Við viljum ekki líta hallrærislega út eða
vera sjálfum okkur til minnkunar á einn eða annan hátt og
göngum jafnvel ansi langt í því að svo verði ekki, m.a. með
því að sniðganga hátterni sem annars myndi sannarlega
njóta við. Þetta er nú kannski ekki spennandi viðfangsefni
en þegar ekki er um auðugan garð að gresja í hugmyndabank-
anum fá svona vangaveltur sinn skerf.
Skömmustutilfinning getur gert vart við sig á öllum vett-
vangi; með kærastanum, vinunum, í vinnunni, veislunum og
það sem meira er - með fólki sem maður þekkir ekki! Hvað er
þetta með okkur að pæla svona mikið í því hvað aðrir halda?
Við til dæmis sleppum því að taka sporið inn í stofu af ótta
við að einhver sé á göngu fyrir utan og sjái okkur, við ljúgum
e.t.v þegar það er hallærislegt að segja satt og fylgjum ekki
okkar eigin hvötum þegar það „á ekki við.“
Ég lenti einmitt í skemmtilegu atviki núna í gær. Ég var að
keyra í þessu líka blíðskaparveðri, með viðeigandi músík í
eyrunum og að farast úr fíling. Áður en ég vissi af var ég farin
að syngja hástöfum (og þá meina ég hástöfum og
með tilheyrandi látum) og lifa mig svo hrikalega
inn í lagið að ekkert fékk mig stöðvað. Svo kom
að þeim kafla lagsins þar sem ég þurfti að leggja
mig alla fram til að ná hánótum lagsins og þandi
raddböndin eins og óperusöngkona, með tilheyr-
andi grettum og látum í andlitinu. Nema hvað.J
í miðjum klíðum gjói ég augunum til hliðar og
sé mér til mikillar skelfingar bíl mér við hlið
með tveimur glottandi pésum. Guð minn góður
hugsaði ég með mér og það rann kalt vatn milli
skinns og hörunds. Eitthvað varð ég nú að gera
til þess að koma mér undan þessum hræðilegu
aðstæðum og ákvað á svipstundu að troða lúk-
unum upp í munn og láta eins og ég væri að laga
eitthvað í tönnunum á mér. Já, laga eitthvað í
tönnunum!!! Eins og gefur að skilja hefur þetta
komið ansi spánskt fyrir sjónir - ég með lúkurnar
í kjaftinum, rauð í framan og með nördahrollinn
Ertu sannur vinur?
mm
frá tám og uppúr. Eftir á að hygggja hefði
ég kannski ekki þurft að tapa mér svona
skelfilega, því að á endanum urðu það
áhorfendurnir í næsta bíl sem urðu sér
til skammar með því að keyra út í kant
meðan á glápinu og hlátrinum stóð!
Já, svona getur þetta verið.
Kannski eigum við bara að sleppa
áhyggjum af viðhorfum annarra leyfa
okkur að spígspora syngjandi í stof-
unni með kústskaftið fyrir míkrafón,
eða lifa okkur inn í melodíurnar í
bílnum. Það er þá bara algerlega á
ábyrgð hinna að halda ekki svefni
yfir hallærislegheitunum, nú eða
bara klessa á!
halldora@bladid.net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Það er alltaf gott að eiga góða að
og sannir vinir eru raunveruleg
auðlind, fyrir þá sem eru svo
heppnir að umgangast þá. Eins
gott og það er að eiga sannan
vin getur það líka verið gefandi
að vera sannur vinur. Hvað með
þig, ert þú sannur vinur? Svaraðu
þessum áhugaverðu spurningum
og þá veistu svarið innan skamms.
IVinkona þín hringir um
miðja nótt frá lögreglustöð-
inni, hún er hágrátandi og
greinilega i uppnámi. Hvað gerir
þú?
a) Ég skelli tafarlaust á. Það er dóna-
legt að vekja fólk á nóttinni.
b) Ég reyni að róa hana og fá að vita
hvað kom fyrir. Ef mögulegt er þá fer
ég á lögreglustöðina og sæki hana.
c) Ég leyfi henni að segja mér frá
hvað gerðist og sýni henni sam-
kennd. Vonandi liður henni betur
eftir það samtal.
d) Eg segi henni kurteislega að ég
hafi verið sofandi og geti því miður
ekJd velt mér upp úr hennar vanda-
málum á nóttinni.
