blaðið - 17.06.2006, Page 38
38 IFÓLK
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 blaðið
WIÐUR MEÐ
SUMARFRÍ
Sumarið er ekki að gera góða hluti
hjá Smáborgaranum. Endalaus rign-
ing og rok er reyndar ekkert til að pirr-
ast yfir. íslendingar hljóta að gera sér
grein fyrir hvar þeir búa og geta þess
vegna ekki látið nokkra dropa og smá
hafgolu fara í taugarnar á sér. Enda
er staðreynd málsins sú að þetta er
sá árstími vetrar sem við ættum að
kalla sumar.
Fólk og sumarfrí er eitthvað sem flest-
ir telja að eigi vel saman, en annað
kemur heldur betur á daginn þegar
hafa þarf samband við fyrirtæki íland-
inu. Flestir virðist algjörlega óhæfir í
að sinna starfi sínu á sumrin og Smá-
borgarinn kennir sumarfríinu um.
Helsta ástæða andleysisins á vinnu-
stöðum landsins er að flestir eru á
leiðinni í sumarfrí. Þá fer dagurinn
að mestu í að þjálfa upp afleysingar-
mann en sá sem er á leiðinni í frí er
gjörsamlega búinn að stimpla sig
út. Aðrir eru nýkomnir úr nokkurra
vikna sumarfríi og ennþá að agnúast
yfir því hvað tíminn leið hratt. Þeir
eru yfirleitt niðurdregnir og fúlir yfir
því að vera komnir aftur til vinnu og
koma engu í verk. Loks eru þeir sem
einfaldlega eru komnir í sumarfríi og
búnir að skilja eftir sig handónýtann
afleysingarmann sem kemur engu í
verk vegna þess að fyrirrennari hans
var búinn að stimpla sig út þegar
hann átti að sjá um starfsþjálfun.
(Ijósi þessa hlýtur það að vera krafa
smáborgara þessa lands að sumarfrí
verði með öllu lögð niður. Þau hafa
skelfilega neikvæð áhrif á hagvöxt í
landinu og Ijóst er að þetta sumarfría-
stand leiðir okkur aðeins á einn stað:
aftur ofan íjörðu í torkofana.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Haraldur Ólafsson, veðurfrœðingur
Rignir alltaf á 17. júní?
„Hann hefur oft verið býsna blautur. Það er nú ekki þannig að dag-
urinn skeri sig neitt áberandi úr, en það vill nú þannig til að það
er að jafnaði blautara á þessum tíma en í maí til dæmis. Ég hugsa
samt að ekki sé fjarri lagi að það séu helmingslíkur á því að það
sé þurrt á 17. júní sé litið til sögunnar.“
Það er útlit fyrir að regnhlífar verði áberandi fylgihlutur í hátíðarhöldunum í dag eins og oft áður.
Blaðið/SteinarHugi
12-16 ára unglingar i Háskóla Islands
Skólaslit Háskóla unga fólksins,
sem haldinn er á vegum rektors-
skrifstofu og markaðs- og sam-
skiptadeildar Háskóla íslands,
voru í dag. Markmið skólans
er að veita nemendum innsýn í
undraveröld þekkingarinnar með
þvi að bjóða upp á námskeið sem
endurspegla þá miklu fjölbreytni
í kennslu og rannsóknum sem á
sér stað innan Háskóla íslands.
Rektor Háskóla Islands ávarpaði samkom-
una.
I ár voru 203 nemendur í skólanum sem er 37% aukning frá því í fyrra þegar 148 voru
skráðir.
Fjölskylduskokk
Blóðbankans
Rúmlega 70 manns tóku þátt í fjöl-
skylduskokki Blóðbankans sem
fram fór í Laugardalnum á miðviku-
daginn. Hlaupið, sem er haldið í
tilefni af Alþjóðlega blóðgjafardeg-
inum, fór nú fram í annað sinn.
Markmiðið með hlaupinu var að
vekja athygli á Alþjóðlega blóðgjafar-
deginum (World Blood Donor Day)
sem var síðastliðinn miðvikudag.
Sá dagur er sameiginlegt verkefni
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), Alþjóða Rauða krossins,
Alþjóðasamtaka blóðgjafarfélaga
og Alþjóðasamtaka blóðgjafar (Int-
ernational Society of Blood Transf-
usion).
Hann er á sértilboði þessa viku, aðeins 1,6 milljón.
HEYRST HEFUR...
Dagný Jónsdóttir, hin
unga og bráðefnilega
þingkona Framsóknarflokks-
ins, er ekki
í hópi af-
kastamestu
þingmanna
þ e g a r
kemur að
netskrif-
um. Dagný
heldur þó
úti áhuga-
verðri netsíðu http://www.
xb.is/dagny) og ritar þar af og
til upplýsandi greinar. Ein slík
birtist fyrir skemmstu en þar
fjallar Dagný um stólaskiptin
innan ríkisstjórnarinnar og af-
stöðu framsóknarmanna í því
efni öllu.
Dagný seg-
ir stærstu
tíðindin
vera brott-
hvarf Jóns
Kristjáns-
sonar úr
ríkisstjórn.
Athyglisvert er hins vegar
hvernig Dagný lýsir afstöðu
Jóns sem er henni sýnilega
mjög að skapi. Dagný segir í
pistli sínum: „ Stærstu tíðind-
in þar voru að Jón Kristjáns-
son óskaði eftir því að láta af
störfum sem ráðherra. Hann
vildi rýma fyrir nýjum manni
sem gæti notað sér embættið
til að styrkja sig og flokkinn
fyrir næstu kosningar . . . ”
Einhverjir hugsjónamenn og
vitleysingar hefðu nú kannski
látið sér detta í hug að menn
nýttu sér ráðherraembætti
einkum til að vinna landi og
þjóð gagn.
Dagný virðist heldur ekki
vera með verkaskiptingu
stjórnvalda á hreinu þegar
hún segir: „Við fáum liðsauka
í þingflokkinn, Jón Sigurðs-
son en hann verður iðnaðar-
og viðskiptaráðherra." Nú
er það svo að Jón Sigurðsson
mun ekki koma inn í þing-
flokk framsóknarmanna þar
sem hann hefur ekki verið
kjörinn til þingsetu. En þetta
er kannski óskhyggja í þing-
konunni ungu því ef fram-
sóknarmenn tækju upp á því
að tilnefna einungis untan-
þingsráðherra, og þeir tækju
sæti í þingflokknum eins og
Dagný virðist halda, þá gætu
þeir tvöfaldað þingmanna-
fjölda sinn...
Og enn af framsóknar-
mönnum. Gunnlaugur
Guðmundsson, stjörnuspek-
ingur hefur rýnt í stjörnurn-
ar til þess að fá innsýn í per-
sónuleika
GuðnaÁg-
ústssonar.
Niðurstöð-
urnarbirt-
ust á mbl.
isþar sem
Guðnibirt-
ist okkur
sem mað-
ur mikilla kosta. Að lokum
kemst Gunnlaugur að kjarn-
anum og segir um Guðna:
„Guðni er hið einlæga og forna
ísland. Landið, sveitin, sauð-
kindin og fjósið. Framsókn í
allri sinni fornu dýrð. í gervi
skemmtikrafts, stjórnmála-
manns og ‘bónda’..Kannski
er hann Rísandi Naut?“
gunnar@vbl.is