blaðið - 06.06.2006, Side 2
2 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöið
Hestalíf
Hryssan Sóley var glöð og kát og kunni sannarlega að meta Ijósmyndara Blaðsins þegar hann bar að garði í gær. (bakgrunni gæð-
ir hestur sér á gæðum landsins á meðan eigandinn nýtur útsýnisins.
Guðni hvattur til þess að
leiða Framsóknarflokkinn
blaðiö_
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Símí: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Spá harkalegri
lendingu hag-
kerfisins
Aukin hætta er á harkalegri lend-
ingu íslenska hagkerfisins þegar
þenslutímabilinu lýkur að mati al-
þjóða matsfyrirtæksins Standard og
Poors. Fyrirtækið tilkynnti í gær að
það hefði breytt horfum á lánshæf-
ismati ríkisskjóðs fslands úr stöð-
ugum í neikvæðar. Á sama tíma
staðfesti matsfyrirtækið óbreyttar
lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fs-
lands fyrir langtímaskuldbindingar
í erlendri mynt.
f skýrslu Standard og Poor segir
að innlend eftirspurn, nýleg veik-
ing krónunnar og hröð hækkun
launa hafi ýtt verðbólgunni vel
yfir efri þolmörk verðbólgumark-
miðs Seðlabankans. Aðgerðir
bankans til að bregðast við þessu
með hækkun stýrivaxta hafi ekki
skilað tilætluðum árangri. Því telja
sérfræðingar Standard og Poor að
verðbólguþrýstingurinn muni leiða
til frekari hækkana á raun- og nafn-
vöxtum sem skapi hættu á að aðlög-
unarferlið verði sársaukafyllra og
raski hagkerfinu meira en ella.
Kind með skerta
sjálfsmynd
Velski bóndinn Emlyn Roberts
heldur því fram að kind sem hann
á haldi að hún sé fjárhundur. Ro-
berts bjargaði lambinu Rolo frá
dauða og hefur síðan alið það upp
á bóndabæ sínum ásamt fjölda fjár-
hunda. Roberts segir að kindin elti
sig hvert sem hann fari, horfi á sjón-
varpið með sér og sé jafnvel farin að
smala. Hann segir Rolo borða allt
sem henni er gefið og að svo virðist
sem hundamatur sé í uppáhaldi hjá
henni. „Hún hefur alist upp eins og
hundur og það er augljóst að hún
lítur á sig sem hund. Hún er bráð-
gáfuð og ólík öllum öðrum kindum
sem ég hef vitað um,“ segir Roberts.
Talsverður titiringur er innan
framsóknarflokksins eftir að
fregnir bárust um hugsanlega
afsögn Halldórs Ásgrímssonar for-
sætisráðherra. Margir framsókn-
armenn vilja Guðua Ágústsson í
formanninn.
Mikill órói ríkir innan Framsókn-
arflokksins eftir að fregnir fóru að
berast um afsögn Halldórs Ásgríms-
sonar sem formanns Framsókn-
arflokksins og forsætisráðherra.
Samkvæmt heimildum mun grunn-
skilyrði fyrir afsögn Halldórs vera
að Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segi einnig af sér varafor-
mennsku flokksins. Ástæða þess
samkvæmt heimildum Blaðsins er
að koma Finni Ingólfssyni að sem
formanni framsóknar.
Finnurhélt aga
„Ef það hefur
verið gerð
krafa um að
Guðni hætti
þá finnst mér
að ritari flokks-
ins eigi einnig
að segja af sér,”
segir Anna
Kristinsdóttir
fyrrum vara-
borgarfulltrúi
framsóknarmanna. Hún segir að
breytinga sé augljóslega þörf og eðli-
legt að Halldór segi af sér í kjölfar
slæmrar útkomu Framsóknar í ný-
liðnum sveitastjórnakosningum.
„Mér finnst pínlegt ef allt verður
óbreytt,” segir Anna og bætir við
að það myndi gera flokknum meiri
skaða en hitt. Anna segir að það
sé eðlileg krafa flokksmanna að fá
að kjósa um forystu flokksins ef af
breytingunum verður. Hún segir
að ef Halldór hættir þá sé réttast
að varaformaður flokksins taki við
formennsku flokksins og gegni því
embætti þar til kosið verður um for-
mann á ný í haust. „Það er búinn að
vera mikill órói innan flokksins og
því finnst mér hann maður að meiri
að ætla að víkja,” segir Anna um
titringinn.
