blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 44
44 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaðið
Meira um ímyndunarveika eftir tilkomu Netsins
Stöðugfjölgun ímyndunarveikra sjúklinga hefur orðið til þess að sett hefur verið á stofn mikils metin heilsusíða á Netinu.
Það er hægt að finna þúsund ein-
kenni og lækningar krabbameins
og annarra sjúkdóma á Netinu.
En þótt Netið geti verið uppfullt
af læknisfræðilegum upplýs-
ingum hefur það ekki alltaf góð
áhrif á heilsu. Það hefur valdið
áhyggjum hve margir nota Netið
til að sjúkdómsgreina sjálfan
sig og þar af leiðandi aukast
heimsóknir ímyndunarveikra til
heimilislækna. Breskir læknar
hafa því sett upp heimasíðu þar
sem finna má sjálfstæð og fagleg
læknisfræðileg ráð.
Heimasíðan BestTreatments.
co.uk var nýlega opnuð opinber-
lega til að hjálpa sjúklingum við að
rata um frumskóg upplýsinga um
einkenni og meðferðir á Netinu. Á
heimasíðunni má finna upplýsingar
um meira en 120 mismunandi ein-
kenni alvarlegra sjúkdóma á borð
við krabbamein, bakverki og þung-
lyndi. Einnig er þar að finna upplýs-
ingar um einkenni bakflæðis, enda-
jaxlatöku og magakrampa ungbarna.
Heimasíðan fjallar ekki einungis um
einkenni, meðferð og spurningar til
lækna heldur einnig um allar helstu
læknisfræðilegar rannsóknir.
Krabbamein á 400 milljón
síðum á Netinu
Að hluta til er heimasíðan tilkomin
vegna þess mikla magns vafasamra
upplýsinga sem hægt er að finna um
heilsu á Netinu. Þar er heilsa vinsæl-
asta umfjöllunarefnið á eftir klámi.
Til dæmis finnur leitarvélin Google
400 milljón síður ef enska orðið fyrir
krabbamein er slegið inn. Cherill
Hicks, ritstjóri Best Treatments.
co.uk, segir að síðan bjóði upp á fag-
mannleg ráð auk þess að þar geti
fólk deilt upplýsingum um kosti mis-
munandi meðferða.
„Hún býður fólki upp á að meta
kosti og galla mismunandi meðferða.
Við erum ekki að reyna að fá fólk til
að greina eða lækna sig sjálft,“ sagði
Cherill. „Síðan snýst frekar um að
nota upplýsingar svo fólk geti unnið
með læknum sínum að ákvarða
hvaða meðferð hentar þeim best.“
Þriðjungur leitar að heilsu-
farslegum upplýsingum
1 skoðanakönnun sem breska fyrir-
tækið Harris gerði á síðasta ári kom
í ljós að þriðjungur fullorðinna sem
notar Netið hafði leitað að upplýs-
ingum varðandi heilsu. Það kom
einnig í ljós að ímyndunarveikir
fóru að meðaltali þrisvar sinnum á
mánuði á Netið til að leita að upplýs-
ingum varðandi heilsu. Cherill segir
að upplýsingarnar á síðunni komi
frá sömu veitu og læknar nota, sem
er fagmannlegur og vísindalega upp-
byggður grunnur fyrir lækna. Þeir
sem hafa hug á að skoða síðuna
þurfa að vera vissir um að fara á
rétta síðu þar sem önnur svipuð síða
er www.bestreatments.co.uk, með
einungis einu té-i. Sú síða byggir
á vafasömum upplýsingum og er
styrkt af kostunaraðilum.
svanhvit@bladid.net
BlaHiö/SteinarHugi
Það hefur valdið áhyggjum hve margir
nota Netið til að sjúkdómsgreina sjálfan
sig og þar af leiðandi aukast heimsóknir
ímyndunarveikra til heimilislækna.
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ertu spennufíkill?
Spenna er ávanabindandi tilfinn-
ing og það eru ansi margir sem
þjást af spennufíkn. Spennufíklar
sækja ítrekað í spennuþrungnar
aðstæður og finnst lífið vera
heldur litlaust án þeirra. Þessar
spennuþrungnu aðstæður eru
ekki alltaf skemmtilegar heldur
geta þær jafnvel verið andlega
lýjandi og hreinlega hættulegar
andlegri heilsu. Hvað með þig,
sækir þú í spennu? Ertu kannski
spennufíkill? Svaraðu þessum ein-
földu spurningum og athugaðu
hvort spennan heilli þig.
