blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaðið
Margret K. Svernsdottir
framkvæmdastjóri og
varaborgarfulltrúi
Ertu með?
w w w. xbreykjavik.is
Frístundakort
fyrir börn 5-18 ára
40.000 kr. á ári í íþróttir,
tómstundir og listnám
/„Gömul hús
og sól við
Laugaveginn.
Fékk óskipta athygli ráðamanna
Öryggisvörður fjarlægir léttklæddan mótmælanda sem vildi vekja athygli þjóðarleiðtoga á þeirri mengun sem trjáiðnaður veldur.
Mótmælandinn lét til skarar skríða þegar tekin var mynd af leiðtogum rikja Evrópusambandsins, Suður-Ameríku og Karabíska-
hafsins. Af myndinni mætti ætla að mikil samstaða myndist á næstunni um að skera upp herör gegn þessari mengunarvá.
Shane MacGowan þykir ekki vel
tenntur. Könnunin náði þó ekki til Ira
Skýring á ljót-
um tönnum?
Hugsanlega er komin fram skýr-
ing á þeirri lífseigu þjóðsögu að
Bretar séu almennt með ljótari
tennur en aðrir dauðlegir menn.
Samkvæmt könnun sem Sam-
tök breskra tannlækna lét gera
og var birt í gær kemur í ljós að
rúmlega 60% Breta nota hluti
eins og skrúfjárn, skæri og eyrna-
lokka til þess að fjarlægja matar-
leifar milli tanna sinna. Einnig
eru vinsælt að nota hluti eins og
hnífa, gaffla og nálar í stað tann-
stöngla og tannþráðs. Einnig
kemur fram í könnuninni að
rúmlega fimmtungur Breta kýs
að nota ekki neitt og hreinsa
ekki matarleifar úr tönnunum.
Óvönduð og ófagleg ákvörðun
Bjarnir Harðarson gagnrýnir bæjaryfirvöld í Ölfusi ogsegir nálægð kosninga skapaþrýsting
á áframhaldandi malarnám þvert á niðurstöðu skýrslu Skipulagsstofnunar.
Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunn-
lenska fréttablaðsins, segir ótrúlegt
að búa í landi þar sem ekki er tekið
mark á stofnunum eins og Skipulags-
stofnun sem lagðist gegn frekara
malarnámi úr Ingólfsfjalli. Líkt og
fram kom í Blaðinu í gær hefur bæjar-
stjórn Ölfuss ákveðið að leyfa áfram-
haldandi malarnám úr Ingólfsfjalli.
„Svo virðist sem völdin liggi hjá bæj-
arstjórn Ölfuss og þetta vekur spurn-
ingar um hvernig bæjarfélög geti
farið með völd í svo viðkvæmu máli
sem verður til þess að ákvarðanir
verða ófaglegar og óvandaðar," segir
Bjarni Harðarson.
Bjarni segir að í skýrslu frá Skipu-
lagsstofnun sé ekkert sem réttlæti
þetta aukna malarnám sem nú
stendur fyrir dyrum. „Þessi skýrsla
er vönduð og gerir ekki ráð fyrir
frekara malarnámi en nú er öll þessi
vinna til einskis. Málið snýst ekki
um að ekki megi taka möl úr fjallinu
heldur að farið sé upp á fjallsbrúnina
og möl tekin þaðan.“
Bjarni segir að fjárhagslegur þrýst-
VELFERÐ UMHVERFI NYSKÖPUN
ingur á samfélagið sé mjög
mikill og mikil krafa um
að verklegar framkvæmdir
hafi sinn gang. Það réttlæti
samt ekki ákvarðanir um
frekara malarnám í
Ingólfsfjalli.
Verktakar tóku
Ijórfalt meira
magn en leyfi
var fyrir
„Þeir verk-
takar sem
unnu við
malarnám í
Ingólfsfjalli
að undan-
gengnu bráð-
arbirgðaleyfi
tóku fjórfalt
Inniheldur
1%
vatnsleysanlegar
trefjar
meira magn en
leyfi var fyrir. Nú
ætlar Ölfushreppur
enn að treysta þessum
aðilum sem datt ekki í hug
að fara eftir þeim leyfum sem
voru í gildi. Ölfushreppur brást eftir-
litshlutverki sínu varðandi malarnám
og nú hefur verið tekið mun meira
en leyfi er fyrir. Nú er svo komið
að stóra málinu, þvf nú á að taka
sjálfa fjallsbrúnina niður á stórum
kafla samkvæmt nýjasta leyfi bæjar-
stjórnar Ölfuss."
Bjarni segir að ekki skorti efni til
húsbygginga á svæðinu því mikið
undirlendi sé þar og víða hægt að
taka möl. Bjarni segir að þrátt fyrir
að ódýrast sé að taka möl úr Ingólfs-
fjalli sé sú möl ekki endilega sú besta
þegar kemur að gæðum. „Mölin úr
Ingólfsfjalli er leirblandin og það
væri eðlilegt að byggingareft-
irlitið væri búið að stöðva
notkun á þessari möl.“
Of langtgengið
í malarnámi
Bjarni segir að nú
séu að koma kosn-
ingar og þá skapist
viss þrýstingur um
áframhaldandi mal-
arnám í fjallinu.
Einimaðurinníbæj-
arstjórnsemgreiddi
atkvæði gegn malar-
námi í Ingólfsfjalli er
Baldur Kristjánsson,
sóknarprestur í Þor-
lákshöfn. Á heimasíðu
Baldurs segir m.a. að sveit-
arstjórnarmenn eigi erfltt
með að leggja önnur viðhorf til
grundvallar ákvörðunum sínum en
efnahagsleg en sjálfum þyki honum
of langt gengið að gera fleyg inn í Ing-
ólfsfjall með þeim hætti sem verður.
Baldur segir ennfremur að hann háfi
hingað til stutt námuvinnslu í Ingólfs-
fjalli en telji nú nóg komið.