blaðið - 06.06.2006, Side 8
8 i FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöiö
Ölvaður á traktor
Ökumaður traktors, sem grunaður
var um ölvun við akstur, náði að
sleppa undan eftirför lögreglunnar
á Hvolsvelli með því að synda yfir
Ytri-Rangá aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmt fréttavefnum Suðurland.
is var maðurinn á leið frá veitinga-
stað á Hellu á traktor sínum þegar
lögreglan gaf honum merki um að
stöðva ökutæki sitt. Maðurinn sinnti
því ekki en ók þess í stað í átt að Ytri-
Rangá, yíir mela og mýrar, þar sem
hann yfirgaf farartæki sitt og synti
niður eftir ánni. Kallað var á björgun-
arsveit til að hafa uppi á manninum
en hann fannst ekki þrátt fyrir leit.
Maðurinn gaf sig fram á sveitabæ
ekki langt frá ánni síðar um nóllina.
Skróning skuldobréfo
i Kauphöll Islonds hf.
Straumur Fjárfestingabanki hf.
1. flokkur 2006
1.000.000.000 kr.
Nafnverö útgáfu:
Heitdarnafnverð ftokksins er t .000.000.000 kr. og hafa öll
skutdabréfin þegar verið setd.
Skilmálar skuldabréfa:
Skutdabréf 1. ftokks 2006 eru fimm ára óverðtryggð
eingreiðslubréf, skutdabréfin bera enga vexti. Ávöxtun
skutdabréfanna er háð vísitöiukörfu sem samanstendur
af þremur ertendum vísitötum.
Karfan er sett saman úr 20% Tokyo Stock Exchange REIT
Index, 30% Dow Jones US Reat Estate Index, 50% EPRA
Europe Price Index EUR. Skutdabréfin eru gefin út í ISK og
höfuðstóll fæst endurgreiddur á tokagjalddaga í ISK.
Breyting fasteignavísitölukörfu er hins vegar mæld í USD
og fæst ávöxtun tengd fasteignavísitöiukörfunni annað
hvort greidd í ISK eða USD á lokagjatddaga, að vati hvers
eiganda skuldabréfsins.
Höfuðstótt fasteignavísitölukörfu ræðst af viðmiðunargengi
USD/ISK 12.04.2006. Krossgengi USD/ISK á útgáfudegi,
12.04.2006, nam 72,2. Krossgengi á afhendingardegi
ávöxtunar (12.04.2011) ákvarðast af Straumi-Burðarási
Fjárfestingabanka hf. kl. 11:00 þann dag. Gjaiddagi
skuldabréfanna er 12. apríl 2011 og greiðist þá höfuðstóll
þeirra. Þremur viðskiþtadögum eftir gjatddaga kemur tit
greiðsia tengd hækkun ofangreindrar vísitötukörfu.
Útgáfudagur var 12. apríl 2006 og eru skuldabréfin rafrænt
skráð hjá Verðbréfaskráningu ístands hf. í 10.000.000 kr.
einingum. Auðkenni flokksins í Kauphölt ístands hf. verður
STRB 06 1.
Skráningardagur:
Kauphötl íslands hf. mun taka skuidabréfin á skrá þann
9. júní 2006
Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni
er hægt að nálgast hjá Straumi-Burðarási Fjárfestinga-
banka hf„ Borgartúni 25,105 Reykjavík,
sími 580 9100, fax 580 9101, www.straumur.net.
Strdumur-Burddrás
FJÁRFESTÍNGABANKI
Sumarið er hættulegur
tími fyrir ungmenni
Niðurstöður kannana benda til þess að áfengis- og vímuefnaneysla
unglinga stóraukist yfir sumartímann, slysa-og dánartíðni vegna
umferðarslysa einnig og kynferðisofbeldi sé sífellt grófara.
Ölvunarakstur ungmenna margfaldast við það að sækja útihátíð.
Áfengisneysla ungmenna eykst
um allt að helming milli ío. bekk
í grunnskóla og fyrsta bekk í fram-
haldsskóla samkvæmt könnun Lýð-
heilsustöðvar á heilsu- og lífstíl ís-
lenskra ungmenna. Þetta kom fram
á blaðamannafundi sem Saman-hóp-
urinn hélt nýlega til að vekja athygli
á sumrinu sem áhættutíma í lífi
ungs fólk. Meðferðaraðilar finna
fyrir aukinni áfengis- og vímuefna-
neyslu meðal ungmenna á sumrin
að sögn Hildar Bjargar Hafsteins,
verkefnistjóra hjá Lýðheilsustöð.
Vaxandi ofbeldi
Saman-hópurinn hefur nú verið
starfandi í tæp sex ár en hann sam-
anstendur af fjölmörgum félagasam-
tökum og stofnunum. I síðustu viku
stóð hópurinn fyrir blaðamanna-
fundi á Kaffi Flóru í Grasagarðinum
í Reykjavík þar sem markmiðið
var að vekja athygli á sumrinu sem
áhættutíma í lífi ungs fólk.
Á fundinum voru m.a. lagðar
fram fjölmargar rannsóknir og
kannanir sem varða lífstíl íslenskra
ungmenna.
Imáli Margrétar Blöndal, hjúkrun-
arfræðings á Neyðarmóttöku vegna
nauðgana, kom fram að hópnauðg-
anir færu vaxandi sem og grófara
ofbeldi. Benti hún á að mikil tengsl
væru milli áfengisneyslu og kynferð-
islegs ofbeldis.
