blaðið - 13.05.2006, Qupperneq 6
6IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaöiö
Skattar lækka
Öldungadeild Bandaríkjaþings
samþykkti á fimmtudag skatta-
lækkanir sem taldar eru nema
um 70 milljörðum Bandaríkja-
dala eða um 4.900 milljörðum
króna. Þær eru einkum taldar
koma fjárfestum og fjölskyldum
sem hafa rúmlega meðaltekjur
til góða.
Repúblikanar, flokksmenn Ge-
orge W. Bush, Bandaríkjaforseta,
vonast til að skattalækkanirnar
verði til þess að styrkja stöðu
flokksins í þingkosningunum
í haust. Skattalögin voru sam-
þykkt með 54 atkvæðum gegn
44. Búist er við Bush staðfesti
lögin í næstu viku.
Fréttaskýrendur hafa margir
hverjir efasemdir um að
skattalækanirnar hafi tilætluð
áhrif á kjósendur. Bent er á að
þær feli einkum í sér að skatta-
lækkanir sem þegar hafi verið
framkvæmdar, tímabundið
árið 2003, verði framlengdar.
Afgangurinn feli í sér lækkanir
sem ákveðnar séu frá ári til árs.
Kjósendur muni ekki verða varir
við áhrif þeirra fyrir kjördag í
haust og fjárfestar tæpast fyrr
en árið 2009.
Vinstri grænir segja ekki of
seint að skipta um skoðun
Vinstri grænir stóðu að samþykkt um staðsetningu hátæknisjúkrahúss í borgarstjórn en
nú vilja þeir staldra við og velta upp öðrum möguleikum varðandi staðsetninguna.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs í Reykjavík, segir að
núverandi borgarstjórn hafi
samþykkt staðsetningu hátækni-
sjúkrahúss við Hringbraut en nú
vilji vinstri grænir staldra við og
velta upp öðrum möguleikum á
staðsetningu. Ekki sé um seinan
að skipta um skoðun í máli þessu.
„Ég veit ekki til þess að vinstri grænir
hafi sett sig upp á móti ákvörðun um
staðsetningu hátæknisjúkrahúss
þegar hún var tekin i borgarstjórn
en nú þegar við erum að draga fram
okkar sérkenni færumst við nær því
að leggja áherslu á vilja þeirra sem
njóta þjónustunnar og þeirra sem
vinna við hana,“ segir Svandís Svav-
arsdóttir. Hún kveðst hafa fengið
athugasemd frá aðila sem starfar
við sjúkrahúsið sem segist ósáttur
við þær ákvarðanir sem teknar hafi
verið varðandi staðsetningu þess
og fagnar því að einhver komi fram
með aðrarhugmyndir. í athugasemd-
inni kom m.a.fram að ódýrara yrði
að byggja við gamla Borgarspítalann
en að byggja nýtt hátæknisjúkrahús
eins og fyrirhugað er.
Notendur væntanlegs hátækni-
sjúkrahúss ekki spurðir álits
„Þá hafa samtök öryrkja og væntan-
legra notenda sjúkrahússins einnig
látið í sér heyra og eru margir
ósáttir við staðsetningu fyrir-
hugaðs hátæknisjúkrahúss
og að ekki hafi verið
rætt við þá um þessa
ákvörðun. Það vita
allir að staðsetning
hátæknisjúkrahúss-
ins þrengir mjög
að Þingholtunum
og umferðin um
þetta svæði er
nú þegar gríð-
arleg,“ segir
Svandís.
Svandís segir
ekki of seint
að skipta um
skoðun varðandi
staðsetningu há-
tæknisjúkrahúss
því enn hafi fyrsta
skóflustungan ekki
verið tekin. „Mér finnst
ástæða til að varpa kastljós-
inu á ágreiningsmál á borð
við þessi og sé ekkert athúgavert
við að endurskoða afstöðuna
þessa máls.“
Svandís segirumræðu um hátækni-
sjúkrahús ekki tímabæra á meðan
Landspítalinn stríði við mönnunar-
w
t/öRUR m m
FLOKKI
MJÓLKURVÖRUR
[ SÉRFLOKKI
Stjórn á
blóðþrýstingi
LH inniheldur náttúruleg lífvirk
peptið sem geta hjálpað til
við stjórn á blóðþrýstingi
LH-drykkurinn er gerður úr
undanrennu og er þvi fitulaus.
Auk peptíðanna inniheldur hann
i ríkum mæli kalk, kalium og
magnium en rannsóknir
benda til að þessi steinefni
hafi einnig jákvæð áhrif
á blóðþrýsting.
til
vanda og
skort á tjármagni. „Aö mlnu mati
er Landspítalinn hátæknisjúkrahús
í sinni núverandi mynd sem stenst
fyllilega samanburð við sambæri-
legar stofnanir erlendis.“
Svandís segir mikilvægt
að hlusta á skoðanir
þeirra sem starfa
við spitalann. Hið
samagildi umþá
sem nota þjón-
ustuna. Fá
eigi fram álit
þeirra varð-
andi stað-
setningu
; en þessar
i raddir hafi
S ekki farið
l> hátt. „Nú
er of seint
að skipta
um skoðun
varðandi
Hringbrautina
en margir eru
ósáttir við stað-
setningu hennar.
Það er hins vegar ekki
of seint að skipta um
skoðun varðandi hátækni-
sjúkrahúsið og vonandi verður
það gert.“
Einstöklist • Gjafabréf
Verið velkomin! ABBA
( ~iD 11 c> rí Kirkjustétt 2 -6
y I I I I Opiðvirka daga kl. 13-18,
Graforholt Laugardaga kl. 13 -16
Svandís Svavarsdóttir segist hafa fengið jákvæð viðbrögð við hugmyndum varðandi
endurskoðun á staðsetningu hátæknisjúkrahúss.
Um 4.500 erlend-
ir ríkisborgar-
ar á kjörskrá
Rúmlega 11 þúsund fleiri kjósendur
verða á kjörskrá fyrir komandi sveit-
arstjórnarkosningar miðað við síð-
ustu kosningar samkvæmt saman-
tekt Hagstofunnar á fjölda kjósenda.
Alls eru 216.191 kjósendur á kjörskrá
og þar af rúmlega 108 þúsund konur
og um 107 þúsund karlar.
Kjósendur sem nú fá að kjósa
í fyrsta sinn til sveitarstjórnar
sökum aldurs eru rúmlega 16 þús-
und eða 7,6% af heildarfjölda á
kosningaskrá.
Þá kemur fram í samantekt Hag-
stofunnar að um 4.500 erlendir rík-
isborgarar muni hafa kosningarétt.
Flestir þeirra koma frá Póllandi
eða um 800 og næstflestir frá Dan-
mörku eða um 500 talsins.
Stokkseyraferð
Heimsókn i vitann, létt sprell,
Draugasetrið ogfL
Þór Vigfússon, Bjami
Harðarson og Sigurgeir
H Friðþjófsson
I *
Draugasetrlð
/'Atatóu
SLAND-SÆKIUM ÞAÐ HEIM
ISLAND-SÆKJUM ÞAÐ HEIM
Sumaropnun: 13-21 alla daga
Guömundur Tyrfíngzxm ehf