blaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 27
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006
I 35
Sessý og Sjonni
í syngjandi sveiflu
Dúettinn „Sessý og Sjonni“ skipaður
þeim Sesselju Magnúsdóttur söng-
konu og Sigurjóni Alexanderssyni
gítarleikara heldur tónleika á Café
Rosenberg miðvikudagskvöldið
7. júní. Það má búast við tónlist úr
ýmsum áttum, meðal annars úr
söngbók Evu Cassidy, poppi, rokki
og jazzi. Dúettinn hefur starfað
síðan 2004. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22 og aðgangur er ókeypis.
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Þaö er óhætt að segja að Bubbi Morthens hafi verið einn afkastamesti tónlistarmaður
landsins um áraraðir
Sesselja Magnúsdóttir og Sigurjón Aiex-
andersson leiða saman hesta sína
Ólögleg meðalmennska
Tónlist
Jón Þór Pétursson
Graham Coxon - Love
Travels At lllegal Speed
EMI2006
itiri
Graham Coxon fyrrum gítarleikari
Britrokk-sveitarinnar Blur gaf út sína
sjöttu sólóplötu snemma á þessu ári.
Platan nefnist Love Travels at Illegal
Speed. Með í pakkanum er síðan
DVD diskur með tónleikaupptökum
frá Goldsmith College og Koko-
tónleikahöllinni. Platan hefur að
geyma 13 lög sém flest eru í íjörlegri
kantinum. Það heyrist einnig strax
á þessari plötu hvað Coxon átti
mikið í efni Blur en hann heldur
þó áfram að þróa sinn persónulega
síðpönkaða-stíl.
DVD diskurinn er skemmtileg
viðbót en þar má meðal annars sjá
viðtal við Graham Coxon þar sem
hann útskýrir vinnu sína bakvið
plötuna og upptökur frá tvennum
tónleikum. Þar að auki er umslag
plötunnar virkilega vel hannað og
gerir hana töluvert eigulegri en ella.
Mín eina kleina
Því miður er ekkert sérstakt við rödd
Graham Coxon, ágætis raulandi
þegar best lætur, óþolandi vælin
þegar verst lætur. Textasmíð Coxon
er heldur ekki upp á marga fiska á
þessari nýju plötu og nauðsynlegt
að gefa smá sýnishorn úr laginu
„Gimme Some Love“:
We're a rightpair, You andI
It's a messed up situation
Areyou gonna dump this otherguy
Before i die ofsexualfrustration?
Það verður þó að taka það fram að
þetta er með verri textum plötunnar
ogmargirþeirra eru nokkuð skondnir
í einfaldleika sínum. Coxon syngur
urn stúlkuna einu, um sársauka þess
Zfa’
að vera manneskja í brengluðum
heimi og svo framvegis. Góð og
klassísk umfjöllunarefni í listum en
ég hef séð áhugaverðari úrvinnslu en
á þessari nýju plötu. Það er gott að
kunna ríma en það er ekki nóg til að
gera góðan texta.
Dúmm dúmm dæræ dæræ...
Þetta er ágætis plata til að hafa í
bakgrunni á kránni, helst ekki of
hátt til að yfirgnæfa ekki spjallið.
Laglínur eru flestar einfaldar og líða
áfram. Vandamálið er að þær líða of
þægilega áfram. Platan er hreinlega
of mikið þverhnípi með takmarkaðri
fótfestu. Hún sveiflast á milli þess
að vera Brit-skotið síðpönk yfir í að
vera bandarískt háskólarokk. Ég
geri meiri kröfur til Coxon sem
hefur fyrir löngu sannað sig sem
laga og textahöfundur. Nokkur lög
eru grípandi en ná alls ekki að halda
utan um plötuna sem fellur alltof oft
í gryfju meðalmennskunnar.
jon@bladid.net
„Coxon syngur um stúlkuna einu, um sársauka þess að vera manneskja í brengluðum
heimi og svo framvegis," segir Jón Þór í dómnum um nýjustu piötu Graham Coxon.
Afmœlisútgáfur
Bubba Morthens
, - ..j f" r" ■ '3//3k É ® 33% yw# i
98 i * u'j ; 1 S4 m a M J
Bb» w w II caí v w X. w*# v
Þann 6. júní næst komandi verður
Bubbi Morthens fimmtugur og
mun fagna áfanganum með stórtón-
leikum í Laugardalshöll. í tilefni
dagsins munu Islenskir tónar gefa
út níu af fyrstu sólóplötum Bubba
í veglegum afmælisbúningi þennan
sama dag. Þetta eru plöturnar
Plágan, Fingraför, Ný spor, Frelsi
til sölu, Dögun, 56, Bláir, Nóttin
langa, Sögur aflandi.
Urmull af óútgefnu efni
í fyrra komu ísbjarnarblús (1980)
og Kona (1985) út í samskonar af-
mælisbúningi. Samtals innihalda
þessar níu útgáfur samtals 60 auka-
lög en þær geyma einnig öll þau
lög sem upprunalega komu út á
plötunum. Næstum öll aukalögin
hafa aldrei áður komið út á geisla-
plötum og flest þeirra hafa raunar
aldrei komið út áður enda er hér um
að ræða blöndu af prufuupptökum,
upptökum á ensku, upptökum af
tónleikum og í sumum tilfellum er
hér á ferðinni lög sem hafa aldrei
áður heyrst.
Begas
Vert er að geta þess að stuttskífan
56 hefur ekki verið fáanleg á geisla-
plötu í meira en áratug og einnig
að platan sem nú er nefnd Bláir er
hlutur Bubba af sameiginlegu verki
hans og Megasar sem kom út undir
nafninu Bláir draumar á sínum
tíma. Hún hefur einnig verið ófá-
anleg um langt skeið en árið 2002
sendi Megas frá sér sinn hluta
verksins undir nafninu Englaryk í
tímaglasi.
Yfir 200 bráðhollir ávaxta- og grænmetissafar
sem bæta,
grenna
og kæta
orka!
Loksins má finna í einni bók Ijúffenga drykki þar sem
hver og einn hefur sín sérstöku áhrif.
• fyrirbyggjandi og stuðla að bættri heilsu
• elturefna- og vatnslosandl
• kjörnir fyrir smáfólkiö
• frábær viðbót I veisluna
Endalaus orka er bók um holla lifnaðarhætti,
fagurfræði og lífsgleði.
Ármúla 20 • s. 552 1122
www.salkaforlag.is