blaðið - 06.06.2006, Side 19
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006
GOLF I 27
Ekki bara fyrir karla
Golf er orðin mjög vinsæl íþrótt á
íslandi og heillar unga sem aldna.
Þetta er ekki bara karlasport
heldur er mikilvægt að börnin fái
að vera með vegna þess að þetta
er fjölskylduíþrótt og allir geta
verið saman á golfvellinum. Það
þarf að gera börnunum spenn-
andi tilboð og bjóða þeim með á
út völl,“ segir Ragnhildur Sigurð-
ardóttir, íþróttamaður Reykja-
víkur og margfaldur fslandsmeist-
ari í golfi.
Margir bíða spenntir eftir sumr-
inu því þá geta menn, konur og börn
spreytt sig á vellinum. Það hefur
færst í vöxt að fólk standi tímunum
saman á köldum vetrardögum og æfi
sveifluna. „Það þarf ekki annað en
að kíkja í heimsókn í Bása um kvöld-
matarleytið til að átta sig á því, þar
er yfirleitt allt fullt út úr dyrum og
bílastæðin full,“ segir Ragnhildur.
Kurteist og vel siðað fólk
„Golfnámskeið fyrir börn og ung-
linga eru mjög vinsæl og mætti
vera meira framboð á þeim. Flestir
golfklúbbar bjóða upp á námskeið
og það er mjög gott fyrir börn sem
og alla nýliða að koma sér þannig
af stað og læra undirstöðuatriðin.
Á námskeiðunum læra börnin þær
siðareglur, aga og kurteisi sem nauð-
synleg er til að geta stundað golfið
sitt árekstralaust. Börn og unglingar
sem hafa lært og stundað golf eru
yfirleitt kurteisin uppmáluðsegir
Ragnhildur.
Igolfskólanum læra börnin margt
fleira en kurteisi og góða siði. Á nám-
skeiðunum er farið í leiki og ýmis-
legt skemtilegt brallað. „Ég kenndi á
golfnámskeiðum í mörg ár hjá Golf-
klúbbi Reykjavíkur og einnig úti á
Nesi. Einnig er orðið ansi algengt að
fjölskyldur, stórar sem smáar, komi
saman í tíma. Golf hefur góð áhrif á
hreyfiþroska og sérstaklega samhæf-
inguna. Svo er það auðvitað útiveran
„Golfið er mikil áskorun
og það er meðal ann-
ars þess vegna sem
mér finnst það svona
skemmtileg íþrótt,
sem gerir öllum gott. Allir geta verið
með því forgjöfin jafnar út getumun
og sá sem er að byrja getur unnið
þann sem lengra er kominn. Engum
ætti því að finnast hann utanveltu,“
segir Ragnhildur sem sjálf byrjaði í
golfi 13 ára.
,,Maður verður alveg vitlaus"
.Golfið er mikil áskorun og það er
meðal annars þess vegna sem mér
finnst það svona skemmtileg íþrótt,
maður verður alveg vitlaus þegar
keppnisskapið kemur upp í manni.
Svo er það líka samveran við aðra,
hvort sem þeir eru ungir eða gamlir,
góðir kylfingar eða nýliðar. Golf er
líka mjög fjölbreytt íþrótt, það er eng-
inn dagur eins og enginn hringur
eins. Þú ert engum háður og getur
farið þegar þér hentar, einn eða með
öðrum. Þú skráir þig einfaldlega í
rástíma og getur lent með hverjum
sem er. Maður kynnist alltaf nýju og
nýju fólki sem er mjög skemmtilegt,“
segir Ragnhildur.
Klár í sumarið
„Keppnistímabilið er að byrja og nú
er ég að fara að snúa mér að því. Ég
er búin að vera að kenna mjög mikið
undanfarið en nú eru stífar æfingar
framundan svo ég verði klár í mót
sumarsins,“ segir Ragnhildur.
kristin@bladid.net
Hvað þarf að vita og eiga
til að byrja að spila golf?
Til þess að vera klár á golfvöllinn
er mikilvægt að hafa nokkur und-
irstöðuatriði á hreinu. Það eru
ákveðnar reglur, bæði skráðar og
óskráðar, sem gilda á öllum golf-
völlum og mikilvægt er að virða
þær.
Bannað að vera ber að ofan
Margar sérstakar reglur gilda á
golfvöllum og almennt í golfíþrótt-
inni. Þetta eru reglur sem vönum
golfurum finnast mjög eðlilegar en
koma byrjendum ef til vill spánskt
fyrir sjónir. Til dæmis er bannað
að vera í gallabuxum á golfvöllum
og strangar reglur gilda á flestum
völlum um klæðaburð. Inni á golf-
völlum er bannað að tala í gsm-síma
og það er illa séð ef menn eru berir
að ofan, þó að veður sé mjög gott.
Það er góð regla að tala ekki á meðan
verið er að slá boltann og sá sem er
lengst frá gríni slær alltaf fyrstur.
Þetta eru almennar virðingarreglur
sem mjög mikilvægt er að kunna og
það eru mjög margar slíkar. Mikil-
vægt er að kynna sér þetta áður en
á völlinn er haldið.
Útbúnaður
Að sjálfsögðu er mikilvægt að hafa
golfkylfur. Það er þó ekki nauðsyn-
Börn i golfið
-Nokkur góð ráð frá Ragnhildi Sig-
urðardóttur fyrir foreldra til þess að
fá börnin með sér í golf:
• Bjóðið þeim með á völlinn og
gerið þeim spennandi tilboð:
„Viltu koma með mér upp á golf-
völl og læra að spila golf eins og
Tiger Woods?“
• Ef þau vilja ekki fara með,
skaltu ekki neyða þau. Áhug-
inn er nauðsynlegur viljirðu
að þau eigi framtíð með þér á
vellinum.
• Ef þau fara með skaltu reyna
að gera dvölina skemmtilega.
Passaðu að þau hafi nóg að
drekka og nóg að sýsla. Game
boy leikjatölva getur t.d. stytt
stundir milli stríða á æfinga-
svæðinu, sé hún til á heimilinu.
Veðurfar á Islandi getur líka
sett strik í reikninginn. Pass-
aðu þig að gríslingunum verði
ekki kalt eða þau verði neikvæð
vegna veðursins, þá er ekki víst
að þau vilji koma með ykkur
næst.
• Lofaðuþeimaðslánokkrabolta
á æfingasvæðinu en passaðu
þig á því að tía upp alla bolta.
Passaðu þig á því að halda heim
á leið áður en smáfólkið hefur
fengið nóg.
• Gættu að því að viðfangsefnin
séu við hæfi, láttu þau pútta
stutt pútt á æfingaflötinni,
pútt sem þau eiga auðvelt
með að setja niður, hrósaðu
þeim. Gættu að því að þau leiki
stuttar holur, spili t.d. frá 100
m hælnum. Taktu stubbinn á
háhest ef hann verður þreyttur.
• Það gæti verið sniðugt að bjóða
vini eða vinkonu smáfólksins
með, góður félagsskapur og
sameiginlegar ánægjustundir
eru öflugt hjálpartæki í
áhugamótuninni.
• Flestir krakkar eiga auðvelt
með að ná hreyfingunum strax
og geta sveiflað mjúkt og átaka-
laust. Ekki leiðrétta of mikið,
lofið þeim að leika sér.
• Leggið ríka áherslu á öryggi og
siðareglur, en ekki vera of smá-
munasöm þannig að reglurnar
verði ekki yfirþyrmandi.
• Ef þeim finnst gaman, skráið
þau á námskeið. Ekki er verra
að viðkomandi golfkennari
hafi gaman af því að umgang-
ast börn.
• Keyptu 5/7 tré, wedge 7 járn
og pútter. Ekki nota styttar
kylfur, sköftin eru of stíf fyrir
börn, enda er mikið úrval til af
góðum barnakylfum og verðið
lækkar með hverju árinu sem
líður.
• Öryggisatriði skipta miklu
máli og það er mikilvægt að
kynna börnunum þau vel.
Kveðja Ragnhildur Sigurðardóttir
legt að byrja með heilt sett og
hægt er að fá hálf-sett sem
eru góð til þess að nota
fyrst um sinn. Golf-
kúlur eru vitanlega
einnig nauðsyn-
legar en það er
hægt að fá kúlur
á flestum æf-
ingasvæðum
í þartil-
gerðum sjálf-
sölum. Það
er einnig
gott að hafa
með sér tí
en á það
er kúlunni
stillt upp í
upphafshögg- inu.
Gott er að eiga s é r -
staka golfskó sem eru með tökkum
á botninum og gera að verkum að
maður stendur vel í fæturna og
heldur betra jafnvægi. Til þess að
fá gott grip um kylfuna eru margir
sem nota sérstaka hanska en þá
rennur kylfan síður til í höndum
golfarans.
Orðabók
golfarans
Mörg skrítin og
skemmtileg orð eru í
orðabók golfarans. Fugl
er til dæmis eitt högg
undir pari á holu en
skolli eitt högg yfir pari á
holu. Örn er svo tvö högg
undir pari á holu. Bönkari,
glompa eða sandglompa
eru svæði eða reitur
með sandi í til að gera
leikinn erfiðari. Par
er sá fjöldi högga
sem góður kylf-
ingur u á að leika hverja
h 0 1 u eða allan völl-
inn á. Óræktað svæði utan
brautar er kallað kargi og lúði
er næsta svæði við % braut, sem
er hálfslegið, milli brautar og
karga. Teigur er reiturinn þar sem
upphafshöggið á hverri braut er
slegið. Mörg fleiri skemmtileg orð
og orðatiltæki eru notuð sem vanir
golfarar slá um sig með en þetta lær-
ist fljótt.
kristin@bladid. net