blaðið - 17.06.2006, Page 25
blaðið LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006
TÍLVERAN I 25
Hœ hó jibbý jei!
i
Það er engum ofsögum sagt að þegar hátíð eins og i7.júní knýr
á dyr fyllumst við íslendingar aukinni gleðiorku og viljum
taka á rás í skemmtanalífinu. Yfirleitt eru hinar ýmsu veigar
hafðar um hönd og ósjaldan fyllist ísskápur þeirra hörðustu
af ýmsu gúmmelaði - yfirleitt í formi lítratals drykkjar-
fanga. Ég hef reyndar aldrei skilið þessa drykkjusiði okkar
íslendinga þegar kemur að því að fagna þjóðhátíðardeginum
i7.júní. Ég er auðvitað ekki að setja á mig englamynd og segja
að dagurinn sé eins heilagur og sjálfur aðfangadagurinn, en
engu að síður er þetta virðingaverður dagur sem gaman er
að upplifa án þess að vera með hangandi haus.
Reyndar verður að taka það fram að berserksgangurinn er
sérstaklega bundinn við unglinga, sem flestir iða í skinninu
þegar líða tekur á júnímánuð og fara að leggja drög að áfeng-
iskaupum, eða kaupum á hinum miður skemmtilega drykk
„landa“, eins og mér skilst að algengt sé. Ég þakka allavega
mínum sæla fyrir að vera ekki nokkrum árum eldri og komin
með ungling sem tekur af mér geðheilsuna þetta kvöld. Ég
man þá daga að maður skundaði í bæinn á i7.júní ásamt kunn-
ingjunum eftir harkalegt rifrildi við foreldrana um
útivistartímann. 1 öllu óðagotinu vorum við vinkon-
urnar orðnar svo pirraðar á ofverndun foreldranna
(og eftir eigin tilfinningu knúnar til einhverrar
stórfenglegrar uppreisnar gegn tvíeykinu) að oft
varð Bakkus á endanum sá sem réð úrslitum það
kvöldið. Allskyns látalæti gerðu vart við sig, sem
látið verður liggja milli hluta í bili, og litlu sætu
stelpurnar voru allt í einu ekki eins sætar...
En upphlaup á hátíðisdögum eru einmitt svo-
lítið einkennandi hjá mörgum Islendingnum. Það
kemur gamlárskvöld, verslunarmannahelgi eða
þjóðhátiðardagur og allir hlaupa upp til handa
og fóta eins og enginn sé morgundagurinn. Við
ætlum okkur að mála bæinn svo yfirgengilega
rauðan að afraksturinn verður þéttsetin sjúkrahús,
uppfullar fangageymslur og óbilandi timburmenn.
Hvort það er svona hrikalega leiðinlegt hérna
ef ekki væri fyrir þessa hátíðisdaga veit ég ekki, en
.
einhverra hluta vegna skundum við öll í
ÁTVR, setjum í fimmta gírinn og spenn-
umst upp eins og smákrakkar í nammi-
búðinni á laugardögum. Maður má bara
þakka fyrir að þurfa ekki að blása lífi í
þá sem fallið hafa í yfirlið vegna spennu-
falls. Nei, þetta eru nú kannski aðeins
of miklar ýkjur, en það má spyrja sig
hvort ekki sé betra að syngja bara
„Hæ hó jibbý jei“ í góðu tómi og væta
kverkarnar á hóflegan hátt með
snyrtimennskuna í fyrirrúmi.
Gangið hægt inn um gleðinnar
dyr!
halldora@bladid.net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ferðu í taugarnar á öðrum?
Bresk rannsókn sýndifram á að þriðjungur breskra starfsmanna hefur hugleitt að hcetta í vinnunni vegna sam-
starfsmanna sem skaprauna þeim á degi hverjum. Ertþú ein/n afþeim sem ert líkleg/ur til þess að hrekja vinnufé-
laga úr starfi? Ertu kannski svolítið leiðinleg/leiðinlegur?
Á skrifborðinu þínu má
finna:
a) Tölvu með persónulegri
skjámynd og gamlan banana.
b) Harla fátt, nema þau verkefni
sem þú ert að vinna að hverju sinni.
c) Urklippur úr slúðurblöðum
af uppáhalds leikurunum þínum,
skrípamyndir af þekktum stjórn-
málamönnum, innrammaða mynd
af gæludýrunum þínum, lítil leik-
föng sem ganga fyrir rafhlöðu og
gera ýmislegt sem þér finnst mjög
sniðugt, Idol brúðu, litla bangsa og
gestaþrautir.
2Hversu oft tekur þú að þér
að laga kaffi fyrir samstarfs-
menn þína?
a) Þú lagar aldrei kaffi handa
öðrum heldur læðist að kaffikönn-
unni og lagar þér nokkkra bolla
þegar enginn sér til. Þú neitar hins
vegar aldrei bolla ef einhver annar
býður þér.
b) Þú lagar aldrei kaffi handa
neinum þar sem þú drekkur það
ekki sjálf/ur.
c) Allavega tvisvar á dag og þú
býður alltaf öðrum ef þú ert að laga
þér kaffi á annað borð.
Hvort fer meira í taugarnar
áþér?
a) Vinnufélagar sem kvarta
daglega yfir sóðaskapnum í
kaffistofunni.
b) Vinnufélagar sem mæta alltaf of
seint og koma sér undan öllu.
c) Vinnufélagar sem segja aldrei
neitt.
