blaðið - 06.06.2006, Page 6
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöiö
6 I FRÉTTIR
Garcia kjörinn forseti Perú
Sigraði fyrrum hershöfðingjann Ollanta Humala með tæpum 10% mun.
Alan Garcia fagnar sigri í forsetakosningunum í Lima í gær. Hann segir landsmenn hafa ástæðu til að vera bjartsýnir.
Samdráttur
á fasteigna-
markaði
Fasteignaviðskipti í Reykjavík
drógust saman um tæp 25%
síðustu vikuna í maí miðað
við sama tíma í fyrra. Þetta
kemur fram í samantekt Fast-
eignamats ríkisins á íjölda
þinglýstra kaupsamninga í
maí. Alls voru gerðir 91 kaup-
samningur í lok maí en i fyrra
voru þeir 122. Á höfuðborgar-
svæðinu öllu voru samning-
arnir 175 í ár en 190 í fyrra.
Mestu viðskiptin áttu
sér stað með eignir í fjöl-
býli eða 122 samningar. Þá
voru 28 samningar gerðir
vegna sérbýla og 25 um
annars konar eignir.
f samantekt Fasteignamats
ríkisins kemur ennfremur
fram að heildarvelta á fast-
eignamarkaðinum í lok maí
nam tæpum 5 milljörðum og
jókst um 700 milljónir milli
ára. Meðalupphæð á samning
var 28,4 milljónir samanborið
við 22,7 milljónir í fyrra.
Alan Garcia var í gær kjörinn for-
seti Perú með tæpum 55% greiddra
atkvæða, en andstæðingur hans, 011-
anta Humala, hlaut um 45%. Garcia,
sem gegndi forsetaembættinu á
árunum 1985-1990, sagði úrslitin
vera mikið áfalí fyrir Hugo Chavez,
forseta Venesúela, sem var dyggur
stuðningsmaður Humala í kosninga-
baráttunni. Fyrrum hershöfðinginn
Humala hafði lofað því að feta í fót-
sport Chavez og Evo Morales, for-
seta Bólivíu, og vildi hækka skatta
á erlend fyrirtæki sem nýta sér nátt-
úruauðlindir Perú.
Garcia og Humala höfðu átt í afar
harðri og tvísýnni kosningabaráttu
og skipst á skotum og ásökunum á
meðan á kosningabaráttunni stóð.
Garcia fullyrti að Humala væri
mikil ógn við lýðræði og frið í land-
inu. Humala týndi hins vegar til það
sem illa fór þegar Garcia var forseti
fyrir tveimur áratugum en þá var
ofbeldistíðni há og árásir uppreisn-
armanna tíðar. Garcia hlaut meiri-
hluta atkvæða í höfuðborginni Lima
og þróaðri svæðum norðurhluta
landsins en Humala hlaut flest at-
kvæði sín i suðri og á strjálbýlli
svæðum.
Sigur á fyrirætlunum Hugo Chavez
Hinn nýkjörni forseti fyrirhugar
meðal annars að auka alþjóðlegar
fjárfestingar, koma á frjálsum versl-
unarsamningi við Bandaríkin og
skera upp herör gegn glæpum í
landinu. Framundan bíður hans
svo hið erfiða verkefni að sameina
þjóðina sem hefur skipað sér í tvær
stjórnmálafylkingar.
„íbúar Perú eiga skilið mikið lof.
Meirihluti þjóðarinnar hefur sent
skýr skilaboð um að valdið eigi að
vera í höndum fólksins - að það sé
þjóðin öll sem ráði ríkjum. Við
höfum sigrast á tilraunum Hugo
Chavez til að fá okkur með í hið hern-
aðarlega og afturhaldssama kerfi
sem hann vill þröngva upp á alla
Suður-Ameriku. 1 dag hefur Perú
sagt nei!“ sagði Garcia þegar hann
talaði fyrir þúsundum fagnandi
stuðningsmanna sinna í eftir að úr-
slit lágu fyrir. Þá hvatti hann lands-
menn til að horfa ekki á mistök for-
tíðar, heldur líta björtum augum til
framtíðarinnar.
Þrír laxar
í Norðurá
Þrír laxar komu á land í fyrstu veiði í
Norðurá núna um helgina en opnað
var formlega fyrir ána síðastliðinn
fimmtudag. Að venju var það stjórn
Stangveiðifélags Reykjavíkur (SVFR)
sem tók fyrstu vaktina.
Aflinn í ár er töluvert betri en
í fyrra en þá veiddist enginn lax í
fyrstu veiði. Hvort þetta sé ávísun á
gott veiðisumar skal ósagt látið enda
var sumarið í fyrra afar gott þrátt
fyrirlélegabyrjun.
Þorsteinn Ólafs, stjórnarmaður SVFR,
með 11 punda hrygnu sem hann veiddi á
laugardaginn.
Jeppadekk
Sendum frítt um land allt!
31" 31xl0.50R15 (hv.stafir)
32" LT265/75R16 (hv.stafir)
33" LT305/70R16
GT Radial
Adventuro MT
TRIANGLE TR246
GT Radial
Adventuro AT
27" 215/75R15 (TR249)
28"235/75R15
30"245/75R16
31" 31xl0.50R15
32" 265/75R16
www.alorka.is
28" 235/75R15 (hv.stafir)
30" 215/85R16 (hv.stafir)
30" 245/75R16
31" 31xl0.50R15 (hv.stafir) 33" 33xl2.50R15
31" 275/70R16 (hv.slafir)
32" 235/85R16
32" 265/75R16 (hv.statir)
<gE3/'L
31" heilsársdekk
verð frá kr. 11.900
Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080
AL®RKA
Fjölmiðlar
gagnrýna
rússnesk
stjórnvöld
Vel á annað þúsund ritstjórar
og yfirmenn dagblaða
komu saman í Moskvu i
gær og gagnrýndu rúss-
nesk stjórnvöld harðlega
fyrir að veita fjölmiðlum
þar í landi of lítið frelsi.
Vladimir Pútín, forseti Rúss-
lands, var viðstaddur ráðstefn-
una og var hvattur til að beita
sér fyrir auknu frelsi íjölmiðla.
Pútín svaraði því til að rúss-
nesk stjórnvöld myndu ekki
auka vald sitt yfir fjölmiðlum
landsins, en frelsisaukning
yrði mögulega rædd síðar.
Þeir 1.700 gestir
sem sóttu ráðstefnuna þurftu
að bíða í dagóða stund eftir
forsetanum því Pútín mætti
tveimur klukkustundum of
seint. Pútín gaf hins vegar
engar útskýringar á seinkom-
unni þegar hann loksins kom
og baðst ekki afsökunar.
Rússneski forsetinn var
spurður að því hvers vegna
rússnesk stjórnvöld hefðu
skapað fjölmiðlum þrúgandi
andrúmsloft harðrar rit-
skoðunnar og ótta og hvers
vegna stjórnvöld skiptu sér
af störfum nánast allra fjöl-
miðla í Rússlandi. Pútín gaf
hins vegar fá svör og þótti
snúa út úr spurningunum.
Hann játaði þó að frjáls fjöl-
miðlun væri lykilþáttur í að
tryggja lýðræði í Rússlandi.