Hvað finnst þér um
fallhlífastökk?
a) Ég hef farið nokkrum
sinnum í fallhlífastökk og það er
alltaf jafn gaman.
b) Tilhversættiégaðhættalífimínu
fyrir eitthvað svo tilgangslaust?
c) Ég hef einu sinni farið í fallhlífa-
stökk og langar aftur sem fyrst.
d) Mig hefur alltaflangað í fallhlífa-
stökk en það er eitthvað sem heldur
aftur af mér.
Hvernig myndirðu lýsa lífi
þínu?
a) Það er frekar tilbreytingar-
lítið en ég er ánægð/ur með það.
b) Ég lyfti mér upp af og til en hef
gaman af því að vera heima.
c) Það er sífellt eitthvað að gerast,
Þessir ofnar hafa þetta framyfir
flesta aðra gasofna
• Engin mengun í rými.
• Engin súrefnistaka úr rými.
• Lokað brunahólf, engin
slysa- eða brunahætta.
• Gaskútar hafðir utan
við rýmið.
Þú einfaldlega stillir á þann
hita sem þú vilt hafa.
Blástur 12/24/220 v.
Trumatic-verksmiðjurnar
(50 ára)leggja mikla áherslu á
öryggi og góða brennslu.
Einnig gott sem aukahiti
við aðra kyndingu.
BÍLARAF
Auðbrekku 20 • S. 564 0400
svo mikið í raun að ég er alltaf á
fullu alla daga.
d) Ég þarf að hafa nóg að gera til
þess að finnast ég vera lifandi.
3Þú hefur verið í sambandi
í ; mánuði og þó makinn
og sambandið sé í raun full-
komið finnst þér eitthvað vanta.
Hvað gerir þú?
a) Held framhjá makanum til að fá
smá krydd í tilveruna. Maður verður
nú að gera eitthvað spennandi ein-
staka sinnum.
b) Slít sambandinu tafarlaust og
finn annan maka. Lífið er of stutt til
að vera leiðinlegt.
c) Átta mig á að það er ekkert að
sambandinu né makanum heldur er
þetta eirðarleysi í mér.
d) Það er óþarfi að slíta góðu
sambandi en ég finn nóg fyrir
okkur að gera svo lífið verði ekki
tilbreytingarlaust.
Þú hefur ánægju af vinn-
unni þinni en einstaka
sinnum koma dagar og
vikur þar sem þér leiðist óhugn-
anlega mikið. Hvað gerir þú til að
lífga upp á daginn?
a) Dreg vinnufélagana með mér út
að borða í hádeginu í stað þess að
borða vondan mötuneytismat. Þetta
brýtur upp daginn og hann líður
hraðar.
b) Flakka á milli vinnufélaganna
og athuga hvort það sé ekki eitt-
hvað skemmtilegt slúður sem ég get
smjattað á.
c) Kem af stað kjaftasögu um að
kona og maður á vinnustaðnum eigi
í ástarsambandi. Skemmti mér svo
konunglega út vikuna við að sjá sög-
una breytast og margfaldast.
d) Égreyniaðmunaeftirgóðaskap-
inu og átta mig á að þetta tímabil
líður hjá.
Hvernig voru heimilisað-
stæður þínar þegar þú varst
yngri?
a) Bara ósköp eðlilegt fjölskyldulíf,
held ég, með sína kosti og galla.
b) Ekki nógu góðar, ég kem úr brot-
inni fjölskyldu þar sem aðstæður
voru mjög spennuþrungnar alla
daga. Vímuefnanotkun, ofbeldi og
rifrildi einkenndi mína barnæsku.
c) Mamma og pabbi rifust einstaka
sinnum eins og gengur og gerist en
ekkert alvarlegt.
d) Það voru alltaf einhver öskur og
læti, alltaf eitthvað í gangi sem gerði
æskuna miður skemmtilega.