Það eru samskot í vinnunni
vegna afmælis vinnufélaga,
þú:
a) Sérð um samskotið, gengur um
með bauk og hneykslast þegar fólk
neitar að taka þátt, þó að það þekki
ekkert til afmælisbarnsins.
b) Ef þú þekkir afmælisbarnið þá
borgar þú en ef ekki finnst þér það
óþarfi.
c) Þú sérð þann sem sér um sam-
skotið nálgast þannig að þú stendur
upp og gengur hröðum skrefum
á salernið þar sem þú felur þig um
tíma.
5Hressir starfsmenn nota
sniðug orðatiltæki óspart á
skrifstofunni, þér finnst:
a) Það frábært og gerir slíkt hið
sama. Þér finnst þetta gera andrúms-
loftið á skrifstofunni léttara.
b) Það glatað. Sérstaklega ef menn
endurtaka eitthvað oftar en einu
sinni. Ef þú þarft að endurtaka eitt-
hvað fyndið oftar en einu sinni þá er
það greinilega ekki fyndið.
c) Það getur alveg verið fyndið en
stundum er það ferlega þreytandi.
Það fer eftir því hver á í hlut.
Uppáhalds kaffikannan þín
er horfin af skrifborðinu
þínu, þú:
a) Sendir fjöldapóst á alla starfs-
menn innan fyrirtækisins og krefst
þess að sá sem tók bollann ófrjálsri
hendi skili honum aftur þar sem
bollinn hefur tilfinningalegt gildi í
þínum huga.
b) Þú átt þér ekki uppáhalds bolla,
telur að fólk sem á sér uppáhalds
kaffibolla sé leiðinlegt.
c) Þú drekkur bara kaffið þitt úr
öðrum bolla í rólegheitum..
Þetta er fyrsti dagurinn þinn
í vinnu eftir tveggja vikna
frí á Spáni. Þú:
a) Sendir sem fyrst nokkra tölvu-
pósta um allt og ekkert svo aðrir
starfsmenn taki örugglega eftir því
að þú ert kominn til baka.
b) Setur stóran konfektkassa á
borðbrúnina og hvetur alla til þess
að fá sér mola.
c) Talar með spænskum hreim og
kemur að spænskum orðum hvenær
sem tækifæri gefst.
Vinur þinn sendir þér kostu-
legan tölvupóst. Þú:
a) Hressist við og áfram-
sendir þetta til samstarfsmanna
þinna.
b) Sendir vini þínum tölvupóst til
baka með álíka sniðugu efni.
c) Andvarpar og eyðir póstinum.
Þú kærir þig ekki um truflun á
vinnutíma.
9Hvernig brýtur þú ísinn
ef þú hittir vinnufélaga
sem þú þekkir lítið við
kaffivélina:
a) Þú slúðrar um vinnufélaga og
býrð jafnvel til grófar sögur.
b) Baktalar samstarfsmann.
c) Talar um veðrið. Það bregst
aldrei.
Teldu stigin saman
1. a)1 b)2 03 1-9 stig: 10-18 stig:
2. a) 3 b) 2 01 Þú ert draumavinnufélagi. Þú ert oftast Þinn helsti galli er sá að þú átt það til að
3. a) 1 b) 3 02 í góðu skapi og ert alltaf tilbúinn að láta andrúmsloftið á vinnustaðnum draga
4. a) 3 b) 1 03 aðstoða vinnufélaga þina. Þrátt fyrir að þig niður. Þú ferð þó ekki (taugarnar á
5. a) 3 b) 2 01 þú sért yfirleitt mjög iðin/n þá ertu ekki vinnufélögum þfnum og skilur yfirleitt skap
6. a)3 b) 2 01 höfðingjasleikja og ert ekki að reyna að ið eftir heima eða lætur ekki of mikið á því
7. a) 2 b) 1 03 koma þér á framfæri á kostnað annarra. bera þó að vissar aðstæður fari í taugarnar
8. a) 3 b) 1 0 2 Þú átt líklega góð samskipti við flestalla í á þér. Það eru þó nokkrir í vinnunni sem
9. a) 3 b) 2 01 fyrirtækinu og lætur hvorki vinnuna eða þér líkar ekkert sérstaklega vel við og það
vinnufélagana fara i taugarnar á þér. Haltu hefur jafnvel komið fyrir að þú hafir skeytt
áfram að standa þig svona vel í mannleg- skapi þinu á þeim. Þú átt þína daga þar
umsamskiptum. sem þú nennir kannski ekki að leggja þlg
fram við að eiga góð samskipti við helstu
samstarfsmenn þína. Annars ertu á góðri
leið en reyndu að vera duglegri að taka
þátt (því sem fram fer á vinnustaðnum.
19-27 stig:
Þú ferð liklega í taugarnar á mörgum vinnu-
félaga þinna. Þú átt það til að reyna að vera
einum of hress og eljusemi þín fer oft úr
böndunum. Vegna þessa finnst samstarfs-
fólki þínu þú jafnvel þreytandi á köflum
og þess vegna verður þú að gaeta þess að
fara ekki fram úr þér. Reyndu að vera meira
í takt við það sem er í gangi á vinnustaðn-
um og ekki skipta þér of mikið af öðrum.
Hafðu hemil á framkvæmdaþörfinni og
ræktaðu frekar félagsleg samskipti á rólegu
nótunum og leggðu þitt af mörkum til þess
að gera vinnustaðinn að betri og þægilegri
vinnustað.