blaðið - 06.06.2006, Side 16
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöiö
16 I BÍLAR
Fyrsti bíll Henry Ford 100 ára
Þegar við setjumst upp í bifreið
og ökum til vinnu að morgni
hugsum við líklega fæst um upp-
runa farartækisins eða sögu þess.
Um þessar mundir er hins vegar
ágæt ástæða til þess að minn-
ast þeirra manna sem sköpuðu
þennan þarfa þjón því sl. sunnu-
dag voru liðin no ár síðan Henry
Ford reynsluók fyrsta bílnum sem
hann hannaði.
Bræðurnir Frank og
Charles Duryea
Fyrsti bensínbíllinn var ekki runn-
inn undan rifjum Henry Ford. Hann
leit dagsins ljós í Ameríku árið 1893
en hann var smíðaður af bræðr-
unum Frank og Charles Duryea.
Þeir prufukeyrðu hann stoltir á
götum Springfield 21. september
árið 1893. Bræðurnir keyptu gamlan
hestvagn fyrir 70 dollara og settu í
hann eins sílendra bensínvél. Þessi
bifreið fór aldrei í fjöldaframleiðslu.
Þremur árum síðar kom Ford fram
með sinn fyrsta bensínknúna bíl.
Ford hafði klambrað bílnum saman
í garðskúr heima hjá sér og hann
hafði hvorki bremsur né gíra. Þá
starfaði hann sem verkfræðingur
í Detroit og hafði lengi verið afar
upptekinn af því að reyna að koma
saman ökuhæfri bifreið.
Sveitapiltur þreifar fyrir
sér við bílasmíði
Henry Ford fæddist árið 1894 og var
sonur fátækra írskra innflytjenda.
Faðir hans var bóndi og var Henry
ætlað að starfa við hlið föður síns.
Hann sýndi þó snemma að hann
var ekki sérlega mikið gefinn fyrir
Henry Ford við Módel T bifreið sína
bústörf og þegar hann var r5 ára tók
hann föggur sínar og hélt af stað til
Detroit þar sem hann reyndi fyrir
sér sem vélasmiður. Henry Ford fór
að þreifa sig áfram við bílasmíði og
skömmu eftir að hann reynsluók
sínum fyrsta bíl árið 1896 hafði
hann selt bíl fyrir 200 dollara. Hann
notaði peningana til þess að smíða
annan bíl og með fjárhagslegri
aðstoð frá borgarstjóra Detroit og
annarra auðugra borgarbúa stofn-
aði hann eigið fyrirtæki árið 1899.
Það fyrirtæki náði þó ekki að fjölda-
framleiða neina bíla og var leyst upp
árið 1901. Tveimur árum síðar bauð
Henry Ford fyrsta fjöldaframleidda
bílinn til sölu. Ford náði að skapa bíl-
tegund sem hentaði bandarískum
aðstæðum við upphaf tuttugustu
aldar einkar vel þar sem lítið var um
verkstæði og vegir bágbornir. Þetta
var Módel T sem náði ótrúlega fljótt
hylli almennings. T-módelið var
framleitt í 15-16 milljónum eintaka
og var það met ekki slegið fyrr en
árið 1972.
Færibönd breyta heiminum
Ford var sá fyrsti til þess að nota
færibönd og flæðilínur í sinni
framleiðslu og margfalda þannig
framleiðslu sína. Það var ekki síst
því að þakka að hann náði þessari
miklu forystu í bílaiðnaðinum. Að-
ferðir þær sem Ford beitti við fram-
leiðsluna ollu byltingu í efnahagslífi
heimsins á tuttugustu öld. Með
þessum aðferðum urðu bifreiðar í
fyrsta sinn nægilega ódýrar til að
almenningur gæti keypt þær. Ekki
leið á löngu uns bíllinn breytti
ásýnd Ameríku.
