blaðið - 06.06.2006, Page 14
blaðið____
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
STJÓRNIR OG KYNJAKVÓTI
Aráðstefnunni Tengslanet III - Völd til kvenna sem fór fram í há-
skólaþorpinu á Bifröst á dögunum var samþykkt ályktun þar
sem löggjafinn er hvattur til þess að setja lög sem miða að því
jafna hlut kynjanna í stjórnum þeirra fyrirtækja sem eru skráð í Kaup-
höll íslands. Lögin eiga að stuðla að því að hlutur annars kynsins fari
ekki undir 40%. Umræðan hér á landi undanfarin ár bendir til þess að
áhrifamiklir stjórnmálamenn telji þörf á slíkri lagasetningu. Og þegar
horft er til þróunarinnar á Norðurlöndum er ástæða til að ætla að þess
verði ekki langt að bíða að umræða um nauðsyn þessa magnist mjög hér
á landi.
Rýr hlutur kvenna í stjórnum stærstu fyrirtækja íslands er áhyggju-
efni. Furðu vekur að fleiri konur veljist ekki í framvarðarsveitir þeirra.
Þrátt fyrir það eru hugmyndir um lagasetningu til þess að bæta ástandið
ekki hin rétta nálgun.
Hlutabréfamarkaðurinn er býsna lýðræðislegt fyrirbæri. Völd einstak-
linga og áhrif þeirra á stjórn fyrirtækja þeirra er í beinu sambandi við
hlutafjáreign i viðkomandi fyrirtæki. Þrátt fyrir að hlutafjáreigendur
komi yfirleitt ekki að daglegum rekstri fyrirtækja sem eru skráð í kaup-
hallir kjósa þeir stjórnir þeirra og refsa og umbuna stjórnendum fyrir
frammistöðu með ákvörðunum sínum á hlutafélagsfundum. Hagsmunir
hlutafjáreigenda felast meðal annars í því að kjósa þá sem þeir telja hæf-
asta hverju sinni til að stýra fyrirtækjunum. Þetta ferli er kjarninn í því
sem að austurríski hagfræðingurinn, Jósef Schumpeter, kallaði „hinn
skapandi eyðileggingarmátt" fjármagnsins.
Lagasetning stjórnvalda sem takmarkar val hlutafjáreiganda á stjórn-
endum gerir hlutabréfamarkaðinn óskilvirkari og dregur úr hagkvæmni
hans. Auk þess felur slík lagasetning í sér óþolandi inngrip ríkisvaldsins
í ákvarðanatöku einstaklingu. Sé það vilji eigenda tiltekins hlutafélags
að eingöngu karlar eða konur stjórni því þá verða þeir að standa og falla
með þeirri ákvörðun.
Það að auka hlut kvenna í atvinnurekstri er bæði göfugt og æskilegt
takmark. Hagkerfið hefur ekki efni á því að nýta sér ekki allan þann
mannauð sem býðst hverju sinni. Hins vegar er lagasetning í þessu sam-
hengi ekki réttlætanleg. Hér er ekki verið að krefjast þess að þeir sem
fara með ríkisvaldið sitji aðgerðarlausir. Þeir geta gengið fram með góðu
fordæmi með mannaráðningum í opinberar stofnanir og í stjórnsýsl-
unni. Slíkt fordæmi væri mun líklegra til árangurs en að setja lög sem
takmarka í raun valmöguleika hlutafjáreigenda þegar kemur að því að
kjósa stjórnir fyrirtækja.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
www. nuddpotta r. is
Glæsilegir rafhitaðir nuddpottar frá Californiu
verð frá 399.000 til 490.000
Rúmgóðir og djúpir nuddpottar frá 13001. til 17001.
Njóttu sumarsins í nuddpotti frá nuddpottar.is
Hvað er betra en að liggja í heitum nuddpotti
og njóta sumarkvöldsins
14 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 blaöið
3A/ R-Soo , i
-púMPu A flZYNÞ
*
A Framsókn erindi til þjóðarinnar?
Mér hefur lengi verið það alvörumál
að gamla framsóknarstefnan eigi er-
indi við íslensku þjóðina. En það læð-
ast enn og aftur að mér efasemdir
um að Framsóknarflokkurinn eigi
það.
Á þeim dögum þegar samfélag
okkar sporðreisist með vaxandi
hraða í átt að borgríki þar sem öll
áhersla er lögð á peningahyggju
ætti svosem ekki að vera til efs
að sjóaður landsbyggðarsinnaður
miðjuflokkur á erindi sem erfiði.
Landsbyggðarmenn hafa fyrir
löngu tapað völdum í hinum stóra
Sjálfstæðisflokki og fyrir Samfylk-
ingu er guðsvoluð landsbyggðin
ekki annað en atkvæði til að brjóta
landinu leið inn í Evrópusambandið.
Þar með væri óþarft um sveitir og
landsbyggð að tala. Ónefndur er að
mörgu leyti hugnanlegur vinstri
flokkur Steingríms J. sem margir
alvöru framsóknarmenn flýja nú
til. Stærsti galli þess flokks er samt
holur tónn grænfriðunga sem ekki
eru byggðum íslands hótinu betri
en það Greenpeacelið sem á sínum
tímum sló af hvalveiðar við Islands
strendur. Sá hávaðakór fer stækk-
andi og harla ólíklegt að þeir pólit-
ísku flóttamenn úr framsókn sem
setjast að hjá VG hafi þar roð við.
Öll völd í bæinn?
