blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 2
I
2 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaöiö
bladiöt=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700* www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Stórtjón við
Hvaleyrarvatn
mbl.is | Ljóst þykir að miljóna-
tjón hafi orðið þegar eldur
kviknaði í skóglendi við Hval-
eyrarvatn ofan Hafnarfjarðar í
gær. 3-4 hektarar af skóglendi
brunnu og litlu munaði að eldur-
inn bærist í þekktan skógarlund,
sem Hákon Bjarnason, fyrrver-
andi skógræktarstjóri, ræktaði
fyrir um hálfri öld.
Árni Þórólfsson sagði við
mbl.is, að aðallega hefðu
brunnið tré sem börn í Lækjar-
skóla í Hafnarfirði gróðursettu
á þessu svæði um 1980 en trén
voru orðin allt að 4 metrar á
hæð.
Árni sagði, að eldurinn hefði
skriðið fljótt áfram og verið að
stórmagnast þegar slökkvilið
kom á svæðið.
Mynd/Ásgeir Eggertsson
Forseti leggur hornstein
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti (slands, lagði hornstein að stöðvahúsi Kárahnjúkavirkjunar, Fijótsdalsstöð, i gær. Hann fékk aðstoð
frá sex grunnskólabörnum sem höfðu fengið verðlaun í orkuverkefni Landsvirkjunar. Um fjögur hundruð gestir fylgdust með Ólafi og
krökkunum við verkið.
Halftóm bílastæðahús
sögð víti til varnaðar
Borgarstjóri segir hugmyndina ekki að fækka bílastæðum heldur
sé í ráði að búa til ný stæði neðanjarðar að erlendri fyrirmynd.
Fara verður varlega í allar ákvarð-
anir er varða brey tingar á bílastæða-
málum miðborgarinnar að mati
formanns Þróunarfélags miðborg-
arinnar. Hann segir bílastæðahús
í miðbænum standa að öllu jöfnu
hálftóm en samkvæmt drögum
Umhverfisráðs Reykjavíkur að sam-
göngustefnu er lögð mikil áhersla á
uppbyggingu nýrra bílastæðahúsa í
miðborginni. Steinunn Valdis Ósk-
arsdóttir, borgarstjóri, segir hug-
myndina ekki að fækka bílastæðum
í miðbænum.
Vilja sem flest bílastæði
í drögum að framkvæmdaáætlun
Umhverfisráðs Reykjavíkur að sam-
göngustefnu borgarinnar er lagt til
að stefnt skuli að fækkun bílastæða
í göturými í miðborginni. Þess i
stað skuli vera lögð áhersla á upp-
byggingu nýrra bílastæðahúsa og að-
stöðu gangandi umferðar t.d. með
göngugötu í miðborginni.
Jakob Magnússon, formaður Þró-
unarfélags miðborgarinnar , segir
BlaliO/Sleinar Hugl
Stefnt er aö því að draga úr bílaumferð í
miðbænum.
mikilvægt að farið verði mjög var-
lega í allar ákvarðanir er varða
breytingar á bílastæðamálum í
miðborginni. Hann segir bílastæða-
húsin ekki hafa gefið góða raun
hingað til. „Fólk kann lítið að nota
bílastæðahúsin og þau standa oft
meira og minna hálf tóm. Fólk veit
ekki einu sinni að það er frítt í þau á
laugardögum “
Jakob segir fjölgun bílastæða í
miðbænum vera mikið hagsmuna-
mál fyrir verslunarrekendur og
þeir muni halda áfram að berjast
fyrir fjölgun þeirra. Hann segir að
ekkert samráð hafi verið haft við þá
við gerð samgöngustefnunnar „Nei,
þeir töluðu ekkert við okkur. Við
viljum eðlilega hafa sem flest bíla-
stæði og við munum halda áfram að
berjast fyrir fjölgun þeirra hér eftir
sem áður fyrr.“
Á ekki að fækka bílastæðum
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borg-
arstjóri, segir það af og frá að fækka
eigi bílastæðum í miðborginni.
Fyrst og fremst er verið að leggja
til að þau sé færð neðanjarðar. „Það
er enginn að tala um það að fækka
bílastæðum. Við viljum hins vegar
að þau séu í meira mæli neðanjarðar
eins og tíðkast i þeim borgum er-
lendis sem við gjarnan viljum miða
okkur við. Það á ekki að leggja niður
bílastæði á Laugaveginum heldur er
verið að tala um að fjölga þeim ekki.
Öll ný stæði sem bætast við vegna
umfangs fara framvegis í bílastæða-
hús eða kjallara."
Nýja-Sjáland
verður ekki
selt hæst-
bjóðanda
Nýja Sjáland er ekki til sölu þrátt
fyrir að landið hafi verið auglýst
falt hæstbjóðanda á ástralska
eBay-uppboðsvefnum.
Óþekktur Ástrali hafði auglýst
nágrannaríkið til sölu á vefnum
fyrir nokkrum vikum og vildi
hann einungis fá nokkrar
krónur fyrir landið, enda kom
meðal annars fram í lýsingunni
á eigninni sem hann var að selja
að veður á Nýja-Sjálandi væri
leiðinlegt. Hins vegar reyndist
áhuginn á að eignast Nýja-Sjá-
land þó nokkur í Ástralíu. Eftir
tuttugu og tvö tilboð var það
hæsta komið í rúmar 160 þús-
und krónur. Þá gripu aðstand-
endur vefsins í taumana og lok-
uðu fyrir uppboðið. Talsmaður
uppboðsvefsins sagði ástæðuna
vera að augljóst væri að Nýja-Sjá-
land væri ekki til sölu.
Eilíft karp milli Ástrala
og Nýsjálendinga
Mikill rígur eru á milli Ástr-
ala og Ný-Sjálendinga og tíðar
skeytasendingar eru á milli íbúa
landanna. Stjórnmálamenn
landanna hafa meðal annars
tekið þátt í karpinu og mörgum
er í fersku minni þegar Robert
Muldoon, fyrrum forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands, var spurður
hvað skoðun hann hefði á tíðum
fólksflutningum landsmanna
sinna til Ástralíu. Muldoon
svaraði að þeir væru hið besta
mál þar sem að afleiðingin væri
að greindavísitala beggja land-
anna hækkaði.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Gæða sængur
og heilsukoddar.
O HelðsklrtO littskýlað^A. Skýjað AlskýlaðRlgnlng, lítllsháttar*^^ Rlgnlng^— Súld Sn|ókoma-^~ • Slydda á£i* Sn|óél
Skúr
aaM?
Algarve 23
Amsterdam 19
Barcelona 21
Berlin 21
Chicago 06
Dublin 14
Frankfurt 16
Glasgow 12
Hamborg 12
Helsinki 18
Kaupmannahöfn 17
London 17
Madrid 25
Mallorka 23
Montreal 11
New York 14
Orlando 18
Osló 13
París 19
Stokkhólmur 18
Vín 22
Þórshöfn 05
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands