blaðið - 06.06.2006, Qupperneq 24
32 I MEWWIWG
ÞRIÐJUDAGUR 06. JÚNÍ 2006 blaöiö
lan Rankin.„Nokkrum vikum seinna hrasaði hann, skall á höfuðið og dó rétt fyrir utan eftirlætiskrána mína. Þar var bölvun Rebusar að
verki. Þeir sem gagnrýna bækur mínar verða að gæta sín."
Bölvun Rebusar
,Ég vil skrifa sögur um þjóðfé-
lagsmál og vandamálin sem
blasa við heiminum í dag. Allt
rúmast í glæpasögu. Þar er til
dæmis hægt að fjalla um spilltar
ríkisstjórnir, eiturlyfjavandamál
og kynþáttahatur. Þess vegna
valdi ég mér þann vettvang,"
segir skoski rithöfundurinn Ian
Rankin sem var staddur hér á
landi á dögunum í boði Pennans
Eymundssonar. Rankin nýtur
gríðarlegra vinsælda víða um
heim fyrir bækur sínar um Re-
bus lögregluforingja en nokkrar
þeirra hafa komið út í íslenskri
þýðingu.
Rebus er svo vinsæll í heimalandi
sínu Skotlandi að hann hefur komið
til umræðu í skoska þinginu. „Einn
aðdáandi bóka minna er skosk þing-
kona,“ segir Rankin. „Hún hafði
áhyggjur af því að söguhetja mín,
Rebus, sem er 58 ára gamall, er að
nálgast eftirlaunaaldur en í Skot-
landi verða rannsóknarlögreglu-
menn að láta af störfum við setugs-
aldur. Hún lagði fram fyrispurn á
þinginu um það hvort hægt væri að
hækka eftirlaunaaldur rannsókn-
arlögreglumanna í Edinborg svo
tilbúin söguhetja mín gæti haldið
áfram störfum. Dómsmálaráðherr-
ann svaraði því til að ekki væri
möguleiki að Sreyta reglunni vegna
hagsmuna skáldsagnapersónu. Mér
fannst þetta skemmtilegt."
Enn eins og hellisbúar
Rankin segist vera ósammála því
viðhorfi að glæpasögur séu einungis
afþreying og verði ekki flokkaðar
til fagurbókmennta. „Sumar glæpa-
sögur byggja eingöngu á ráðgátu
sem á að leysa og þegar því er lokið
hefur sagan ekkert meira að segja
lesendum sínum. En í mörgum
löndum, þar á meðal Bretlandi,
fjallar glæpasagan um raunveru-
legan heim og þau vandamál sem
blasa við. Margar þessara bóka eru
pólitískar i eðli sínu. Þar er fjallað
um þjóðfélagsmál og varpað fram
siðferðilegum spurningum um
kynþáttahatur, stjórnmálaástand,
atvinnuleysi, eiturlyfjavanda og
vændi. Svokölluð bókmenntaverk
fjalla ekki ætíð um þessa hluti. Bók-
menntalega skáldsagan í Bretlandi
fjallar yfirleitt um einn einstakling
og líf hans meðan góð glæpasaga
fjallar um allt þjóðfélagið.“
Heldurðu að allir einstaklingar
geti framið morð?
„Já, ég held að allir geti framið
morð við vissar aðstæður Ef ein-
hver brýst inn í húsið þitt og ógnar
maka þínum eða börnum þá drep-
urðu bann. Á yfirborðinu erum
við siðfáguð en undir yfirborðinu
höfum við einungis komist einu eða
tveimur skrefum frá hellinum. Við
erum enn eins og hellisbúarnir.
Ég gerði eitt sinn heimildarmynd
um illsku. Þar tók ég viðtöl við morð-
ingja og fólk sem sat á dauðadeildum
í Ameríku. Mér virtist þetta ekki
vera vont fólk en það hafði framið
illvirki. Fólk iðrast, fólk breytist.
Ég skrifa ekki um raðmorðingja og
skrímsli heldur fólk sem lendir í að-
stæðum sem það hefur ekki stjórn á.
Við gerð myndarinnar tók ég
viðtal við dauðadæmdan fanga í
Texas. Hann hafði verið á dauða-
deild í fimmtán ár. Á hverjum degi
í fimmtán ár hugsaði hann: „1 dag
getur verið að ég verði tekinn af lífi“.
Hann hafði verið eiturlyfjaneytandi
í glæpaklíku og braust inn í bús og
drap mann vegna peninga. 1 fangelsi
lærði hann að tefla og fór að yrkja
ljóð og mála myndir. Hann sagði mér
að fangelsið hefði bjargað lífi hans.
Hann sagði að ef hann hefði haldið
áfram því lífi sem hann lifði hefði
hann verið dauður eftir sex mánuði.
Einhver í glæpagenginu hefði skotið
hann eða hann hefði verið stunginn
til bana í slagsmálum. Hann vildi
ekki deyja. Hann vildi lifa en í Am-
eríku eru menn teknir af lífi fyrir
glæpi."
Endalok Rebusar
Rankin skrifar venjulega eina bók
á ári. Þegar hann er spurður hvort
því fylgi ekki mikið álag segir hann:
,Á þeim árum sem mér gekk ekkert
of vel skrifaði ég tvær bækur á ári
vegna þess að ég þarfnaðist pening-
anna. Þegar maður er með sömu
aðalpersónu í bókum sínum þá krefj-
ast lesendur þess að fá eina bók á ári.