En hvað er þá að framsókn? Flokk-
urinn er allt að einu fylgi rúinn á
suðvesturhorninu eins og nýlegar
sveitarstjórnarkosningar sýna og
ætti því að vera hægur vandi fyrir al-
vöru landsbyggðar- og framsóknar-
menn að leggja flokksrústir þessar
að fótum sér. Nú þegar Halldór Ás-
grímsson er á förum hafa margir
séð hilla undir betri tíð. Eða sáu!
Þær bollaleggingar eru uppi um
að láta flokkinn í hendur á gömlum
samverkamanni Halldórs gera þær
vonir að litlu. Sá sem hér ritar hefur
reyndar um margt haft mætur á
Finni Ingólfssyni. Vandaðri og dug-
meiri stjórnmálamenn eru fáir. En
hann tilheyrir reykvískri hægri slag-
síðu flokksins.
Viðhorf
Bjarni Harðarson
Fátt hefur raunar orðið Framsókn-
arflokkinum eins skeinuhætt á und-
anförnum árum eins og fálm til að
gera flokkinn að Reykjavíkurflokki.
Það hefur ekki dregið að honum at-
kvæði á mölinni þar, en slegið stór-
lega á vægi hans og trúverðugleika
um land allt. Mín tilfinning er að
Framsóknarflokkur sem stæði heill
að þeirri stefnu að vera landsbyggð-
arflokkur gæti átt verulegt fylgi
meðal Reykvíkinga, svo mikið sem
þar er af landflótta sveitamönnum.
Finnur ekki svarið
Finnur Ingólfsson er auðvitað ekki
á neinn hátt andsvar við auðhyggju
og hægri slagsíðu flokksins á undan-
förnum árum. Að evrópuveikinni
slepptri, sem ég vil trúa að hann
sé laus við, stendur hann fyrir þá
helft Halldórs Ásgrímssonar sem
þjóðin vildi helst gleyma. Hann er
í ofanálag holdgervingur þess hluta
í óvinsælu einkavæðingarferli sem
aldrei hefur tekist að skýra til fulls
hvernig var varið. Sú saga öll mun
fylgja honum og gera honum sam-
skiptin við fjölmiðla hálfu verri en
þau þó voru í hans ráðherratíð fyrir
nokkrum árum. Fyrir Framsóknar-
flokkinn mun þetta þýða fólksflótta
í atkvæðatölum af þeirri gerð að
jafnvel afskekktustu krummaskuð
blikna.
Um daginn lögðu kastljósmenn
sig í líma við að segja brandara af því
að Guðni Ágústsson ætti að verða ut-
anríkisráðherra. Þetta þótti einkar
vel heppnað enda meðal margra
stéttarbræðra minna talin firn og
móðgun við rétttrúnað samtímans
að ómenntaður maður komist í ráð-
herrastól. Slíkt er menntasnobb þess-
arar þjóðar orðið.
Ég hef hálfpartinn verið að vona
alla hvítasunnuna að einhver upp-
lýsi mig um að fréttin um Finn Ing-
ólfsson væri líka brandari en skrifa
þetta nú þegar sú von er svo gott
sem úti.
Höfundur er ritstjóri Sunnlenska
fréttablaðsins.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Ofurbloggarinn Össur
Skarphéðinsson
hjólar vitaskuld í
vanda framsóknar á bloggi
sínum {ossur.hexia.net)
og öllum að óvörum tekur
hann upp þykkjuna fyrir Guðna Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra og varaformann
Framsóknarflokksins:
„Affregnum ermorgunijóstað Finnurhefur
gertþað að skilyrði fyrir endurkomu sinni í
stjórnmálin að Guðni Ágústsson - vinsælasti
stjórnmáiamaður Framsóknar - verði hrakinn
einsog hundur úr embætti. [...]Muni ég rétt
var Finnur Ingólfsson misserum saman óvin-
sælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar. Iþví Ijósi
er skiljanlegt að Finnur leggi ekki I aðkoma
aftur sem ráðherra, og eiga yfir höfði sér að
skíttapa fyrir Guðna. Heldur Framsókn að það
sé gæfuleg byrjun fyrir nýjan formann að byrja
með því að sýna slíkt kjarkleysi?"
En það má líka telja
Ijóst að Össur mun
ekki harma endur-
komu Finns Ingólfssonar
ákaflega. Hermt er að stjórn-
arandstöðuna klæji í fingurna
eftir að geta læst klónum í Finn. Þeir eru þegar
farnir að rifja upp langt syndaregistur hans og
telja ákjósanlegt að eyða árinu fyrir kosningar
í að rifja upp sölu Búnaðarbankans, VlS og það
allt. Ekki finnst þeim svo verra, að allt mun það
líka klínast á samstarfsmennina (Sjálfstæðis-
flokknum, án þess að þeir þurfi að hafa fyrir
því að ráðast sérstaklega á þá.
Hinn pennalipri sjáv- ■■mbh
arútvegsráðherra, i
Einar K. Guðfinns- p
son ræðir áskoranir „Islands-
vina" um að drekkja Valgerði
Sverrisdóttur, en þó ekki síður
hina algjöru þögn sem um málið hefur ríkt
meðal hinna talandi stétta. Spyr hann hvort
menn séu orðnir „svo samdauma hraklegum
siðferðisgildum, að telja réttlætanlegt að
drekkja fólki sem er manni ekki sammála?" Svo
bætirhannvið:
„Ogslðaneittenn. Það varnöturlegtað horfaá
talsmann þeirra, sem að mótmælunum stóðu,
koma I sjónvarpið, yppta þar öxlum, brosa
og segja; mér kemur þetta ekki við. Þetta er
forkastanlegt viðhorf. - Stúlka góð: Þér kemur
þetta við, þér kemur þetta vlst við."
)
I
!
I
I
I
I