Fyrsti ökuhæfi bíll Henry Ford
Henry og Clara Ford á 50 ára afmæli
fyrsta bílsins áriö 1946
Varahluttr
AuHahlutlr
BMW - Benz - Opel
www.blfreld.ls
Bestu fáanlegu gæóí frá Þýzhalandl
#
vaaOnnai
Besta verðld mlöað
vlð sambærlleg gæðl
Ehta xenonsett í alla bila
Gúmmívinnustofan
Saa[íij«(á(ikfc
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
Polar rafgeymaþjónusta Rafgeymar fyrir fellihýsi og mótorhjól Frí ísetning og mæling %»'
Sm"******* T nriMiiiilillli
IffZTTTTTWWTTl Michelin dekkar allt ' -
Gúmmívinnustofan - SP dekk • Skipholti 35,105 RVK
sími 553 1055 • www.gummivinnustofan.is
MUNIÐ BÍLBELTiN
Hvatt til bíl-
beltanotkunar
Auglýsingastofan Hvíta húsið
hefur annast gerð auglýsinga
fyrir Umferðastofu sem eiga að
hvetja fólk til þess að spenna
beltin á ferðum sínum um
landið í sumar.
Þessa dagana eru að hefjast sýn-
ingar á nýrri sjónvarpsauglýs-
ingu á vegum Umferðarstofu. I
kjölfarið munu fylgjaauglýsingar
í prentmiðlum og á opinberum
auglýsingaskiltum. Stuðst er við
norskar auglýsingar sem vega-
gerðin þar í landi lét gera og fékk
Umferðarstofa leyfi hjá þeim til
að útfæra hugmyndina fyrir ís-
lenskar aðstæður.
Algeng orsök banaslysa
25% þeirra sem fórust í umferð-
inni árið 2005, og voru ökumenn
eðafarþegaríbifreiðum, reyndust
ekki hafa verið í bílbeltum. Þetta
er mun hærra hlutfall en fjöldi
þeirra sem almennt nota ekki bíl-
belti í umferðinni. 1 rannsóknum
sem gerðar hafa verið m.a. á
vegum Umferðarstofu kemur í
ljós að úti á þjóðvegum landsins
reyndust 8% ökumanna ekki
vera með bílbelti og 16% aftursæt-
isfarþega. Því er ljóst að líkurnar
á því að slasast alvarlega eða láta
lífið í umferðinni eru margfalt
meiri meðal þeirra sem ekki nota
bílbelti. í auglýsingunum er því
lögð áhersla á notkun bílbelta
hvort sem um er að ræða farþega
eða ökumann.
2,51 boxer-
vél Subaru
hlýtur alþjóð-
leg verðlaun
Framleiðandi Subaru-bifreiða til-
kynnti fyrir skömmu að 2,5 lítra
lárétt liggjandi boxervél þeirra
hefði hlotið alþjóðleg verðlaun
sem vél árins í flokki 2-2,5 lítra
bílvéla. Verðlaunaafhendingin
fór fram á sýningunni Engine
Expo í Stuttgart í Þýskalandi á
dögunum. Þessi verðlaunavél er
notuð í bifreiðum af gerðinni Su-
baru Impreza og Subaru Forester
sem nú eru á markaði í Evrópu,
Norður-Ameríku og Ástralíu.
Einnig knýr hún Saab 9-2X, sem
seldur er í Norður-Ameríku sam-
kvæmt samningi við Saab. Þetta
er í fyrsta sinn sem lárétt liggjandi
bílvél hlýtur þessi mikil metnu
. verðlaun sem veitt eru á hverju ári.
Dómnefndin var skipuð 61 blaða-
manni frá 28 löndum. Þeir áttu
vandasamt starf fyrir höndum
en þeir einblíndu einkum á akst-
urseiginleika, lipurð, sparneytni
og mýkt þeirra véla sem komu
til greina. Dómnefndin valdi
svo bestu vélarnar í átta stærð-
arflokkum. Verðlaunavélin frá
Subaru hefur notið mikillar hylli
og er það einkum kraftur hennar
og sparneytni sem heilla hagsýna
bílakaupendur. Einnig hefur tek-
ist að draga töluvert úr mengun í
útblæstri en á þessum síðustu og
verstu hlýtur það að teljast mikill
kostur.