blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 34
34 i 'fíSKi
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaðið
Sólarpúður grennir og fegrar
Sólarpúður er nokkurs konar töfrapúður enda getur það grennt andlit og lagt áherslu á ákveðna andlitsdrœtti sé það rétt notað.
Eitt af nauðsynjavörum nútíma-
konunnar er án efa sólarpúður.
Það má segja að sólarpúður sé
nokkurs konar töfrapúður, með
því er hægt að ýkja kinnbein,
grenna andlit og beina augum
aðdáenda að réttum stöðum. Sólar-
púðrið er því mikilvægt hjálpar-
tæki í heimi þar sem útlit skiptir
sífellt meira máli.
Margrét R. Jónasdóttir, förðunar-
fræðingur hjá Mac, segir að sólar-
púður sé klassískt. „Það sveiflast lítið
í tísku því það er grunnatriði, rétt
eins og farði, hyljari og maskari. Það
er bæði gott að nota sólarpúðrið til
að fá frísklegra útlit og til að matta
húðina. Það eru margar konur sem
dusta sólarpúðri á sig í stað þess að
nota venjulegt púður. Flestar konur
nota sólarpúðrið yfir farða en svo
eru margar konur sem mála sig lítið
en nota eingöngu sólarpúður og ma-
skara. Sólarpúðrið gerir svo mikið
fyrir mann, gerir mann frísklegri og
sætari,“ segir Margrét.
Skyggt andlit
Samkvæmt Margréti gerir sólar-
púður kraftaverk í förðun ef það
er rétt notað. „Það er hægt að nota
sólarpúður bæði til að gera mann
frísklegri og gefa manni lit á húðina.
Svo er líka hægt að nota það til að
Dr.Hauschka
Náttúrulegar snyrtivörur
I Kveðukrem (Quince)
Roje
0*Y Ctr.im D».H«mmcWu
Rmt
DavOcafl*
Þunnt frískandi og rakabindandi
andiitskrem, sem verndar húðina og
endurnærir. Það inniheidur valdar
lækningajurtir sem vinna gegn
streitu og hjálpa húðinni að viðhalda
heilbrigðu jafnvægi. Hentar öllum
húðgerðum.
Allar vörunar frá Dr.Hauschka eru
unnar úr náttúrulegum efnum og
innihalda ekki kemisk hjálparefni.
„rinE; i
Útsölustaðir: Yggdraslll Skólavörðustfg 16, Frœlð [
Fjarðarkaup, Lffsins Llnd Kringlunni, Lyfja,
Maður Lifandi, Blómaval og Heilsuhornið
Akureyri.
Margrét R. Jónasdóttir:„Sólarpúðrið gerir
svo mikið fyrir mann, gerir mann frísk-
legri og sætari."
skyggja andlitið - ég geri mikið af
því þegar ég mála konur. Þá nota ég
samspil ljóss og skugga og það finnst
mér vera punkturinn yfir i-ið. Þegar
ég er að mála finnst mér skemmtileg-
ast að skyggja andlitið, til að hækka
kinnbeinin og grenna. Gott dæmi
er tískan í dag og til dæmis Jennifer
Lopez og Beyoncé sem þykja jafnan
með flotta förðun en þær eru einmitt
mjög mikið skyggðar. Þær eru oft
skyggðar hringinn í kringum and-
litið, í hárlínunni, þannig að athyglin
beinist að efsta hluta andlitsins."
Gegnsætt púður best
Þrátt fyrir að sólarpúður sé vissu-
lega kraftaverkapúður þarf líka að
kaupa rétt púður og kunna að setja
það á sig. Margrét segir að það sé til
ógrynni sólarpúðra og konur ættu
að velja sér gegnsætt sólarpúður,
ekki massíft. „Sólarpúðrið á að vera
2-3 tónum dekkri en húðliturinn. Ef
konur ætla að nota sólarpúður yfir
allt andlitið þurfa þær að velja sér
matt sólarpúður, ekki með glitrandi
flögum þvi það kemur ekki vel út í
birtu. Það er flott að vera örlítið glitr-
andi við gagnaugað og kinnbeinin en
það kemur ekki eins vel út að vera
glitrandi á öllu andlitinu. Ef kona
notar sólarpúðrið bara við kinnar og
gagnauga þá er í lagi að hafa glitrandi
púður. Aðalatriðið við að velja sólar-
púður er að setja það á handarbakið
og sjá að það sé gegnsætt, að húðin
sjáist i gegn og púðrið sé ekki þekj-
andi líkt og kinnalitur. Þá er erfiðara
að dreifa púðrinu. Einnig ættu konur
hérlendis frekar að velja sér gyllta og
brúngyllta tóna og varast að nota app-
elsínugula tóna,“ segir Margrét og
bætir við að á heimasíðu sinni, www.
margret.is, sé hægt að fá frekari leið-
beiningar um förðun og margt fleira.
svanhvit@bladid. net
Margrét féllst góðfúslega á að gefa lesendum góð ráð þegar bera á sólarpúður á sig
og hér eru þrjár mismunandi leiðir, allt eftir því hvaða útliti er leitað eftir.
