blaðið - 13.05.2006, Page 21
blaöið LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006
VIÐTALI 21
„Mér finnst þeir nokkuð hlægi-
legir af því þeir virka valdalausir.
Maður veit ekki alveg til hvers þeir
eru. Forsetinn varð smám saman
að óþarfa hégóma hér í samfélag-
inu. Bæði Vigdís og Ólafur Ragnar
stirðnuðu upp eins og postulíns-
dúkkur í því starfi. Það er eins og
stjórnmálamenn séu að leita í sama
far. Þeir gera sér stórar hugmyndir
um sjálfa sig en manni finnst eins
og þeir hafi ekkert að gera nema
vera þarna og standa vörð um lýð-
ræðið. Þeir eiga að setja lög. Hvað
þurfum við eiginlega mikið af
lögum? Er ekki búið að setja þau
lög sem setja þarf? Þeir rífast um
vatnalög sem engu máli skipta.
Svo er skrúfað fyrir umræðuna og
þingið fer í langt sumarfrí og öllum
er sama. Ráðherrar ríkisstjórnar-
innar hverfa með reglulegu milli-
bili. Enginn hefur til dæmis séð
Geir H. Haarde í nokkra mánuði."
Hverja er auðveldast að teikna?
„Davíð, Halldór Ásgríms, Geir H.
Haarde, forsetann og biskupinn.
Eftir því sem menn komast í hærri
valdastöður líkjast þeir meira skop-
mynd af sjálfum sér. Það þarf til
dæmis bara að setja sljó augu á
Halldór Ásgrímsson og þá er hann
fullskapaður."
Leikmunir í lifandi umhverfi
Nú eru borgarstjórnarkosningar yf-
irvofandi. Hverju myndirðu helst
vilja breyta í Reykjavík?
„Ég á hund og við félagarnir förum
reglulega út að ganga. Þar sem er
náttúra: í Laugardalsgarðinum, í
Öskjuhlíðinni eða Elliðadalnum
rekst maður á skiltið: Bannað að
vera með hunda.
Við hundafólkið erum alltaf í
gönguferðum. Við erum eins og
leikmunir í lifandi umhverfi. Við
erum hluti af þvi fólki sem skapar
lifandi borg því við erum ekki keyr-
andi um allt. I bíómyndum fær fólk
borgað fyrir að vera í bakgrunni.
Við hundafólkið gerum þetta sama
alveg ókeypis. Þakklætið er ekki
meira en það að sagt er við okkur:
Nei, þið megið ekki koma hingað
af því einhver kvartaði undan kúk
sem hann sá á jörðinni og einhverjir
eru hræddir við hunda. Eg kýs snar-
lega þann flokk sem ákveður að
taka niður „bannað að vera með
hunda“ skiltin.“
Finnst þér Reykjavík falleg borg?
„Já, já, á sumrin. En nú er ég strax
orðinn ósammála þessu já já-i mínu.
Reykjavík er ekkert ákaflega falleg
borg. Menn eru samt of mikið að
týna sér í því hvað hún sé ljót. Það
þurfa ekki alls staðar að vera krútt-
legar miðaldabyggingar. Mislæg
gatnamót eru það sem mér finnst
einna ljótast í Reykiavík. Fólk getur
vel beðið á Ijósum. I kosningabarátt-
unni snýst umræðan um skipulags-
mál og kannski allt of mikið. Allir
eru meira og minna sammála um
að setja göng hér og þar og koma
flugvellinum einhvern tíma í burtu.
Mér finnst leiðinlegt að keyra í
gegnum göng. Finnst einhverjum
það gaman?“
Að tuða yfir myndlist
Snúum okkur aftur að listinni. Þú
hefur myndskreytt fjölda barna-
bóka. Hvaða máli skipta myndir í
barnabókum?
„Ef við höfum trú á því að mynd-
list og bækur skipti máli og eigi að
vera hluti af menningu okkar þá
skiptir máli að krakkar sjái góðar
myndir í bókunum sem þeir lesa en
ekki lélegar. Stundum sjá krakkar
ekki mun á góðri og lélegri mynd
en það er á okkar ábyrgð að þeir
fái í hendur vel skrifaðar og vel
myndskreyttar bækur. Þá ölum
við krakka upp í því að vera meiri
fagurkerar og smekkmanneskjur
en annars væri og bætum heilabú
þeirra í leiðinni."
Hefurðu mikinn áhuga á myndlist?
„Já, ég hef mikinn áhuga á mynd-
list og hef gaman af framsækinni
myndlist. Flestir vinir mínir eru
myndlistarmenn og konan mín,
Sigríður Ólafsdóttir, er myndlistar-
maður. Það er líka frábært að tuða
yfir myndlist. Hver hefur ekki farið
á myndlistarsýningu nýlega og
orðið furðu lostinn. Það er gaman
að tala um nútímamyndlist og
hneykslast og dást að henni ef svo
ber undir. Ef fólki finnst það sem
það sér vera drasl þá á það að segja
það. Myndlistin er orðin of skinhelg.
Það er lítið mark tekið á fólkinu á
götunni sem kemur inn á söfnin
og hefur skoðun á listaverkunum.
Hagsmunahópar byggja alltaf litlar
kreðsur í kringum sig og reyna að
forðast utanaðkomandi gagnrýni.
Myndlistin er mikið þannig, kýs
að taka ekki mark á neinum nema
innvígðum."
Þú valdir þér starf sem einhverjir
myndu segja að væri engin trygg-
ing fyrir fjárhagslegu öryggi. Er '
það eitthvað sem þú hefur stundum
áhyggjur af?
„Stundum er sagt við myndlist-
armenn að þeir hafi ekki valið sér
praktískt starf. Myndskreytinga-
markaðurinn er lítill en þar er nóg
að gera. Mín skoðun er sú að ef fólk
gerir eitthvað vel þá uppsker það.“
kolbrun@bladid.net
Full búð af nýjum vöru,
Canett
sEikarlina
KORFU
2+H+2 196x196cm kr.99.000
2+H+3 196x246cm kr. 109.000
3+1 + 1 áklaBðíVr.l]5’9:00Ö'
^1VlJjeöúr'kr7T70-000 K w K r u
' 80x200 verð frá kr. 75.800,-
Q
S
Q
o
02
O
£
*
frábært verð fyrir
fólk á öllum aldri.
Electa -
90cm kr. 39.000,-
120cm kr. 49.600,-
160om- kr.
Mikið úrval af stökum dýnum
71
HÚSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FÁST EINNIGIHÚSGAGNAVAL, HÖFN 8:478 2535
:d