blaðið - 06.06.2006, Síða 1
Þakmálun
Husamálun
í síma: 844-1011
eða á www.thakmalun.is
Friálst,
óháð &
ókeypis!
100% eldbökun,100% ísl. ostur,
100%metnaður, 100% Rizzo"
Si’mi .5777000
þriðjudagur
6.júní 2006
SfÐA
32
124. tölublað 2. árgangur
■ MENNING:
Bölvun Rebusar
Viðtal við spennusagna-
höfundinn lan Rankin
Sérblað um börn
og uppeldi fylgir
Blaöinu í dag
' í.
FASTEIGNALÁN
í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
m jpm |pw | 0k |
2,5%
Miðaö við myntkörfu 3. Libor vextir 3.4.2006
FRJALSI
Þingkonur mót-
mæla vændi á
HM í fótbolta
DORGAÐ VIÐ SUÐURLANDSVEG Það þarf ekki að bregða sér langt til þess að njóta náttúrunnar. Þessi ungi veiðimaður renndi fyrir fisk í læk inni í Heiðmörk um helgina, kippkorn frá Blaðiö/Frikki
þjóðveginum. Stórlaxarnir létu bíða eftir sér, en einhverjir bitu nú samt.
Verulegar breytingar í
ríkisstjórn væntanlegar
Halldór Ásgrímsson á útleið og rætt um að framsóknarmenn fái Samgönguráðuneytið.
Óásættanlegt er að skipulagt vændi
og mansal eigi sér stað í tengslum
við heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu í Þýskalandi segir 1 yfirlýs-
ingu sem samþykkt var á ráðstefnu
vestnorrænna þingkvenna í bænum
Qaqorotq á Grænlandi í lok síðustu
viku. f yfirlýsingunni er skorað á Al-
þjóðaknattspyrnusambandið (FIFA)
að stöðva þetta athæfi enda telja þing-
konurnar að FIFA ásamt skipuleggj-
endum mótsins bera fulla ábyrgð í
þessu máli og þeim beri að stöðva
þetta athæfi.
Fram hefur komið í fréttum að
um 40 þúsund konur verði fluttar
frá Mið- og Austur-Evrópu til Þýska-
lands til þess að stunda vændi á
meðan á heimsmeistarakeppninni
fer fram þar í landi.
Óánægja með KSl
Þingkonurnar vestnorrænu eru
hneykslaðar á þeirri takmörkuðu
athygli sem þessi mál hafa fengið
hingað til. Fjöldamargar stofnanir
og samtök hafa gefið frá sér sams-
konar ályktun en mikil óánægja er
víða með það mansal sem tíðkast og
látið er óáreitt í kringum íþróttavið-
burði. Fyrir rétt rúmum mánuði mót-
mæltu íslenskar kvennahreyfingar
þessu sérstaklega með formlegri
áskorun til þýskra stjórnvalda að
þau beiti sér gegn mansali og kyn-
bundu ofbeldi. Prestaþing ályktaði
einnig að Knattspyrnusambandið
skyldi beita sér gegn vændi á heims-
meistaramótinu í sumar. Eggert
Magnússon, formaður KSf, svaraði
þeirri ályktun í viðtali við ríkisút-
varpið að prestunum væri nær að líta
í eigin barm.
íslenskar þingkonur eru afar
óánægðar með viðbrögð Knatt-
spyrnusambands fslands.
Hvernig sem forystukreppu Fram-
sóknarflokksins lyktar er fyrirsjáan-
legt að verulegar breytingar kunni
að verða á ríkisstjórn íslands í kjöl-
farið. Ljóst er að Halldór Ásgrímsson
muni víkja úr stóli forsætisráðherra
og að hann muni falla Geir H. Ha-
arde, formanni Sjálfstæðisflokksins
í skaut. Um leið er talið líklegast að
framsóknarmenn endurheimti einn
ráðherrastól, sem þeir létu af hendi
þegar Halldór Ásgrímsson varð
forsætisráðherra. Þeir munu því að
líkindum þurfa að fylla tvo ráðherra-
stóla áður en yfir lýkur.
Á sínum tíma fengu sjálfstæðis-
menn Umhverfisráðuneytið þegar
framsóknarmenn tóku við lykla-
völdum í stjórnarráðinu og yfirgáfu
Utanríkisráðuneytið. Talið er líklegt
að framsóknarmenn vilji það ekki
aftur og finnist embætti utanríkis-
ráðherra ekki henta nýjum forystu-
manni flokksins vel.
Um það hefur mjög verið rætt,
að Finnur Ingólfsson snúi sér aftur
að stjórnmálum sem arftaki Hall-
dórs og heimildir Blaðsins herma
að Guðni Ágústsson hafi verið með
í ráðum hvað það varðar með sam-
þykki Sivjar Friðleifsdóttur.
Rót á ráðherraliði beggja flokka?
Komi Finnur inn í ráðherralið Fram-
sóknarflokksins hefur nokkuð verið
um það rætt að hann yrði fjármála-
ráðherra og af hálfu Sjálfstæðis-
manna mun því ekki hafa verið tekið
ólíklega. 1 skiptum fyrir Utanríkis-
ráðuneytið vilja framsóknarmenn
hins vegar fá meira aftur en Umhverf-
isráðuneytið og munu þeir einkum
horfa á Samgönguráðuneytið.
Ekki er ljóst hvaða þingmaður
Framsóknarflokksins yrði ofan á
sem nýr ráðherra, en flestir, sem
Blaðið ræddi við, töldu að Magnús
Stefánsson, þingmaður Norðvestur-
kjördæmis, kæmi sterklega til greina.
Kjördæmið væri þeim mikilvægt
og sýna þyrfti í verki að suðvestur-
hornið hefði ekki tekið öll völd.
Þetta hefði vitaskuld líka áhrif á
ráðherralið Sjálfstæðismanna. Fari
Ármi M. Mathiesen úr Fjármálaráðu-
neytinu er ekki sjálfgefið að hann
verði utanríkisráðherra, heldur
er eins líktlegt talið að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, menntamála-
ráðherra og varaformaður flokksins,
fari þangað.
Þegar Blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi stóð Landstjórnarfundur
Framsóknarflokksins ennyfir og allt
á huldu um niðurstöðu hans. Heim-
ildarmenn í Framsóknarflokknum
sögðu ekki víst að nýr formaður yrði
kjörinn fyrr en á landsþingi flokks-
ins í haust, en að það myndi engu
breyta um að Halldór myndi draga
sig út úr ríkisstjórn. Segi Halldór sig
frá þingmennsku mun Sæunn Stef-
ánsdóttir, nýráðinn aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra, koma í þing-
flokkinn í stað Halldórs.
m
*£>a