Sólarpúður notað sem kinna-
litur til að gefa frísklegt útlit
. I.Gotteraðveljamiðstærðafbursta
(kinnalitastærð)
2. Dusta létt fremst I kinnar og blanda vel
uppaðgagnauga
3. Rennið sólarpúðri fremst niður hálsinn
til að tengja
Sólarpúður notað yfir allt
andlit til að gefa sólbrúnkuáhrif
1. Varist kúlur og mósalk sem getur endað
í rákum
2. Velja gegnsætt matt sólarpúður
3. Nota stóran mjúkan bursta
Beauty skygging,„samspil
Ijóss og skugga"
1. Gott er að nota matt sólarpúður í brún-
gylltum tón
2. Skyggja vel I kringum andlit, meðfram
hárrót niður gagnaugað og undir kjálka
3. Nota„highlight penna" á móti, eins og
undir augu, á nef og yfir augabrúnir.
Irréelle Soleil Silky
Bronzing Powder
frá Chanel
Sérstaklega fallegt sólarpúð-
ur sem endurkastar Ijósi og
glitrar eilítið. Sólarpúðrið
kemur í fallegri öskju ásamt
bursta. Silky BronzingÞow-
der kemur I þremur litum.
Terracotta Moistur-
izing Bronzing Pow-
der frá Guerlain
Gegnsætt og flott sólarpúð-
ur sem er þekkt fyrir gæði.
Sólarpúðrið er fáanlegt í 6
litum, hver öðrum flottari.
Terracotta Compact
Powder frá Marbert
Sólarpúðrið frá Marbert er
bæði flott og hagkvæmt.
Það kemur í stórri pakkningu
með spegli og nýtist því vel.
Marbert sólarpúðrið ertil I
tveimurlitum.
Bronzing pow-
der frá Mac
Sólarpúðrin frá Mac eru
mjög falleg auk þess sem
þau eru gegnsæ. Það eru til
fimm litir, Golden, Bronze,
Matt bronze, Refinde gold-
en og Beyond bronze.
Kynþokkafullir plastpokar
í Hollywood býðst leikkonum og söngkonum hvert tækifærið á fætur öðru til að sýna sig og sjá
aðra. Þá er líka tilvalið að sýna nýjasta dressið, hárgreiðsluna eða kærastann. Enda er jafnan mjög
mikið lagt upp úr útliti fyrir alls kyns atburði þar ytra þar sem Ijósmyndarar eru á hverju strái.
Áfimmtudaginn kynnti Roberto Cavalli, ítalski tískuhönnuðurinn, nýjustu afurð sína en hann er að
hefja vodkaframleiðslu. Flaskan af vodkanu kostar 4.000 krónur og verður án efa vinsælt. Við það
tækifæri mátti sjá margar af skærustu stjörnum Hollywood í glæsilegum klæðnaði að venju.
Kemur í veg fyrir og eyöir: Bólgum, þreytuverkjum og harösperrum
á ferðalögum og viö álagsvinnu.
Styrkir varnir húðarinnar gegn skaösemi sólar. Húöin veröur fyrr fallega brún
I sól og Ijósabekkjum, með reglulegri inntöku helst húöin lengur brún.
Rannsóknir staöfesta árangur. Karolinska Institute, Sweden.1998. University of Memphis 2001.
CbLYFJA VLyfiheka
Nicky Hilton er glæsileg stúlka og þrátt fyrir
að hún falli í skuggann af systur sinni, hefur
hún töluvert vandaðri smekk. Eitthvað virðist
hún hafa misstígið sig í þetta skiptið því þessi
kjóll gerir Iftið fyrir hana, hún hefði eflaust litið
betur út í plastpoka.
Leikkonan Lisa Rinna er þekktust fyrir sjón-
varpsleik sinn, til að mynda má sjá hana í 8
einfaldar reglur sem Ríkissjónvarpið sýndi um
tíma. Lisa Rinna er sérstaklega glæsileg I þess-
um fallega kjól sem hentar hennar litarhaftl vel.