I könnun Lýðheilsustöðvar um
heilsu- og lífstíl íslenskra ungmenna
kemur fram að þeir grunnskóla-
nemar sem neyta áfengis séu lík-
legri til að stunda kynlíf. Samkvæmt
könnuninni notuðu 15% þeirra sem
voru að stunda kynlíf engar getnað-
arvarnir og 5% treystu á rofnar sam-
farir. Könnunin sýndi ennfremur
að áfengisneysla ungmenna eykst
um allt að helming sumarið milli xo.
bekk í grunnskóla og fyrsta bekk í
framhaldsskóla.
Þá var rifjuð upp á fundinum
skýrsla sem Rannsóknarnefnd um-
ferðarslysa stóð að á sínum tíma
en þar kom fram að 25% ökubærra
framhaldsskóla hafa ekið undir
áhrifum áfengis. Samkvæmt henni
hafa þar að auki tæplega helmingur
allra framhaldsskólanema setið i bíl
sem farþegar þar sem ökumaður var
ölvaður. {könnuninni kom fram að
hætta á ölvunarakstri margfaldast
við það að sækja útihátíð og er sum-
arið lang hættulegasti tíminn en þá
verða flest banaslys. I flestum til-
vikum eru það ökumenn á aldrinum
17 til 20 ára sem valda slysunum.
Foreldrar eiga ekki að
sleppa aðhaldi
Hildur Björg Hafstein, verkefnis-
stjóri Lýðheilsustöðvar, segir sum-
arið vera áhættutíma fyrir ungt fólk.
Hún bendir á að meðferðaraðila
finni fyrir aukinni vímuefna- og
áfengisneyslu unglinga yfir sum-
artímann. „Margt bendir til þess
að að veruleg aukning eigi sér stað
í áfengis- og vímuefnaneyslu ung-
menna yfir sumartímann. Með-
ferðaraðilar og þeir sem vinna við
ráðgjöf finna fyrir aukinni neyslu
ungmenna yfir þennan tíma en
það hefur þó ekki verið vísindalega
kannað.“
Hildur segir mikilvægt fyrir for-
eldra að sleppa ekki reglum og að-
haldi þótt sumarið sé komið. „For-
eldrar eiga ekki að slaka á reglum
yfir sumartimann. Það er mikil-
vægt að þeir séu ekki að leyfa þeim
að fara eftirlitslausum í partý, ferða-
lög eða útilegur. Að sjálfsögðu ber
þeim að virða reglur um útivistar-
tíma og þeir eiga ekki að útvega ung-
mennum áfengi né aðstöðu til að
drekka. Langmikilvægast er þó að
foreldrar verji tíma með börnunum
og séu til staðar komi eitthvað upp
á.“
Að sögn Hildar eru ýmis verkefni
í gangi þar sem reynt er að draga
úr líkunum á því að unglingar hefji
áfengisneyslu. Bendir hún m.a. á
óvissuferðir í lok samræmduprófa
sem hafa skilað góðum árangri. „Þá
er samstarf t.d. í kringum menn-
ingarnóttina í Reykjavík og hvenær
sem líklegt þykir að unglingar fari
að drekka. I Hafnarfirði er t.d. sam-
starfshópur sem vinnur beint með
þá sem teljast í áhættuhóp og það
starf hefur gefist mjög vel.“
Gengið um Viðey í sumar
í sumar verða gönguferðir með leið-
sögn öll þriðjudagskvöld í Viðey og
meðal leiðsögumanna eru Örvar B.
Eiríksson, verkefnisstjóri Viðeyjar,
félagsmenn úr Myndhöggvarafélag-
inu í Reykjavík, Hrafn Gunnlaugs-
son kvikmyndagerðarmaður, Ari
Trausti Guðmundsson jarðfræð-
ingur, Jóhann Óli Hilmarsson fugla-
fræðingur, Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona, Örlygur Hálfdanarson
Viðeyingur og síðast en ekki síst
Sr. Þórir Stephensen fyrrverandi
staðarhaldari.
A inni
Önnur ganga sumarsins næst kom-
andi þriðjudag verður með Örvari B.
Eiríkssyni sagnfræðing sem sérhæft
hefur sig í sögu Viðeyjar. Verður
gengið um þorp Milljónafélagsins í
Viðey sem stóð í 36 ár. Einnig verður
landbrotið í Viðey skoðað og nokkur
af listaverkum Site-ations munu
verða á vegi þátttakenda.
Allar göngurnar hefjast klukkan
19:00 með siglingu úr Sundahöfn og
taka rúma tvo tíma. Það er ókeypis í
göngurnar utan ferjutolls sem er 750
kr. fyrir fullorðna og 350 kr. fyrir
börn. Að auki er göngumönnum
boðið upp á Kristal af Ölgerðinni.
Ekki glata minningum!
Settu bestu Ijósmyndirnar þínar á Ijósmyndapappír, til varöveislu um aldurog ævi. Þaö hefuraldrei verið auöveldara!
Hvort sem myndir eru á CD, minniskorti, minnislykli eöa í blátannar síma. Þú skoöar og velur á snertiskjá og færð
myndirnar á Fujifilm Crystai Archive endingarbesta Ijósmyndapappír í heimi. Verö aöeins frá 29.- kr. myndin!
Skipholti 31, sími 568-0450 Ijosmyndavorur.is
tíÉtHÉ
FUJIFILM
OFFICIOL imOGinG SPOnSOR
LJOSMYNDIRNAR
LIFNA VIÐ!