blaðið - 06.06.2006, Qupperneq 12
12 I GARÐAR
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaAÍ6
Grœnt og vel gróið gras
Það er hreint ekki eins einfalt
að rækta góðan grasbala og þeir
sem óvanir eru garðrækt gætu
haldið. Oftlega má sjá skallabletti
í grasblettum, sem og miklar mis-
hæðir í grasinu, sem myndast þar
sem mosavöxtur er mikill. Til að
koma í veg fyrir slíka útlitsgalla
á grasblettinum er nauðsynlegt
að fara eftir nokkrum einföldum
ráðum.
Vaxtartími grasplöntunnar á ís-
landi er no - 130 dagar. Að vori er
grasið viðkvæmt en þá er orkuforði
grasplöntunnar á þrotum og hún
mjög viðkvæm fyrir traðki, hita-
sveiflum, vindkælingu og þurrki. I
maí og júní, eða framan af vaxtar-
tímanum, getur grasvöxtur verið
mikill vegna góðra birtuskilyrða.
Pétur Pétursson, sölu-og markáðs-
stjóri hjá Áburðarverksmiðjunni,
V,
ÞÓR HF
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
J
segir að ef menn kalkbera svörðinn
strax að vori og dreifa í hann áburði
sé ekki vandasamt að rækta fallegan
blett.
„ Það þarf að huga að því þegar jarð-
vegur hefur náð 5 gráðum að byrja
að bera á. Ef það er mikill mosi í
grasrótinni þá borgar sig á að byrja
á að bera Turbokalk í svörðinn. Það
er gert vegna þess að kalkið fer illa í
mosann, það hemur hann og heldur
vextihansí lágmarki. Fimmtilsjö
dögum síðar hefur köfnunarefnið í
kalkinu örvað grasvöxtinn umfram
vöxt mosans. Þá er gott að gefa gras-
inu Blákorn sem inniheldur öll nauð-
synleg efni fyrir grasvöxtinn," segir
Pétur.
Lokagjöf um verslunarmannahelgi
Það getur þó verið ástæða til að
bera aftur á svörðinn í júnímánuði
en þá dvínar rótarvöxtur á kostnað
blaðvaxtar og nýir blaðsprotar ná há-
marki.Grassvörðurinn nær mestum
þéttleika á þessum tíma. „Ef menn
ná ekki árangri strax, vegna þess
að það er mikill mosi í sverðinum
eða eitthvað annað, er ástæða til að
dreifa aftur áburði um um miðjan
júní.“ Pétur segir algengt að fólk
hafi það fyrir reglu að gefa áburð
þrisvar sinnum yfir sumarið. „Það
er algengt að fólk gefi þriðju og síð-
ustu gjöfina í lok júlí, svona rétt
áður en haldið er af stað í fríið um
verslunarmannahelgina. Þá hefur
dregið úr birtumagni og blaðvöxt-
urinn dregist saman og því ber að
varast að nota of mikið af áburði
en dreifa þess í stað létt yfir. Þetta
er mikilvægur vaxtartími rótarkefis-
ins þegar ræturnar stækka og safna
forða til að undirbúa grasplöntuna
fyrir veturinn." Rótarvöxturinn
heldur svo áfram fram eftir hausti
séu veðurskilyrði góð en í október-
mánuði er plantan fallin í dvala sem
varir fram í aprílmánuð. Þá nýtir
hún orkuforða rótarkerfisins.
Ekki óttast grassprettuna
Pétur segir að menn þurfi ekki að
óttast að áburðargjafirnar auki gras-
sprettuna þannig að menn verði
að vera oft á ferð með sláttuvélina.
„Það er í sjálfu sér ekki vandamál.
Með áburðargjöf ertu að byggja upp
rótina svo þú fáir ekki skallabletti í
grasið. Ef þú gefur ekki áburð áttu
á hættu að grasið líti illa út. Með
áburðargjöf færðu betri sprettu
og fallegra gras. Þetta fer einnig
mikið eftir því hvaða grastegund
þú ert með. Túnvingulstegundir eru
bestar en það eru til blöndur eins og
skrúðgarðsfræ frá Fóðurblöndunni
sem henta vel í garða. Það er þá líka
ágætt að gefa grasinu fræ ef hann er
orðinn slöllóttur og leiðinlegur og
svo áburð á eftir“, segir Pétur.
íslenskar aðstæður
Blákorn er sérhannaður áburður
fyrir íslenskar aðstæður en í ís-
lenskum jarðvegi er mikill fosfór-
skortur vegna þess hversu jarðvegur-
inn hér er ungur. I Blákorni er því
mikið magn fosfórs ólíkt því sem
stundum á við um erlenda áburði.
„Þessar erlendu blöndur innihalda
oft lítið af fosfór og stundum er verið
að ýta að fólki einhverju sem ekki
hentar fyrir íslenskar aðstæður“,
segir Pétur og bætir við að bændur
í Þykkvabænum hafi notað þennan
áburð í áraraðir við góðan orðstír.
„Að sama skapi hentar þessi áburður
vel í sáningu í skrúðgarða, á tréin og
þau blóm sem eru í beðum fólks.
ígpfgf g ý* :
ÉL. %
Grasblettur í góðri rækt er mikil garðaprýði, en hann má rækta ef farið er eftir
einföldum leiðbeiningum.
Keykjanesbraut
’kóoRAn:
'r*
•^4.
mss-.
Fallegar, gróskumiklar plöntur
Tré, sumarblóm, skrautrunnar, berjarunnar, limgerðisplöntur,
rósir, fjölærar plöntur, grænmetisplöntur og kryddjurtir.
Mikið úrval af hengiplöntum.
Fagleg ráðgjöf um val á plöntum!
Annað nauðsynlegt í garðinn
Hengikörfur, ker, pottar, mold, áburður, smáverkfæri o.fl.
GROÐRARSTÖÐIN
Dalvegi 30 - Kópavogur - Sími 564 4383 - stord@stord.is