blaðið - 29.04.2006, Page 54
54 IFÓLK
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaöiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Ummmm...
Hjálmar Arnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði í fréttum í vikunni að hann teldi þingmenn Framsóknarflokks-
ins ekki nógu samstillta.
Nemendur Kvennaskólans, Borgarholtsskóla og Menntaskólans f Hamrahlíð
dimmiteruðu á Austurvelli í blíðunni í gær.
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins
Eru framsóknarmenn ósamstilltir?
„Mælingar á fylgi benda til þess að strengir forystunnar og kjósenda séu ekki
vel stilltir saman. Að minu mati þarf að vera samræmi milli þess sem menn
segja og gera og þess sem menn hafa gefið sig út fyrir að standa fyrir. Það
er mikilvægara heldur en hvort það sé munur á málflutningi manna innan
þingflokksins. Sá munur á rætur að rekja til þess að athafnir eru kannski
ekki í samræmi við stefnu."
Meðlimir hljómsveitanna Rass og Trabant voru viðstaddir blaðamannafund i tengslum
við Reykjavík Rokkar tónlistarhátíðina sem haldin verður I sumar.
Þessar stelpur skemmtu sér á trampólíni
við Laugardalshöll í góða veðrinu í gær.
UR VERALDLEGRI
FÁTÆKT YFIR í
ANDLEGA
fslendingar hafa náð þeim undraverða ár-
angri að breytast úr einni fátækustu þjóð
Evrópu yfir í þá leiðinlegustu. Og það á
aðeins hundrað árum.
Hér á landi bjuggu forðum sjómenn og
bændur. Fremur fábrotið fólk sem sagði lít-
ið, drakk mikið og var ekki mikið að æsa
sig yfir hlutunum. Enda bjó þetta fólk að
sagnaarfi og menningu sem kennir að líf
á norðurslóðum er fábrotið og það eina
sem breytist í tilverunni er að veðrið er
misvont. Þetta fólk fór til sjós og eltist
við rollur og seldi svo til útlanda saltfisk
og nokkra ullarhnoðra og fékk púrtvln og
kaffi f staðinn. Raunveruleg framleiðsla á
verðmætum átti sér stað.
En svo hélt nútíminn innreið sína í
íslenskt samfélag. Fábreytnin vék fyrir
leiðindum.
I leiðindasamfélagi samtímans fram-
leiðir engin neitt. Þess í stað fundar fólk.
Og það er alveg skelfilega stressað yfir
þessu öllu saman. Þaö er á sífelldum þeyt-
ingi um borg á bý til þess að funda um ekki
neitt. Fólk er á barmi taugaáfalls yfir því
að það sé ekki búið að funda um fundinn
sem átti að funda um á morgun meðan
millistjórnendurnir tækju „powerlöns" og
færu yfir mögulegar stöðutökur. Og svo
eru að allir að farast yfir því að það á eftir
að fara yfir „tékklistann" og það á eftir að
„templata" málið svo hægt að sé að gera
það soldið meira „sexí" fyrir markaðsfólk-
ið en það gerist auðvitað ekki fyrr en það
er búið að "póverpointa projectið."
Fólk verður augljóslega dauðuppgefið
af öllum þessum leiðindum. Það er fátt
sem þreytirfólk meira en að eyða Iffi sínu í
það að tala ekki um neitt og eyða Iffi sínu
í það að gera ekki neitt. Fólk er svo þreytt
og uppgefið í leiðindasamfélagi samtím-
ans að þegar það kemur heim á kvöldin
þá hefur það ekki orku í að sinna frumþörf
hins nútfma fslendings: grilla lambakjöt.
Það kaupir tilbúinn grillmat sem er svo
hitaður upp f örbylgju og borðaður meðan
horft erá íslenskt skemmtiefni ífullkomnu
heimabíói. Skemmti efni sem snýst um að
tveir fábjánar standa og segja brandara
viðgasgrill.
§
BAGUETTE
Nýtt og brakandi ferskt!
eftir Jim Unger
Þessi heitir Ávaxtakarfa á mjög háu borði.
HEYRST HEFUR...
Háværari verða þær raddir
að Kristinn H. Gunnars-
son muni vera á leið úr Fram-
sóknarflokknum. Alkunna er
hverstu stirt hefur verið á milli
hans og annarra þingmanna
og ekki bætti úr skák þegar
hann fór gegn stjórnarmeiri-
hlutanum í atkvæðagreiðslu
um RÚV-málið. Mönnum
leikur forvitni á að vita hvaða
afstöðu hann muni taka gagn-
vart Nýsköpunarmiðstöðinni
sem fyrirhugað er að steypa
Byggðastofnun inn í. Vanga-
velturnar snúast að sjálfsögðu
að mestu um hvert í flokk
Sleggjan muni skipa sér eða
hvort hann hyggi á sjálfstætt
framboð. Hvort heldur verður
blóðtakan gríðarleg fyrir Fram-
sóknarflokkinn Exbé sem ekki
má við því að missa einn ein-
asta mann, hvað þá atkvæða-
mesta þingmann flokksins á
landsvísu.
Alfreð Þorsteinsson, for-
seti borgarstjórnar, ritar
grein í Morgunblaðið í gær
þar sem hann ver þá ákvörðun
Framsóknarflokksins að bjóða
fram í Reykjavík með auðkenn-
inu exbé. Því hefur verið haldið
fram að með þessu móti leitist
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti
flokksins í höfuðstaðnum, og
félagar hans við að leyna því
að þeir séu fram-
bjóðendur Fram-
sóknarflokksins.
Alfreð andmælir
þessu og telur
áróður and-
stæðinganna til
marks um þeir séu teknir að
ókyrrast vegna vaxandi fylgis
við bé-listann. Annað vekur
þó meiri athygli í grein Alfreðs
en það er sú fullyrðing hans
að Framsóknarflokkurinn
hafi ávallt verið heill og yfir
gagnrýni hafinn i samstarfinu
innan R-listans. Alfreð seg-
ir: „Framsóknar-
á/Mtfa flokkurinn hefur
verið kjölfestan
í R-listanum allt
frá stofnun hans
og var eini flokk-
urinn sem ekki
vildi gefa samstarf innan hans
upp á bátinn." Bíddu nú! Var
það ekki þessi sami Alfreð
sem greindi frá því í viðtali fyr-
ir skemmstu að hafnar hefðu
verið viðræður við sjálfstæðis-
menn um myndun nýs meiri-
hluta þegar Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir steig upp úr stóli
borgarstjóra?
Fleira forvitnilegt er að
finna í Mogga gærdægsins.
Forsíðuna prýðir mynd af Birni
Bjarnasyni marskálki þar sem
hann kannar heiðursvörð í Par-
ís ásamt varnarmálaráðherra
Frakklands. í fréttinni segir að
marskálkurinn hafi fengið við-
hafnarmóttöku við komuna í
franska varnarmálaráðuneyt-
ið og sýnir myndin að það eru
engar ýkjur. I fréttinni kemur
fram að Frakkar
íhugi að auka
flotaumsvif sín
við ísland. Það
eru mikil tíð-
indi. Getur ekki
franska Útlend-
ingahersveitin bara tekið við
af Kananum í Keflavík? Við
gætum lánað þeim Víkinga-
sveitina í staðinn, þá vantar
víst óeirðalöggur. Útvarp
franska hersins gæti ábyggi-
lega auðgað menningarlífið á
Islandi eins og kanaútvarpið
gerði á sinni tíð sem illu heilli
á nú að loka.
SMÁRALIND • ESSO ÁRTÚNSHÖFÐA • ESSO FOSSVOGI