blaðið - 06.06.2006, Qupperneq 10
10 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaðið
Hver vinnur
með hverjum?
Finnur á leióinni?
99
Það var eðlilegt að Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson leitaði til Frjálslyndra
með að mynda meirihluta eftir
kosningar og jafn
undarlegt að þeim
viðræðum skyldi
slitið með þeim hætti
sem það var gert og
meðan Ólafur Magn-
ússon beið eins og
ungmey í festum þá
var Vilhjálmur að
mynda meirihluta
með Framsóknar-
flokknum. En þannig
mun það hafa verið eftir þessar kosn-
ingar að það voru allir nema ef til
vill Samfylkingin reiðubúin til að
vinna með Sjálfstæðisflokknum.
Þá geta menn spurt, var það mögu-
legt fyrir Frjálslynda að ganga í
björg með kvótaflokknum Sjálfstæð-
isflokknum í Reykjavík. Já það var
mögulegt af þvi að kvótinn er ekki
til umræðu í stjórn borgarinnar og
kvótaandstæðingar gátu því kosið
Sjálfstæðisflokkinn að þessu sinni
þó margir gerðu það með nokkru
óbragði. Það hefði verið gaman að
sjá meirihluta Frjálslyndra og Sjálf-
stæðisflokksins verða að veruleika í
Reykjavík en af því varð því miður
ekki og Vilhjálmur Vilhjálmsson
kaus að verða borgarstjóri með
stuðningi minnihluta kjósenda þó
hann hafi átt þess kost að verða borg-
arstjóri með stuðningi meirihluta
kjósenda.
Magnús Þór Hafsteinsson alþing-
ismaður sagði að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefði gert alvarleg og afdrifarik
mistök þegar hann sleit viðræðum
um meirihlutasamstarf með Ól-
afi F. Magnússyni hjá Frjálslynda
flokknum í Reykjavík. Ég er Magn-
úsi sammála um þetta.
Síðan segir Magnús “Hafi Sjálf-
stæðisflokkurinn einhvern tímann
haft tækifæri til þess að eiga ein-
hvern möguleika á því að fá okkur
úr Frjálslynda flokknum aftur inn
í Sjálfstæðisflokkinn þá gekk það
tækifæri úr greipum í gær.” Mér
komu þessi ummæli Magnúsar á
óvart. Hvað á hann við. Hefur það
komið til tals að Frjálslyndi flokkur-
inn verði lagður niður og þingmenn
hans fylgi Gunnari Örlygssyni yfir
í Sjálfstæðisflokkinn. Mundu þeir
þá fallast í faðma Árni Mathiesen
og Magnús Þór Hafsteinsson? Á
hvaða forsendum gæti slík samein-
ing átt sér stað. Er þá baráttan gegn
kvótamisréttinu dauð. Er eitthvað
annað mikilvægara í hugum þeirra í
Frjálslynda flokknum sem hyggja á
sameiningu við Sjálfstæðisflokkinn.
Mér satt að segja brá við að heyra
þessi ummæli varaformanns Frjáls-
lynda flokksins.
Ég sé ekki að þeir sem eru and-
stæðingar Iraksstríðsins, á móti
gjafakvótanum, okri, skattpíningu
og spillingu geti átt nokkra samleið
með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæð-
isflokkurinn er í dag í landsmálum,
holdgervingur spillingarinnar og
misréttisins í þjóðfélaginu ásamt
Framsóknarflokknum og hvorki
Frjálslyndir né við í Nýju afli getum
látið okkur til hugar koma að sam-
einast flokknum á þeim forsendum
sem hann starfar í landsmálum í
dag.