Það er mjög erfitt að þurfa að standa
undir því. Ég vinn mikla heimildar-
vinnu fyrir hverja bók og hún tekur
kannski hálft ár. Lögreglumenn lesa
bækur mínar og smáátriðin varð-
andi lögregluna verða að vera rétt
og stjórnmálamenn lesa líka bækur
mínar og þar verð ég líka hafa smá-
atriðin rétt.“
Ertu ekki hrœddur við að endur-
taka þig?
„Meðan raunveruleikinn sér mér
fyrir sögum þá mun ég ekki endur-
taka mig. En þú verður að athuga að
ég á bara eftir að skrifa tvær bækur
um Rebus.“
Ertu harðákveðinn í því að þœr
verði ekkifleiri?
„Ég er nokkuð viss. Ég skrifaði
fyrstu bókina fyrir tuttugu árum
þá var hann fertugur. Nú er hann að
nálgast sextugsaldur. Hann verður
að fara á eftirlaun.“
En þú cetlar ekki að láta hann
deyja í lokin?
„Nei, ég held ekki. Ég spurði Colin
Dexter, höfund bókanna um Morse
lögreglufulltrúa af hverju hann
hefði látið Morse deyja í síðustu bók-
inni. Hann sagði að það væri vegna
þess að annars hefðu aðdáendurnir
sífellt beðið um nýja bók. Nei, ég
held að ég muni ekki drepa hann.
En þegar ég skrifa síðustu síðuna í
síðustu bókinni þá er aldrei að vita
hvað ég geri ef ég verð í vondu skapi
þann daginn.“
Neikvæð sýn Rebusar
Ertu nógu góður við þessa sögu-
hetju þína. Viltu að Rebus sé
óhamingjusamur?
„Það er í eðli hans að vera óham-
ingjusamur. Skotar eru bölsýnis-
menn með kalhæðnislegan húmor.
Svo er Rebus ekki í starfi þar sem
hann á samskipti við hamingjusamt
fólk. Hann á samskipti við afbrota-
menn, fórnalömb og fjölskyldur
fórnarlamba og afbrotamanna. Þess
vegna er sýn hans í lífið mjög nei-
kvæð. Hann býr í einni fallegustu
borg í Evrópu en hann kemur ekki
auga á það. Hann sér hana bara sem
vettvang glæpa.“
Fcerðu alltaf góða gagnrýni?
„Nei, ekki alltaf. Fyrsti skoski for-
sætisráðherrann gagnrýndi eina af
bókum mínum í útvarpi og var ekki
ýkja hrifinn. Hún fjallaði um stjórn-
mál þess tíma og honum fannst hún
of melódramatísk. Nokkrum vikum
seinna hrasaði hann, skall á höfuðið
og dó rétt fyrir utan eftirlætiskrána
mína. Þar var bölvun Rebusar að
verki. Þeir sem gagnrýna bækur
mínar verða að gæta sín.
Það einkennilega við að vera rit-
höfundur er að maður man ekki já-
kvæðu gagnrýnina, bara þá slæmu.
Og jafnvel þótt dómur sé jákvæður
þá er kannski ein setning í honum
sem er neikvæð og það er hún sem
maður man.“
I leit að hugmyndum
Ég las fyrir ekki löngu í bresku
blaði að þú teldir að vinkona þin,
J.K. Rowling, höfundur Harry
Potter bókanna, myndi skrifa
sakamálasögu þegar hún hafði
lokið við bókaflokkinn um Potte.
Hvernig bók heldurðu að það
myndi verða?
„Rowling er mikill aðdáandi
sakamálasagna og hún sagði mér
að þegar hún væri búin að skrifa
síðustu Harry Potter bókina lang-
aði hana til að skrifa glæpasögu.
Ég held að hún gæti skrifað góða
glæpasögu.
Nágrannarnir kalla götuna sem
ég bý við Writer’s Block því þar
bý ég, J.K. Rowling og Alexander
McCall Smith. Við þrjú höfum ekki
hist en við höfum hist sitt í hvoru
lagi. Ég sé mikið af McCall því við
drekkum viskí saman. Síðast þegar
ég sá Roweling var hún með barna-
vagn á leið í stórmarkaðinn. Hún er
vinsælasti höfundur í heimi en með
henni var enginn aðstoðarmaður og
engir lífverðuir. Bara hún og barnið.
Mér fannst það flott.“
Hvað tekur við þegarþú ert búinn
að skrifa síðustu Rebus bókina?
„Ég veit ekki hvað ég geri þá. Ég
var að ljúka við næstsíðustu Rebus
bókina. Ég veit ekki einu sinni um
hvað síðasta Rebusbókin verður. Ég
fer að hugsa um hana í júlí og byrja
vonandi að skrifa hana í nóvember.
Núna er ég í leit að hugmyndum."
kolbrun@bladid.net
SU DOKU talnaþrautir
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
6 8 2 7
7 6 2
4 1 6 8 3
4 1 2 3
6 3 4 1
8 5
1 8 7 9 5
3 8 2 5 6
4
Lausn siðustu gátu
7 3 2 6 9 4 8 1 5
4 8 1 7 3 5 2 6 9
5 6 9 8 1 2 4 7 3
8 1 5 9 7 6 3 2 4
2 7 3 1 4 8 5 9 6
9 4 6 2 5 3 7 8 1
1 9 4 3 8 7 6 5 2
6 5 7 4 2 1 9 3 8
3 2 8 5 6 9 1 4 7