blaðið - 06.06.2006, Síða 18
26 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöiö
Brjóstagjöf með
aðstoð hómópatíu
Ofnœmi
Börn sem hœtta snemma á brjósti eru líklegri til aðfá ofnœmi.
-seinni hluti
í pistlinum í dag mun ég halda
áfram þar sem frá var horfið í
síðustu viku en þar fjallaði ég um
hvernig hómópatíulausnir geta
oft reynst vel þegar vandamál
koma upp við brjóstagjafir.
Það skal lögð á það áhersla að neð-
angreint er lagt fram sem tillögur til
að sýna fram á hvernig er hægt að
nálgast hómópatíu.
Sárar og sprungnar geirvörtur
Farið varlega með öll krem, sápur
og þvottaefni sem geta valdið
ofnæmi.
Berið Calendulu- eða Rescue Re-
medíu krem á svæðið.
Leyfið lofti og sól að leika um geir-
vörturnar eins mikið og hægt er.
Geirvörtur sem eru aumar,
sprungnar og mjög viðkvæmar,
verða fljótt sárar ef ekkert er að
gert.
Chamomilla: Geirvörtur bólgnar
og afar viðkvæmar.
Sepia: Sprungur eru djúpar
og sárar og geta verið þvert yfir
geirvörtuna.
Silica: Innfallnar geirvörtur sem
eru sprungnar, aumar og blæðandi.
Sulphur: Þurrar sprungur með
stingandi, brennandi verkjum.
Yfirlit yfir hvað remedíurnar gera
í. Belladonna, Bell: Brjóst þrútin,
rauð, hörð, heit, bólgin, með
slætti í og sársauka, sérstak-
lega hægra brjóstið. Of mikil
mjólkurframleiðsla.
2. Bryonia, Bry: Eins og Belladonna
en brjóstin eru föl og verri við
hreyfingu. Brjóstabólga.
3. Calcarea Carbonica, Calc-c: Brjóst
virðast vera full og eru aum
en það kemur litil mjólk eða of
mikil og gæðin eru léleg. Móð-
irin getur verið viðkvæm, hrædd
og hefur tilhneigingu til að fá
kaldan svita.
4. Castor Equi: Aumar/sprungnar
geirvörtur og geta orðið sárar.
Brjóstið getur orðið þrútið og
ldáði í húð.
BYLGJA
SVARARSPURNINGUM
UMÓHEFÐBUNDNAR
LÆKNINGAR b ¥
5. Ignatia, Ign: Þunglyndi, samvisku-
bit, vonbrigði eða sorg, sérstak-
lega þegar allt gengur ekki eins
og óskað er eftir.
6. Phytolacca: Brjóstin geta verið
bólgin, hnúðótt og það koma
verkir þegar barnið er lagt á
brjóst. Geirvörtur sprungnar og
aumar og verkur fer um allan lík-
amann. Einnig gegn sýkingu og
kýlum.
7. Pulsatilla, Puls: Lítil mjólk og
þunn hjá mildum, grátgjörnum
konum eða of mikil en breytileg
eins og tilfinningar þeirra. Pulsa-
tilla hjálpar til við að koma jafn-
vægi á hormónakerfið.
8. Urtica Urens, Urt-u: Þegar mjólkin
er of lítil eða mikil og engin skýr-
ing er á því.
Venjulega tekur móðirin inn remed-
íur og fær þvi barnið remedíuna
í gegnum brjóstamjólkina, en
stundum fær þó barnið remedíur
i fljótandi formi. Best er að tala
við hómópata og fá ráðleggingar
um hvernig heppilegast er að
haga þessu.
Hómópatía hefur líka reynst mjög
vel fyrir þá sem vilja eignast börn,
á sjálfri meðgöngunni, í fæðing-
unni og eftir fæðinguna.
Hvar finnur þú hómópata? Auð-
veldasta leiðin er að fara á www.
homopatar.is.
Kveðja
Bylgja
Þegar fólk fær ofnæmi fyrir
einhverju þá birtast oft óþægileg,
óæskileg og stundum hættuleg
viðbrögð ónæmiskerfisins. í dag-
legu tali er vanalega átt við óþol
þegar talað er um ofnæmi og þá
er oft um að ræða óþol gegn t.d.
fæðutegundum, frjókornum eða
dýrum.
Oftast eru ofnæmisviðbrögð
fremur hvimleið, en þau geta hrein-
lega líka verið hættuleg, til dæmis
þegar fólk hefur ofnæmi fyrir bý-
flugnastungum eða lyfjum. Þá getur
orðið mjög víðtæk svörun sem lýsir
sér með skyndilegri útvíkkun æða
og lífshættulegu blóðþrýstingsfalli.
I langdregnu ofnæmi er oftast um
að ræða svörun annars hluta ónæm-
iskerfisins, svokallaðra T-eitilfruma.
Þær gefa ekki frá sér mótefni en
framleiða ýmis efni sem valda bólgu-
einkennum. Þess háttar ofnæmi er
algengt til dæmis gegn málmum,
þegar fólk fær bólgur og útbrot
undan t.d. skartgripum. Fólk hefur
hins vegar aldrei ofnæmi fyrir ein-
hverju sem það hefur aldrei komist
í snertingu við. Fyrst þarf það að ger-
ast og síðan hefur kerfið minni sem
getur enst ævilangt.
Ættgengt
Tilhneigingin til að fá ofnæmi getur
verið ættgeng. Sumt fólk hefur meiri
tilhneigingu til að ræsa þær frumur
sem framleiða mótefni en hjá öðrum
ræsast frekar T-eitilfrumur sem valda
svo bólgueinkennum. Þessi munur
getur til dæmis komið fram í mismun-
andi sjúkdómsmynd þótt sýkillinn sé
sá sami. Umhverfið getur einnig haft
áhrif á ofnæmistilhneigingu og ung-
börnum er hollast að fá móðurmjólk
sem lengst þar sem ofnæmisviðbrögð
eru yfirleitt tíðari hjá börnum sem
byrja snemma að drekka kúamjólk
og neita annarra mjólkurafurða.
Tilbodsdagar
20% afsláttur
Rafstillanleg rúnn með
9 svæða pokafjaórakerfi
frá kr. 148.800.-
c
rúmco
Langholtsvegi 111,104 Rvk. Sími 568 7900 • Opið virka daga 11-18
smaauglysingar@bladid.net
sími: 510 3737
blaðiö=