blaðið - 06.06.2006, Page 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006
ÁLIT I 11
Sóðaleg
Fráfarandi formaður Framsókn-
arflokksins, Halldór Ásgrímsson,
sagði á kosninganótt að hann
myndi axla ábyrgðina af miklu
tapi flokksins. Innan flokksins er
greinilega krafa um forystuskipti.
Slíkt er einfaldlega lögmál innan
stjórnmálahreyfinga sem gjalda
afhroð í kosningum og standa
illa.
Framsókn hefur ekki borið sitt
barr eftir að flokkurinn studdi
innrásina í Irak. Framsókn ætti
hins vegar að muna líka, að það
var að verulegu leyti Halldóri Ás-
grímssyni að þakka að hún hélt
lífi í síðustu þingkosningum.
Það boðar hins vegar ekki
gott fyrir flokkinn að maðurinn
semþröng flokksklíka hefur valið
sem arftaka hins hrunda veldis
Framsóknar, Finnur Ingólfsson,
þorir greinilega ekki í kosningu
innan flokksins. Hann þarf bæði
ráðherraembætti og formennsku
á silfurfati - einsog Seðlabankann
og ýmislegt fleira á sínum tíma.
Af fregnum er morgunljóst að
Finnur hefur gert það að skilyrði
fyrir endurkomu sinni í stjórnmálin
að Guðni Ágústsson - vinsælasti
stjórnmálamaður Framsóknar -
verði hrakinn einsog hundur úr emb-
ætti. Hvílíkar aðfarir! Svo vel þekki
ég Guðna og stolt Brúnaðastaðakyns-
ins eftir margar orrustur að slíka nið-
urlægingu lætur hann ekki yfir sig
ganga nema undir hörðum hótunum.
Muni ég rétt var Finnur Ingólfs-
son misserum saman óvinsælasti
ráðherra ríkisstjórnarinnar. f því
ljósi er skiljanlegt að Finnur leggi
ekki í að koma aftur sem ráðherra,
og eiga yfir höfði sér að skíttapa fyrir
Guðna. Heldur Framsókn að það sé
aðför að Guðna
gæfuleg byrjun
fyrir nýjan
formann að
byrja með því
að sýna slíkt
kjarkleysi?
Framsókn-
arflokkurinn
hefur verið
að tapa öllu
vinstra fylgi
Össur Skarpéðinsson sínu . sérstak-
lega á landsbyggð -
inni. Finn Ingólfsson er líklega hægt
að staðsetja yst á hægri kanti flokks-
ins. Heldur Framsókn að það sé lík-
legt til að ná vinstra fylginu aftur að
færa hægri sinnaðasta manninum
sem völ er á formennsku á silfurfati?
Vinir mínir í VG hljóta að halda
að þetta sé einsog á Kúbu þar sem
félagi Kastró gat hringlað með jólin
fram og til baka - og þetta íslenska
vor sé að breytast í eilífa jólaveislu.
Það er engu líkara en arkitektarnir
að þessari sérkennilegu fléttu hafi
haft það að markmiði að festa flótta-
fylgið frá Framsókn sem tryggileg-
ast í vörslu VG.
Sá er grunur minn að þetta muni
vekja upp marga óskemmtilega
drauga fyrir Framsóknarflokkinn
- og Finn.
Höfundur er alþingismaður
ossur@hexia.net
99....................
Affregnum ermorgun-
Ijóst að Finnur hefur
gert það að skilyrði
fyrir endurkomu
sinni í stjórnmálin
að Guðni Ágústsson
- vinsælasti stjórnmála-
maður Framsóknar
- verði hrakinn einsog
hundur úr embætti.
VILTU AÐ
AUGLÝSINGIN
ÞÍN SJÁIST
blaöið
Auglýsingasími: 510-3744
Hágæða 11
sláttutæki
/’TIGK
Garden Combi sláttutraktór
12,5 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
1 70 Itr. grashiröikassi
Estate Pro 22 sláttutraktór
22 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
300 Itr. grashirðikassi
Vetrarsól ehf. - Asknlind4 Kópavogi Simi 5641864