Hvað er það skemmtilegasta
við að hitta vini þína?
a) Það er alltaf stuð á okkur
og ég skemmti mér sjaldan betur.
b) Það er skárra heldur en að sitja
heima og horfa á sjónvarpið.
c) Þeir skilja mig og láta mér líða
vel.
d) Þær eru bara svo yndislegar og í
raun hluti af mér.
3Hve miklu máli hefur
vinskapurinn skipt þig í
gegnum tíðina?
a) Vinkonur mínar hafa þrosk-
ast með mér og við höfum gengið i
gegnum margt saman. Þótt þær séu
ekki fullkomnar þá myndi ég ekki
velja neinar umfram þær.
b) Allir verða að eiga einhverja vini
til að djamma með.
c) Töluverðu máli enda væri ég
ekki sú sem ég er i dag án þeirra.
d) Vinskapurinn hefur skipt mig
máli enda kaus ég að halda honum
í gegnum árin.
Þú sérð mann vinkonu
þinnar í ástríðufullum
kossi við einhverja gellu á
skemmtistað. Eftir það ganga þau
út saman hönd í hönd. Daginn
eftir fréttirðu frá vinkonunni að
maðurinn hafi komið heim seint
um morguninn og sagst hafa verið
í partíi. Hvað gerir þú?
a) Ég vorkenni henni sárlega og
sendi henni nafnlausan tölvupóst
um að maðurinn hennar hafi sést
kyssa aðra konu.
b) Greyið hún en ég vissi alltaf að
maðurinn hennar var auli.
c) Hlæ innra með mér. Hún á þetta
skilið eftir að hafa alltaf náð gæj-
unum sem ég vildi.
d) Fer heim til vinkonu minnar og
segi henni hlutlaust hvað ég sá. Ég læt
hana vita að ég muni styðja við bakið
á henni sama hvað hún ákveður að
gera.
5Vinkona þín hefur lengi bar-
ist við aukakílóin en náði
þeim loksins af sér fyrir
nokkrum árum síðan. Eftir barns-
burð hlóðust kílóin á hana aftur
og hún er greinilega vansæl vegna
þess. Hvað gerir þú?
a) Þettaervitanlegaleiðindamálen
það er varla nokkuð sem ég get gert í
þessu.
b) Reyni að styðja hana og kem
aldrei með nammi eða annað góð-
gæti í heimsókn til hennar.
c) Mér finnst þetta rosalega leiðin-
legt en minnist ekkert á þetta til að
gera hana ekki enn daprari. Hins
vegar sting ég upp á nýrri, skemmti-
legri líkamsrækt og dreg hana með
mér undir því yfirskini að mér finn-
ist leiðinlegt að fara ein.
d) Fitubollan getur bara hætt að éta
og hreyft sig, þannig renna kílóin af
henni.
6Vinkona þín segir þér frá
viðkvæmu máli sem snertir
samband hennar og biður
þig að halda því fyrir þig. Hvað
gerir þú?
a) Um leið og ég er komin heim
hringi ég í hina vinina og segi þeim
frá þessu. Saman hlæjum við af því
hve aumkunarverð hún er.
b) Ég segi vitanlega ekki neinum
frá þessu enda ekki mitt að segja.
c) Ég segi bara bestu vinkonu
minni frá þessu en bara því hún lof-
aði að segja ekki neinum.
d) Mig dauðlangar að segja mann-
inum mínum frá þessu en tekst að
þegja yfir þessu. Að minnsta kosti í
bili.
Þú ert í saumaklúbbi og
það vantar eina vinkonuna.
