blaðið

Ulloq

blaðið - 17.06.2006, Qupperneq 35

blaðið - 17.06.2006, Qupperneq 35
blaöiö LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 AFÞREYING I 35 Bríet Sunna sló eftirminnilega í gegn í síðustu Idol keppni Ung og upprennandi kántrísöngkona Bríet Sunna með nýja plötu og nýtt lag á nœsta leiti. Bríet Sunna Valdimarsdóttir, 17 ára frá Vatnsleysuströnd, vann hug og hjörtu fjölda íslendinga í Idolkeppninni í vetur. Bríet söng sig alla leið í þriðja sætið í keppn- inni og í framhaldinu gerði hún samning við umboðsskrifstofuna Concert og vinnur nú að fyrstu plötunni. Platan er væntanleg í verslanir í haust en fyrsta lagið af henni er væntanlegt í spilun á útvarpstöðvunum um næstu mánaðarmót. Kántrískvísa Bríet lýsti því margsinnis yfir að hún hefði mikið dálæti af kántrí tónlist og söng nokkur kántrílög í keppninni. Platan hennar mun sann- arlega bera þess skýrmerki ogáhrif frá amerískum kántríhetjum eins og Dixie Chicks, Leann Rymes og Willie Nelson eru greinileg á plöt- unni. Platan er heil- steypt og skemmti- leg og full ástæða er fyrir þá sem kunnu að meta söng og framkomu Bríetar í Idolinu að hlakka til að komast yfir eintak af þessari plötu. Vinnur með einvalaliði Að fyrstu plötu Bríetar kemur ein- valalið. Það er Óskar Páll Sveinsson sem stýrir upptökum á plötunni en hann er einn af færustu upptöku- stjórum landsins. Óskar er nýlega fluttur aftur heim til Islands eftir að hafa unnið við upptökur í Bretlandi um árabil. Hljóðfæraleikararnir á plötunni eru meðal þeirra hæfustu á landinu en það eru Jóhann Hjör- leifsson trommari, Guðmundur Pét- urson gítarleikari, Þórir Úlfarsson píanóleikari og Valdimar Kolbeinn Kristinsson bassaleikari. Á ferð og flugi á 17. júní Aðdáendur Bríetar sem bíða eftir tækifæri til að hitta á hana og heyra hana syngja ættu að taka gleði sína því í dag fer Bríet um suðvestur hornið og tekur lagið á eftirfarandi stöðum: Garði klukkan 16:00, Arn- arhóli Reykjavík ásamt fleiri Idol stjörnum 17.30, Mosfellsbæ klukkan 20.40 og svo á Akranesi um kvöldið. kristin@bladid.net Stuðmenn, í Sialla með Stefáni Karli, Birgittu og Valla! Stuðmenn verða ásamt fríðu viðhafnar- fóruneyti í Sjallanum í kvöld Stuðmenn ásamt Valgeiri Guð- jónssyni, Birgittu Haukdal og glannanum víðfræga Stefáni Karli munu sækja Akureyringa heim í kvöld. Þessi skrautlegi hópur kemur fram á miðnætti í Sjallanum og munu flytja skot- helda blöndu af eldra og nýrra efni. Sveitin hefur nýlokið við að hljóðrita nýtt efni sem vænt- anlegt er á markað innan tíðar, þar sem kveður við nýjan tón meðal annars vegna innleggs nýrra liðsmanna. Spiluðum saman í Kaupmannahöfn Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem Valgeir Guðjónsson kemur fram með sínum gömlu félögum í Stuðmönnum, og auk þess í fyrsta skipti sem norðlendingum gefst færi á að heyra í Birgittu Haukdal og Stefáni Karli með hljómsveitinni. Þessi þrenning hefur aðeins einu sinni áður komið fram með hljóm- sveitinni en það var í okkar gömlu höfuðborg Kaupmannahöfn fyrr á þessu ári. Fallega stílfœrð danssápuópera Kvikmyndir Birgitta Jónsdóttir Take the Lead Leikstjóri: Liz Friedlander Aðalhlutverk: Antonio Banderas, Rob Brown, Yaya DaCosta, Alfre Woodard, Dante Basco, John Ortiz, Laura Benanti, MarcusT. Paulk, Jenna Dewan Lengd: 117 mínútur Bandarikin 2006 ★ Antonio Banderas fer með hlutverk dansara sem tekur að sér að kenna hópi af vandræðaunglingum samkvæmisdansa. Þrátt fyrir megna andstyggð nemendanna á kennaranum og danskennslunni tekst honum að fá þá á sitt band og fá þá til að æfa af kappi fyrir stóra samkvæmisdanskeppni. Take the Lead er sérhönnuð mynd fyrirþásemhafayndiafdansmyndum og suðrænum kynþokka Antonio Banderas. Þetta er klassísk formúlumynd sem sennilega hefði ekki halað inn neina áhorfendur ef ekki væri fyrir Banderas. Það er ekkert nýtt við þessa mynd sem á að vera að einhverju leyti byggð á sannri sögu Pierre Dulaine (Banderas), danskennara frá New York. Hann býðst til að taka að sér að kenna erfiðustu nemum að dansa samkvæmisdansa við skóla í New York sem hefur átt í miklu basli vegna fjárskorts. Eftir þetta dramatíska upphaf er ljóst að myndin hættir að styðjast við veruleikann og formúlan tekur við. Vandræðaunglingarnir fögru (kannski öll úr Rent) eru vondir við kennarann og ganga svo langt að hann fer að efast um réttmæti þess að kenna þeim. Auðvitað er haltu mér slepptu mér dramatík í myndinni og mikil togstreita á milli ólíkra menningarheima, en að lokum leggjast allir á eitt að vinna stóru danskeppnina. Persónan sem Banderas leikur er illa mótuð og í raun og veru fá áhorfendur aldrei að vita hvað vakti fyrir honum að dúkka upp þarna í skólanum. Tilraun hans að kenna krökkunum sjálfsvirðingu, er tugga sem er svo margmelt að þegar ég spóla til baka þá er ekkert sem kemur til mín nema þokukennd minning um ekki neitt. En þetta er fallega stílfærð danssápuópera. Það eina sem hefði toppað þetta er ef þau hefðu sungið samtölin. Hún fær eina stjörnu vegna þess að ég er að spara hauskúpurnar. birgitta@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.