Hún segir að það yrði þó mik-
ill fengur í Finni Ingólfssyni inn
í Framsókn, „Það ríkti mikill agi
innan flokksins þegar hann var þar,”
segir hún um helstu kosti Finns.
Kristinn H. gagnrýnir
meðferð málsins
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður segir það ekki koma til greina
að neyða Guðna til þess að stíga úr
varaformannsembættinu og bætir
við að það þurfi að fara aðra leið í
þessu máli
en komið er.
Kristinn gagn-
rýnir að málið
hafi ekki verið
rætt í þing-
flokki fram-
sóknar. Hann
vill ekki taka
undir að for-
ystaFramsókn-
arflokksins
sé að reyna handstýra Finni Ing-
ólfssyni í formennsku flokksins og
inn á þing. Kristinn segir að hann
muni sætta sig við hugsanlega for-
mennsku Finns ef það verður farið
að lögum innan flokksins. Hann
segir að breytinga sé þörf innan
flokksins en það sé afar mikilvægt
að menn gangi ekki framhjá grasrót-
inni heldur sammælist við þá menn.
HjálmarÁrna-
son formaður
þingflokks
Framsóknar-
flokksins segist
ekki kannast
við það að Hall-
dór sé að hætta
né Guðni.
Bróðurleg
skipti embætta
fyrirhuguð
í Reykjavík
Viðræður um skiptingu helstu
pólitískra embætta í stjórnkerfi
Reykjavíkurborgar milli borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hafa átt sér
stað undanfarna daga og sam-
kvæmt heimildum Blaðsins
liggur fyrir tillaga, sem forystu-
menn beggja flokka eru sam-
mála um. Þar er gert ráð fyrir
fremur bróðurlegri skiptingu
flokkanna, sem endurspeglar
lítt innbyrðis styrkleikahlutföll
þeirra.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er gert ráð fyrir að framsókn-
armenn fái formennsku i 3 af 7
fagráðum Reykjavíkurborgar,
auk formennsku í borgarráði.
Stjórnarformennsku í Orku-
veitu Reykjavíkur (OR), Faxa-
flóahöfnum, Sorpu og Strætó
hyggjast þeir hins vegar deila
með sér tvö ár í senn.
Þó að oddvitar meirihlutans
séu ásáttir um þessa tilhögun,
mun nokkur kurr vera í liði Sjálf-
stæðismanna, sem telja að með
þessu verði völd framsóknar-
manna úr öllu korti við umboð
þeirra úr nýafstöðnum kosn-
ingum. Ennfremur hafa heyrst
efasemdir um þær hugmyndir,
að sjálfstæðismenn leiti út fyrir
borgarstjórnarflokk sinn til þess
að skipa í stjórn OR. Segja gagn-
rýnisraddir að með þeim hætti
muni minnihlutinn í borgar-
stjórn fá varanlega forgjöf í allri
umræðu um OR í borgarstjórn.
Ekki hefur enn verið gengið
frá endanlegri skiptingu flokk-
anna í fagráðin og formanns-
stóla þeirra, en fréttastofa
Ríkisútvarpsins greindi frá
því í gærkvöldi, að hún hefði
heimildir fyrir því að framsókn-
armenn fengju formennsku
í Borgarráði, íþrótta- og tóm-
stundaráði, Velferðarráði og
Menningar- og ferðamálaráði,
meðan sjálfstæðismenn fengju
í sinn hlut Framkvæmdaráð,
Menntaráð, Skipulagsráð og
Umhverfisráð.
sérmerkt þér!
) Heiöskírt. Léttskýjað *A. Skýjað Alskýjað'
Rlgning, litilsháttai
i^J^JRignlng^B^Súld Snjókoma^^j styddaS|^> SnJúél^fe^S
iitlíojll'
Algarve 26
Amsterdam 16
Barcelona 22
Berlín 12
Chicago 20
Dublin 19
Frankfurt 16
Glasgow 19
Hamborg 16
Helsinki 18
Kaupmannahöfn 15
London 17
Madrid 31
Mallorka 21
Montreal 16
New York 19
Orlando 22
Osló 19
París 17
Stokkhólmur 15
Vín 15
Þórshöfn 09
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands