blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 29
blaðið LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006
I 29
blaðabransann á þeim forsendum
að græða heldur aðeins af hugsjón.
Þetta helst auðvitað allt í hendur - ef
þú ert með gott blað færðu mikinn
lestur og þar af leiðandi meiri auglýs-
ingatekjur. Það er hins vegar alveg
hægt að græða á þessu en þá þarftu
að byggja upp í kringum blaðið nema
þú viljir selja mest allt efnið í blaðinu
sem við höfum aldrei viljað gera. Eða
fara í útrás því þá ertu kominn með
miklu stærri markað."
Stelpur hafa alltaf áhuga
á snyrtivörum
Var eitthvað sem kom ykkur sérstak-
lega á óvart þegar þið byrjuðuð á
þessu?
„Já, í sjálfu sér kom hreinlega allt á
óvart. Við hváðum í öðru hverju orði
- Ha? Skila VSK skýrslu? Ha-viðskipta-
áætlun? Við vissum bara ekkert út í
hvað við vorum að fara. Svo vissum
við ekki að allir vildu niðurstöður úr
Gallup könnunum, héldum að allir
væru alltaf tilbúnir til að skrifa frítt
fyrir okkur og ég veit ekki hvað. í
raun kom bara allt á óvart, en það sem
kom kannski mest á óvart var hvað
okkur var tekið vel alveg frá byrjun.
Maður sér það Uka á öðrum löndum
hversu stórt hlutfall tímarita er stílað
inn á ungar konur á meðan hérna var
ekki eitt einasta blað að sinna þeim
markhópi. Eins og staðan er núna er
heldur ekkert timarit í boði fyrir ungt
fólk sem inniheldur athyglisverðar
greinar um hitt og þetta eins og pól-
itík, vísindi eða annað. Það er þá helst
Grapewine sem er auðvitað stilað inn
á túristana. Viðfangsefnin eru fyrst og
fremst hvað er að gerast um helgina, í
hverju á maður að fara og hvernig
ætlar maður að mála sig. Með Orð-
laus vildum við brjóta þetta upp. Ég
er ekki að segja að það hafi ekki verið
nein „froðá' í blaðinu; stelpur hafa
alltaf áhuga á snyrtivörum og hafa
gaman af því að lesa stjörnuspána, en
þær hafa líka gaman af því að fræðast
um hitt ogþetta. Til dæmis tónlist, pól-
itík, lesa viðtöl og fleira - eitthvað sem
er ekki endilega með stelpustimpil á
sér en höfðar engu að síður til þeirra.
I gegnum kannanir höfum við séð að
strákar lesa það líka en sumir pirrast
á því. Kalla þetta feministablað og
svona. Spurt af hverju það geti ekki
líka verið fyrir stráka. Eins og það sé
svo ósanngjarnt að það sé til blað fyrir
stelpur!"
Ekkert elsku pabbi
Nú er pabbi þinn einn af eigendum
auglýsingastofunnar Hvíta Húsið.
Myndirðu segja að hann hafi getað
deilt einhverri reynslu meðþér?
„Nei, í raun ekki. Auglýsingastofa
og blaðaútgáfa er ekki sama fyrir-
bærið. Þetta er í raun sitthvor heimur-
inn. Hann vissi ekkert um hvernig á
að gefa út blað þó að hann kunni að
hanna auglýsingar. Það eina sem ég
hef fengið út úr því að vera dóttir hans
er aðallega bögg. Eitthvað fólk sem
tuðar að fyrst ég sé dóttir hans þá hafi
Orðlaus fengið allar auglýsingarnar
sínar í gegnum Hvíta húsið. Þetta er
auðvitað bara rugl. Hvíta húsið sér
ekki einu sinni um sínar birtingar
heldur er það utanaðkomandi aðili
sem sér um það.
Hann studdi mig í því sem ég vildi
gera, en ég held að það hafí í raun
verið sama hvað ég kaus að taka mér
fyrir hendur, hann hefði stutt mig.“
Seldu útgáfuna
Nú selduð þið Ár og degi fyrirtœkið
Orðlaus. Hvernigkomþað til?
„Þeir höfðu bara samband við
okkur og föluðust eftir því að kaupa
það. Voru að fara af stað með Blaðið
og vantaði fullt af fólki til að vinna
með sér. Við Steinunn og Erna fórum
að skrifa jöfnum höndum fyrir Blaðið,
hönnuður Orðlaus tók við umbroti
Blaðsins, ljósmyndarinn fór að taka
myndir fyrir Blaðið o.s.frv. Þeir fengu
bara til sín starfsfólkið en skiptu sér
ekkert af útgáfu Orðlaus. Það breytt-
ist ekki mikið fyrir utan það að við
fórum að fá fóst Iaun.“
Eitt að lokum, hefurðu menntað þig
eitthvað ífjölmiðlastörfum?
Hrefna skellir uppúr „Nei, ekki
neitt. Ég er bara búin með mennta-
skólann en stefni samt á háskólanám
í haust. Ég verð samt að segja að
þessi blaðaútgáfa hefur reynst mér
mjög lærdómsrík og þetta á eflaust
eftir að nýtast mér í náminu sem
ég stefni á, en það er viðskiptafræði.
Með því að þurfa að reka sig á allt
og gera allt svona frá grunni þá lærir
maður lexíur sem eru í raun algerlega
ómetanlegar. Við komum að gersam-
lega öllum þáttum útgáfunnar. Við
dreifðum blaðinu sjálfar, skrifuðum,
tókum myndir, seldum auglýsingar,
sáum um öll fjármál og svo fram eftir
götunum. Að læra svona frá fyrstu
hendi hlýtur að teljast mikill skóli.“
Byrja bara inni í herbergi
Nú ertu sjálf reynslunni ríkari, get-
urðu gefið ungum konum ráð í
þessum efnum?
„Fyrst og fremst finnst mér að
stelpur ættu bara að vera duglegri
að gera það sem þær langar að gera.
Kýla bara á hlutina. Ég er ekki að
tala um að ana út í einhverja vitleysu.
Að stofna fyrirtæki krefst fjármagns
o.s.frv. en mér finnst ég svo oft heyra
stelpur segja hluti eins og: „Æi, það
er svo mikið af svona búðum... það
eru svo margir viðskiptafræðingar...
það eru allir að gera þetta...“. Mér
finnst stelpur svo oft skorta trú á
sjálfan sig og auðvitað getur maður
gert betur ef maður hefur trú á því
sem maður er að gera. Þegar við
fórum af stað með Orðlaus þá var
að sjálfsögðu fullt af öðrum blöðum
á markaðnum en við töldum okkur
hafa eitthvað nýtt fram að færa. Það
vantar svo oft eitthvað svona pepp í
stelpur. Þær detta alltaf frekar í að
vinna fyrir aðra heldur en að gera
hlutina bara sjálfar. Svo er líka um
að gera að byrja bara smátt. Það
krefst þess enginn að fyrsta fyrir-
tækið sem maður fer af stað með
verði Hagkaup á einni nóttu. Það er
nóg að byrja bara inni í herbergi og
svo stækkar það bara.“
Hvernig œtli standi á þessu?
„Kannski bara hræðslan við að mis-
takast. Ég held að stelpur trúi oft á
sjálfar sig en einhvern veginn hugsa
þær oft svo langt fram í tímann og
sjá um leið allar mögulegar leiðir
til mistaka, að þær hreinlega missa
kjarkinn og hætta við. Ætli stelpur
séu ekki bara ábyrgðarfyllri? Hugsa
hlutinn frá upphafi til enda á meðan
strákar bara ana hvatvísir af stað og
sjá svo hvert það leiðir. Viðskipta-
áætlun lítur vanalega aldrei neitt vel
út fyrsta árið, eða fyrstu fimm árin
ef út í það er farið. Þetta tekur allt
sinn tíma. Maður byrjar ekkert á ein-
hverju verkefni og er orðin milljarða-
mæringur eftir hálft ár.
En ef maður á annað borð ætlar að
stofna fyrirtæki, þá þarf maður samt
að hafa fulla trú á því sem maður er
að gera. ioo% trú. Ekki bara smá.
Maður má ekki hugsa - kannski
virkar þetta og kannski ekki...
Kannski á fólk eftir að kunna að
meta þetta og kannski ekki... Maður
þarf að trúa því í hverri frumu lík-
amans að það sem maður er að selja
eigi eftir að virka vel á fólk og að það
eigi eftir að vilja þessa vöru. Það má
heldur ekki bara hugsa um peninga
heldur verður þú að hafa trú á því
sem þú ert að gera.“
margret@bladid.net
88 stilistinn
Sunnumörk 2 - 810 HveraqerÖi - 483 4121
g*rn: 848 8127 - e:stilistin£d5Ímnet.is