6Hvenær líður þér best?
a) Það er gaman að horfa á
góða spennumynd í góðra
vina hóp.
b) Helst heima hjá mér, að slappa af
yfir góðri bók.
c) Á kvöldin þegar ég ligg upp í
rúmi og finn spennuna losna úr lík-
amanum eftir atburði dagsins. Ekki
er verra að ég veit að annar spenn-
andi dagur rennur upp á morgun.
d) Þegar ég er að gera eitthvað
skemmtilegt og adrenalínið er í
botni.
Hvaða tími er bestur í sam-
bandi að þínu mati?
a) Hiklaust fyrstu þrír mán-
uðirnir, eftir það er sambandið án
undantekninga orðið leiðinlegt.
b) Um leið og ég finn að ég elska
makann, þá tekur við skemmtilegur
tími.
c) Þegar við erum bæði orðin ör-
ugg með hvort annað.
d) Það er misjafnt hvað það tekur
mig langan tíma að fá leið á nýju
sambandi, allt frá 2-12 mánuðum.
Teldu stigin saman
1. a)4 b)1 03 d)2
2. a)1 b)2 04 d) 3
3. a)3 b)4 01 d) 2
4. a)2 b) 3 04 d) 1
5. a) 1 b) 4 02 d) 3
6. a) 2 b)1 03 d) 4
7. a)4 b)2 01 d)3
0-8 stig:
Þaö er alveg Ijóst að þú ert enginn
spennufíkill, þvert á móti. Þú vilt helst
að lífið gangi sinn vanagang og að ekk-
ert óvænt liti dagsins Ijós. Þú ert hrædd/
ur við breytingar og telur oftar en ekki
að þær boði eitthvað slæmt. Hins vegar
ertu mjög örugg/ur með líf þitt enda
gengur allt sitt vanagang. Þú mættir
ef til vill hrista aðeins upp í tilverunni
og prófa eitthvað nýtt. Það er eflaust
eitthvað sem þig hefur alltaf langað að
gera en aldrei þorað, eins og að fara í
rússíbana, teygjustökk eða jafnvel bara
að hefja tal við einhvern ókunnugan. Þó
öryggi sé mikilsvert er líka nauðsynlegt
að lifa lífinu lifandi.
9-14 stig:
Þú ert ekki gefin fyrir spennu þó þú vilj-
ir svo sannarlega hafa gaman af lifinu.
Þú ert ekki fyrir óvæntar uppákomur
og vilt helst fá að skipuleggja líf þitt
út í ystu æsar. Samt sem áður leyfirðu
þér einhverja skemmtun annars slagið
enda er það nauðsynlegt. Haltu áfram
að hafa gaman af lífinu og leyfðu þér að
ganga fram af sjálfum þér einstaka sinn-
um. Það er bara hollt. Hver veit nema
einstaka spenna í lífinu geri þér gott.
15-21 stig:
Þú þjáist af spennufíkn, þó hún sé ekki
á alvarlegu stigi. Þér Ifður vel þegar ein-
hver spenna er f Iffi þínu því þá hefurðu
alltaf eitthvað að gera. Þú vilt síður vera
aðgerðarlaus, heldur lifir fyrir að vera
önnum kafin/n og eftirsóknarverð/ur.
Það er gott og blessað að vera spennu-
fíkill en ekki ganga of langt f þvf. Það er
holiast að hafa sitt lítið af hverju í Iffinu,
spennu, rólegheit, öryggi, afslöppun og
svo framvegis.
22-28 stig:
Þú ert spennufíkill af bestu gerð. Þú
lifir fyrir spennuna og þér Ifður sjaldnar
betur en þegar adrenalfnið er á fullu.
Þú lifir spennandi lífi og passar að hafa
eitthvað skemmtilegt fyrir stafni á hverj-
um degi. Eins viltu helst ekki vera f sam-
bandi nema það einkennist af spennu,
ástríðuhita og eidheitum tilfinningum.
Spennufíkn getur verið jákvæð viðbót
við hversdagslegt líf en ef hún gengur
of langt getur hún hreinlega eyðilagt
lif þitt. Farðu varlega og passaðu þig á
því að taka alltaf ákvarðanir sem koma
þér best, hvort sem þær innihalda meiri
spennu eða ekki.