Hinar nota tækifærið og tala
illa um hana allt kvöldið, hvað
hún sé frek og eigingjörn. Hvað
gerir þú?
a) Vitanlega tek ég ekki þátt í svo-
leiðis subbuskap. Ég segi stelpunum
að ef þær hafi eitthvað að segja um
vinkonu okkar ættu þær að segja
það við hana og gefa henni tækifæri
til að verja sig.
b) Ég skammast mín fyrir að taka
þátt í svona umræðum en geri það
samt. Það er bara svo gaman að
slúðra.
c) Ég slúðra ekki sjálf um hana
en kann samt ekki við annað en að
hlusta. Ég meina, hinar stelpurnar
eru líka vinkonur mínar.
d) Vitanlegatekégþáttísvonaupp-
Iífgandi og fræðandi umræðum, en
ekki hvað.
8Vinkona þín er að fara að
gifta sig og það er heilmikill
undirbúningur framundan,
þar á meðal gæsaveisla, kaupa gjöf-
ina og margt annað. Tekur þú þátt
í þeim undirbúningi?
a) Já vitanlega. Það er fátt skemmti-
legra en að vera í hringiðunni og
undirbúa einhver skemmtilegheit.
b) Nei, mæti bara í boðið og passa
mig á að líta eins vel út og ég mögu-
lega get.
c) Eg fylgist með honum og mæti
vitanlega en er sjálf of upptekin til
að taka þátt í öllu þessu ati.
d) Já, égveitað vinkonamínvillað
þessi dagur verði fullkominn og ég
geri mitt besta til að tryggja að svo
verði.
Teldu stigin saman
i. a) 1 b) 4 c)3 d)2
2. a) 2 b) 1 c)3 d) 4
3. a)4 b) 1 c)3 d)2
4. a)3 b)2 c)1 d) 4
5. a)2 b)3 04 d) 1
6. a) 1 b)4 02 d)3
7. a)4 b)2 03 d) 1
8. a) 3 b) 1 02 d)4
0-10 stig:
Það væri ofsögum sagt að kalla þig
sannan vin. Raunar ertu einmitt and-
stæðan. Þótt þér Ifki eflaust vel við vini
þina þá færðu Ifka einhverja ánægju út
úr því að sjá þá óhamingjusama og sára.
Sennilega hefur sjálfstraust þitt eitthvað
um það aö segja og þú þarft að átta þig
á að ólukka vina þinna gerir þig ekki
lukkulegri. Taktu til í kolllinum á þér og
farðu að bera virðingu fyrir vinum þínum.
Hver veit nema þér sjálfri myndi Ifða
beturviðþað.
11-19 stig:
Hvað vinum þlnum finnst um þig skiptir
þig litlu máli en Ijóst er að þeir koma aldr-
ei til með að kalla þig sannan vin. Þótt
þú sért langt frá þvi að vera illkvittinn þá
hefurðu gaman af slúðri, baktali og slíku.
Það er aldrei vænlegt vilji maður halda i
vini sína og þvi ættirðu að íhuga hegðun
þina. Það er hægt að slúðra um alla en
það þarf sannan vin til að verja aðra.
Komdu vel fram við vini þína og þeim
mun eflaust fjölga í kjölfarið.
20-27 stig:
Þú ert svo sannarlega góður vinur og
átt eflaust marga trausta vini. Vinir þínir
leita til þin og treysta á þig. Það er gott
að eiga góða að og þú f innur eflaust fyrir
þvf líka. Þú virðist líka kunna jafnvægið
á milli þess að vera sannur vinur án þess
að fórna þér algjörlega, sem er jákvætt.
Hins vegar vantar aðeins upp á að þú
sért sannur vinur en sennilega mættirðu
lagfæra heiðarleika þinn gagnvart vinum
þínum. Batnandi manni er best að lifa.
28-32 stig:
Þú ert tvimælalaust sannur vinur og berð
þá nafnbót vel. Þú ert alltaf til staðar þeg-
ar vinir þínir leita til þfn og þú gerir meira
en margur til að leggja þeim lið. Vinir þfn-
ír meta þig mikíls og nýta hiklaust krafta
þina. Sem getur lika verið galli því það er
öllum nauðsynlegt að eiga einhvern tima
fyrir sjálfan sig. Það er gott og blessað
að vera sannur vinur en þú ættir kannski
að segja nei einstaka sinnum. Þrátt fyrir
að vinirnir skipti miklu máli þá skiptir þú
ennþá meira máli.