Höfundur erformaðurNýs afls,
þjóðmálafélags
www.nyttafl.is
Mjög sérkennileg umræða fer nú
fram um hugsanlega endurkomu
Finns Ingólfssonar í forystusveit
Framsóknarflokksins og hugsanlega
á ráðherrastól. Þessar hugmyndir
eru með miklum ólíkindum. Hugs-
anlegt brotthvarf
Halldórs Ásgríms-
sonar úr pólitík er
sagt tengjast lán-
leysi Framsóknar
í nýafstöðnum
. sveitarstjórnarkosn-
ingum, sem án
efa tengist þeirri
stefnu sem flokkur-
inn er orðinn holdg-
ervingur fyrir á
landsvísu: Ofuráherslu á álvæðingu
landsins, einkavæðingu og fylgi-
spekt við þá Bush og Blair. Ef nafn
einhvers stjórnmálamanns tengist
fyrrnefndu tveimur þáttunum, ál-
væðingunni og einkavæðingunni,
meira eða jafnmikið og nöfn þeirra
Halldórs Ásgrímssonar og Val-
gerðar Sverrisdóttur, þá er það nafn
Finns Ingólfssonar. Þess vegna er
það með ólíkindum að láta sér koma
til hugar að velja hann til endurreisn-
arstarfs í Framsóknarflokknum.
Á myndinni hér að ofan má sjá þá
félaga Ólaf Ólafsson, sem á sínum
tíma var kenndur við Samskip,
koma úr Ráðherrabústaðum sæla og
Sú spurning gerist
mjög áleitin hvers
konar fyrírbærí Fram-
sóknarflokkurínn
eiginlega er orðinn.
Er hann stjórnmála-
flokkur eða er hann ef
til vill orðinn þröngt
hagsmunabandalag
sem nýtir sér ítök í
stjórnmálum, fjármála-
klíkum innan flokksins
til framdráttar?
hróðuga eftir að gengið hafði verið
frá því að S-hópurinn eins og Fram-
sóknarhópurinn var kallaður, hafði
fengið Búnaðarbankann í sinn hlut.
Þeir sem högnuðust á þessum við-
skiptum hafa nú margir hverjir millj-
arða upp á vasann. Fyrir réttu ári
greiddi sessunautur Finns á mynd-
inni rúma fimm milljarða upp úr
eigin buddu í einni af mörgum
transaksjónum sem síðast náði há-
marki í því að Ólafur seldi stórt í
ársbyrjun og flutti auð sinn úr landi.
Finnur hefur legið lágt en eins og
einn lesandi bendir á í bréfi hér á
síðunni verður fróðlegt að fylgjast
með því hvernig hann gerir grein
fyrir eignum og ítökum ef hann
kemur inn í pólitíkina að nýju.
Fyrir flokksmenn í Framsóknar-
flokknumhlýturaðveraundarlegtað
fylgjast með því hvernig embættum
í Framsóknarflokknum virðist vera
ráðstafað rétt eins og lýðræðislegar
kosningar komi flokknum hreint
ekkert við. Kannski er það líka svo.
Sú spurning gerist mjög áleitin hvers
konar fyrirbæri Framsóknarflokk-
urinn eiginlega er orðinn. Er hann
stjórnmálaflokkur eða er hann ef til
vill orðinn þröngt hagsmunabanda-
lag sem nýtir sér ítök í stjórnmálum,
fjármálaklíkum innan flokksins til
framdráttar? Til þess að skilja hrær-
ingarnar innan flokksins er nauð-
synlegt að kunna svörin við þessum
grundvallarspurningum. Erflokkur-
inn að leita eftir forsvarsmönnum til
að tala fyrir hugsjónum framsóknar-
manna eða eru menn ef til vill fyrst
og fremst að leita eftir ábyggilegum
hagsmunagæslumönnum?
Höfundur er alþingismaður ogfor-
maðurBSRB
www.ogmundur.is
99..............................................
Ég sé ekki að þeir sem eru andstæðingar íraksstríðs-
ins, á móti gjafakvótanum, okri, skattpíningu og
spillingu geti áttnokkra samleið með Sjálfstæðis-
flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn erí dag í lands-
málum, holdgervingur spillingarinnar og misrétt-
isins í þjóðfélaginu ásamt Framsóknarflokknum
• Kúlulegur
• Keflalegur
• Keilulegur
FÁLKINN
búkkalegur siom.nm ÞEKKING REYNSLA ÞjÓNUSTA
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Simi 540 7000 • www.falkinn.is
VILTU AÐ AUGLÝSINGIN ÞÍN SJÁIST
blaðið=
r '
vn
Jón Magnús-
son
Upplýsingar og skróning ó netinu:
www.ulfljotsvatn.is
- Kassaklifur - GP5 ratleikir - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöi/í -
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífscBvintýri - fjör og hópeflisandi!
II
#/
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn