blaðið - 06.06.2006, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaðiö
30 i
Hugþrautin
Hugþrautin er vikulegur liður á íþróttasíðu
Blaðsins. Tveir menn úr íþróttaheiminum
mœtast í spurningaeinvígi og tengjast allar
spurningarnar íþróttum á einn eða annan
hátt. Reglurnar eru einfaldar: keppendurnir
fá sömu 16 spurningarnar og sá sem hefur
fleiri rétt svör heldur áfram en sá sem tapar
fcer að velja nœsta andstœðing sigurvegarans.
Takist einhverjum að sigrafimm keppnir í röð
verður hann krýndur Hugþrautarmeistari og
fœr að launum veglegan verðlaunagrip.
Gunnar Jarl Jónsson
Knattspyrnumaður úr Leikni
1. Hver stjórnaði enska landslið-
inu á HM í Frakklandi 1998?
G: Glenn Hoddle.
S: Kevin Keegan.
2. Með hvaða félagsliði leikur
Shaka Hislop, markvörður
landsliðsTrínidad ogTóbagó?
G: West Ham.
S: West Ham.
3. Hver er markahæsti leik-
maður HM frá upphafi, með
14mörk?
G: Gerd Miiller.
S: Ronaldo.
4. Hvaða Afríkuþjóð er í riðli
með Spáni, Úkraínu og Sádí-
Arabíu á HM í sumar?
G: Tógó.
S: Túnis.
Sigurbjörn Hreiðarsson
Knattspyrnumaður úr Val
5. Hvaða þjóð sigraði HM árin
1934 og 1938?
G: ítalía.
S: Það voru mínir menn ítalir.
6. Hvaða maður hefur unnið
það einstæða afrek að þjáifa
fimm mismunandi landslið á
HM, áárunuml 986 - 2002?
G: Boro Milutinovic.
S: Pass.
7. Fyrir hvaða þjóð leikur Em-
manuel Adebayor, leikmaður
Arsenal, á HM í sumar?
G: Fílabeinsströndina.
S: Tógó.
8. Hvaða Þjóðverji hefur leikið
fleiri leiki á HM en nokkur
annar leikmaður, alls 25
talsins?
G: Það er góðvinur minn Lot-
har Matthaus.
S: Thomas Hássler.
32" (81 cm) 16:9 LCD sjónvarp
Gler framhlið (hlrfir skjá, betri mynd)
1366x768 punlctar
Birta: 550 cd/m2, skerpa: 1000:1
PIP (mynd í mynd)
Innbyggðir 2x7W stereo hátalarar
Stærð 825mm (B) x 525mm (H) x 115mm (D)
Þyngd: 18,5 kg 2ja ára neytendaábyrgð
Verð 21 9.900f“
Hantarex 42" XP2 Plasma TV
42" (106 cm) 16:9 Plasma sjónvarp
852x480 punktar
Birta: 1500 cd/m2
Skerpa: 1000:1
PIP (mynd í mynd)
Innbyggðir 2x7W stereo hátalarar
Stærð 1046mm (B) x 683mm (H) x 85mm (D)
Þyngd: 32 kg
2ja ára neytendaábyrgð
Verð
209.900,-
9. Hvaða ár komst England síð-
ast í undanúrslit HM?
G: Það er væntanlega 1990.
S: 1990.
10. Hvaða Evrópubúi er landsliðs-
þjálfari Suður-Kóreu?
G: Dick Advocaat.
S: Dick Advocaat.
11. Hvaða þjóð sigraði Tyrkland,
bronsverðlaunahafa mótsins
2002, í umspili um sæti á HM
í sumar?
G: Sviss.
S: Það voru Svissararnir.
12. Hvaða tvær þjóðir frá Suður-
Ameríku, auk Brasilíu og Arg-
entínu, leika á HM í sumar?
G: Paragvæ og Ekvador.
S: Paragvæ og Ekvador.
13. Ronaldo varð markahæstur
á HM 2002 með átta mörk
en tveir leikmenn höfnuðu
íöðru sæti með fimm mörk.
Nefnið annan þeirra?
G: Miroslav Klose.
S: Klose.
14. Hvaða þjóð hafnaði í þriðja
sæti á HM í Bandaríkjunum
1994?
G: Svíar.
S: Sviþjóð.
15. Hvaða þrír leikmenn
Liverpool eru í spænska lands-
liðshópnum fyrir HM í sumar?
G: Reina, Garcia og Alonso.
S: Alonso, Garcia og Reina.
16. Hvaða félagslið leikur á
Gottlieb-Daimler leikvang-
inum, hvar leikurinn um
þriðja sætið á HM í sumar fer
fram?
G: Stuttgart.
S: Ég ætla að skjóta
á Dortmund.
Rétt svör:
1. Glenn Hoddle.
2. West Ham.
3. Gerd Miiller.
4. Túnis.
5. Italía.
6. Bora Milutinovic.
7. Tógó.
8. Lothar Mattháus.
9. 1990.
10. Dick Advocaat.
11. Sviss.
12. Paragvæ og Ekvador.
13. Rivaldo og Miroslav Klose.
14. Svfþjóð.
15. JoseReina,LuisGarciaogXabiAlonso.
16. Stuttgart.
Gunnar er óstöðvandi
Hugþrautarljónið sigrar Sigurbjörn 14-11.
HANTAREX
fynr betri stofuna
Það er til lausn á öllu
www.ejs.ts // Grensásvegi 10, Reykjavík / 563 3000 // Tryggvabraut 10, Akureyri / 463 3000
EJSI
„Það er mjög gaman að ná að leggja
Bjössa að velli. Hann er sterkur og
góður andstæðingur/ sagði Gunnar
eftir að úrslit lágu fyrir. „Ég fór í
sjúkraþjálfun í gær til sameiginlegs
sjúkraþjálfara Vals og Leiknis, en
hann er góður vinur Sigurbjörns.
Hann sagði mér að Sigurbjörn hefði
legið yfir HM-bókum undanfarna
viku, þannig að ég get ekki verið
annað en sáttur með að hafa náð að
vinna hann.“
Gunnar hefur nú sigrað þrjár hug-
þrautir og virðist fátt geta komið í veg
fyrir að hann fari alla leið og verði
fyrsti Hugþrautarmeistari Blaðsins.
Aðspurður hvaðan þekkingin komi
svarar Gunnar í léttum tón: „Ætli
ég hafi ekki bara haft lítið að gera í
æsku,“ en bætir við að hann hafi alla
tíð fylgst vel með íþróttum og þá
sérstaldega fótbolta. „En ég hef líka
verið heppinn með spurningar.“
Klikkaði á Hoddle og Mattháus
Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals-
manna, átti ágætan leik en frammi-
staða hans dugði þó ekki til að steypa
hinu geysiefnilega hugþrautarljóni
af stóli. Sigurbjörn kvaðst nokkuð
sáttur með frammistöðu sína. „Ég
klikkaði á ákveðnum atriðum sem
ég hefði átt að taka. Það var til dæmis
aulaskapur að taka ekki spurning-
arnar um Hoddle og Mattháus. En
þetta var ágætt. Ef við hefðum farið
meira út í söguna hefði ég eflaust náð
að gera betur,“ sagði Sigurbjörn. „En
það er bara gaman að þessu. Hann
er greinilega alveg með þetta,“ bætti
hann við og átti við andstæðing sinn.
Sigurbjörn skoraði á Hjörvar Haf-
liðason, markvörð Breiðabliks, að
mæta Gunnari í næstu viku og tók
Hjörvar áskoruninni að sjálfsögðu.
Hjörvar þykir fróður mjög um
íþróttir og verður fróðlegt að sjá
hvort hann nær að skáka Gunnari
sem virðist nær ósigrandi.